Morgunblaðið - 03.04.2021, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsl
a
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þ
ótt liðnir séu tveir mán-
uðir frá því Kamala
Harris tók við embætti
varaforseta Bandaríkj-
anna er hún enn á hrak-
hólum. Í frétt á CNN nú í vikunni
segir frá því að Harris og eiginmaður
hennar, Douglas Emhoff, lagapró-
fessor við háskólann í Georgetown,
búi enn í ferðatöskum þar sem við-
gerðir standa enn yfir á Naval Ob-
servatory, bústaðnum sem varafor-
setum er ætlaður.
Óljóst er enn hvers vegna við-
gerðir á húsinu taka svo langan tíma
en heimildamenn fjölmiðla vestra
segja þetta svekkja Kamölu mjög. Að
vera á vergangi reyni á þolinmæði
fjölskyldunnar sem býr um þessar
mundir í Blair House í Washington,
opinberum gestabústað forsetaemb-
ættisins. Raunar væsir ekki um neinn
í Blair House, þar sem Biden forseti
hélt til sólarhringana áður en hann
fluttist í Hvíta húsið við embættistök-
una 20. janúar sl.
Risastórt hús frá 1893
Stjórnvöld vestra hafa ekki gefið
neinar skýringar á því hvers vegna
svo mjög hefur tafist að koma bú-
staðnum í stand. Kostnaður við end-
urbætur er þó orðinn verulegur, en
þó kannski ekki endilega mikill sé
horft til þess að húsið er risastórt og
byggt árið 1893. Á dögunum kom
Kamala við í Naval Observatory til að
kanna aðstæður og þá sérstaklega í
eldhúsinu. Sagðist nefnilega hafa
gaman af eldamennsku og vildi að allt
væri í standi!
Blair House er glæsileg bygging
og margir merkir sögulegir gripir eru
meðal húsmuna þar. Einnig er í hús-
inu fyrsta flokks líkamsræktar-
aðstaða og hárgreiðslustofa. Allt þyk-
ir þetta ljómandi fínt, en CNN lætur
þó að því liggja að Harris og Emhoff
finnist nokkuð skorta upp á að húsið –
væntanlegt heimili þeirra næstu fjög-
ur árin – hafi þann hlýleika sem þau
væntu. Bót í máli er þó að risastór lóð
fylgir húsi varaforsetans; með frá-
bærri aðstöðu til útivistar.
Hvaða hlutverk?
Vestanhafs velta margir fyrir
sér hvaða hlutverk Kamala Harris fái
sem varaforseti Bandaríkjanna.
Formleg starfslýsing sé að minnsta
kosti ekki til. Bent er á að hún sé
fyrst kvenna til þess að gegna emb-
ættinu og þess utan líklegt forseta-
efni framtíðar. Störf hennar verði að
skoðast í því ljósi. Nú bendi hins veg-
ar margt til að Joe Biden hyggist
gera hana, að minnsta kosti um
stundarsakir, að eins konar tals-
manni aðgerða Bandaríkjastjórnar.
Aðgerðapakki til viðreisnar vegna
kórónuveirunnar var nýlega lagður
fram og því var Harris gerð út af örk-
inni til að afla málinu stuðnings. Hún
fór í því skyni m.a. til Nevada, Col-
orado, Vestur-Virginíu og Arizona á
dögunum. Búist er við að ferðir þess-
ar verði fleiri á næstunni. Einnig hef-
ur Kamala að undanförnu átt fundi
með fulltrúa fjölda hagsmuna-
samtaka og ríkja víða í veröldinni, í
því skyni að skapa tengsl og auka
skilning fólks í millum.
Varaforseti
á vergangi
Kamala Harris bíður eftir því að geta flutt inn í
embættisbústaðinn í Washington. Gamalt glæsihús.
Vill eldhúsið í stand, enda áhugasöm um matargerð.
AFP
Tvíeykið Kamala Harris og Biden Bandaríkjaforseti í Emory-háskólanum í Atlanta í Gerorgíuríki á dögunum.
Washington Naval Observatory er glæsihús í háamerískum stíl.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
H
jörleifur Valsson
fiðluleikari var ný-
kominn frá Noregi,
þar sem hann býr, til
þess að sinna ýmiss
konar spilamennsku á Íslandi um
páskana þegar samkomutakmark-
anir vegna sóttvarana voru settar
á. „Þetta var alveg fyrirvaralaust
og setti mig í vanda. Margt var á
döfinni, svo sem við athafnir í
kirkjum, sem allar voru blásnar af.
Þetta gerði mig nánast að stranda-
glópi á Íslandi, og nógu erfitt var
nú að komast heim frá Noregi.
Eina leiðin hingað heim var tengi-
flug í gegnum Frankfurt,“ segir
Hjörleifur.
Tónlist eftir óskum
Góðir vinir fréttu í hvaða stöðu
Hjörleifur væri á Íslandi og buðu
fram aðstoð. Kynntu á fé-
lagsmiðlum að hann væri tilbúinn
að mæta í heimahús og spila á fíól-
ínið fyrir fólk og fjölskyldur í litlum
hópum. Tilkynning þessi fékk góð-
ar viðtökur og nokkur verkefni
hafa dottið inn síðustu daga. „Þetta
er bara skemmtilegt og vandalítið,“
sagði Hjörleifur „Hef mætt í hús
með grímu og sprittaðar hendur –
og legg svo fiðluna að vanga. Tón-
listin getur verið samkvæmt óskum
hvers og eins. Sjálfum finnst mér
alltaf gaman að glíma við sígilda
tónlist og spinna svo út frá henni af
fingrum fram. Vonandi vilja ein-
hverjir slíkan tónlistarflutning, en
ég er opinn fyrir öllu. Að fylla
heimilið af lifandi tónlist um
páskana er væntanlega mjög ljúft.“
Ungur að árum byrjaði Hjör-
leifur í tónlistinni sem hefur verið
hans hálfa líf allar götur síðan.
Undanfarin ellefu ár hefur hann
búið í Ósló í Noregi, og sinnt þar
kennslu og ýmsum öðrum tónlistar-
verkefnum sem bjóðast. Einnig fer
hann reglulega til Prag í Tékklandi,
enda með tengsl við listafólk þar.
En nú og eitthvað fram í apr-
ílmánuð verður Hjörleifur á Ís-
landi, til í alls konar spilamennsku
og innan seilingar á Facebook.
Fiðluleikarinn býður upp á heimatónleika um páskana fyrir litla hópa
Gríma, sprittaðar hendur
og legg svo fiðluna að vanga
Tónþjónusta! Hjörleifur
sér um sína. Fíólínið er
tiltækt og ekkert mál að
mæta á staðinn.
Skemmtilegt að spinna
út frá sígildum verkum
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Spilverk Að fylla heimilið af lifandi tónlist um páskana er væntanlega mjög
ljúft, segir Hjörleifur sem svarar kalli vilji fólk fá hljóðfæraleik heim í stofu.