Morgunblaðið - 03.04.2021, Page 11

Morgunblaðið - 03.04.2021, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarráð Ísafjarðarbæjar hefur ákveðið að afla upplýsinga frá fyrirtæki í Litháen sem kom með eina tilboðið í fjölnota knatt- spyrnuhús á Ísafirði. Tilboðið var langt yfir kostnaðaráætlun og markmið bæjarins er að finna leiðir til að fá húsið reist fyrir verð sem rúmast innan fjárhagsáætlunar bæjarins. Allt kjörtímabil bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar hefur verið unnið að undirbúningi byggingar fjölnota knattspyrnuhúss á íþróttasvæðinu á Torfnesi á Ísafirði. Daníel Jakobs- son, formaður bæjarráðs, segir að æfingaaðstaða knattspyrnufólks sé bágborin, bæði grasvöllurinn og gervigrasvöllurinn þarfnist lagfær- inga og íþróttahúsið á Torfnesi anni ekki eftirspurn. Með því að byggja knattspyrnuhús og koma knattspyrnunni þangað á veturna geti aðrar íþróttagreinar fengið meira svigrúm í íþróttahúsinu. Betri staður að búa á „Við búum á Vestfjörðum, knatt- spyrnan er orðin heilsárs- íþróttagrein og ef við ætlum að búa börnum okkar sambærilega að- stöðu og börn hafa annars staðar, þarf að fara í slíkar framkvæmdir. Það hefur verið gert annars stað- ar,“ segir Daníel og nefnir að meiri not verði af fjölnota knattspyrnu- húsinu en aðeins fyrir knattspyrnu- æfingar, eins og heiti þess bendir til. Nefnir hann möguleika á öðrum íþróttum til hliðar og skemmtana- hald. „Ég tel að Ísafjörður verði betri staður að búa á eftir að knatt- spyrnuhús rís,“ segir Daníel. Ákveðið var að byggja hús sem svarar til hálfs knattspyrnuvallar á núverandi gervigrasvelli. Brösuglega hefur gengið að koma málinu í framkvæmd. Hönn- un og bygging hússins var fyrst boðin út á Evrópska efnahagssvæð- inu á árinu 2019. Töluverður áhugi var á útboðinu en ekkert gilt tilboð barst þegar umslög voru opnuð í byrjun árs 2020. Í kjölfarið var skrifað undir viljayfirlýsingu við Hugaas Baltic í Litháen um að byggja húsið fyrir 470 milljónir kr. en ekki var heimilt samkvæmt lög- um að fara þá leið, að því er Daníel segir. Samkvæmt áætlun sem Verk- ís gerði var heildarkostnaður áætl- aður 470 til 550 milljónir kr., að því er fram kom á fréttavefnum bb.is. Þegar framkvæmdin var boðin út að nýju barst aðeins eitt tilboð, það er frá umræddu fyrirtæki, Hugaas Baltic í Litháen, og það hljóðaði upp á 728 milljónir króna en kostn- aðaðaráætlun ráðgjafa Ísafjarðar- bæjar gerði ráð fyrir 476 milljónum króna í verkefnið. Daníel segir að það hafi verið vonbrigði að aðeins eitt tilboð barst. Hann segir að finna þurfi leiðir til að framkvæmdin rúmist innan fjárhagsáætlunar bæjarins og að því sé unnið. Vilji bæjarins sé að semja við bjóðanda á grundvelli útboðsgagna með breytingu á þeim liðum sem hafi farið úr böndunum. Óskað eftir upplýsingum Lögmaður og sviðsstjóri um- hverfis- og eignasviðs Ísafjarð- arbæjar hafa lagt til við bæjarráð að óska eftir staðfestingu Hugaas Baltic á því að fyrirtækið uppfylli allar tilskildar hæfiskröfur, meðal annars um fjárhagslegan styrk. Eftir það geti bærinn tekið afstöðu til tilboðs fyrirtækisins, tekið því eða hafnað og hafið viðræður um breytingar. Reynt er að koma knatthúsi í ramma - Eina tilboðið var langt yfir áætlun Ísafjarðarbæjar Ljósmynd/Hugaas Baltic Fjölnota Hugaas Baltic hefur sett upp fjölda húsa í Noregi. Hér er eitt, í Frekhaug á Hörðalandi, svipað því sem Ísfirðingum stendur til boða. Allt um sjávarútveg Atvinna Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 Léttur Jakki 14.990 kr Frakki 13.990 kr A-sniðs jakki 22.990 kr Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is Regnjakki 13.990 kr Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is Ten Points Elsa 28.990 kr. Opið frá 12-16 í dag Skipholti 29b • S. 551 4422 GLEÐILEGA PÁSKA Opið 11:00-16:00 Skoðið laxdal.is Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is NÝ SENDING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.