Morgunblaðið - 03.04.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 03.04.2021, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ræðusafnið Meðan þínnáð er gott yfirlitverka Sigurbjörns Ein- arssonar biskups og sýnir vel hvers vegna landsmenn sótt- ust eftir leiðsögn frá honum á meðan hans naut við, og gera enn í gegnum merkileg verk hans. Eitt erindið ber yf- irskriftina Varist falsspámenn og vísar til varnaðarorða Krists. Nú á tímum er iðulega rætt um falsfréttir og upp- lýsingaóreiðu og er sú umræða á köflum varasöm þó að ým- islegt eigi þar við rök að styðj- ast. Sigurbjörn segir margt hafa verið rætt og ritað í því skyni að hnekkja kristinni trú, en það sé aldrei gert án dulbún- ings. „Klæðin eru mörg og ekki alltaf auðvelt að sjá, hvað innan þeirra er,“ segir hann, og bætir við: „En Jesús segir: Það er unnt að þekkja falsspá- menn. Af ávöxtum þeirra skul- uð þér þekkja þá.“ Sigurbjörn víkur að þeim sem á nítjándu öld hafi boðað að enginn Guð sé til, því að sá vantrúarboðskapur er ekki nýr þó að ýmsir virðist telja sig hafa uppgötvað hann í seinni tíð. Kann það að vera af- leiðing þess að maðurinn virð- ist stundum nú orðið telja sig nánast almáttugan vegna vax- andi vísindalegrar þekkingar og aukinnar tækni- og fram- leiðslugetu. Og Sigurbjörn segir kjarnann í þessum boð- skap þann að Guð sé ekki til og þar með muni allur kærleikur manna beinast að jörðinni, kirkjan skuli dæmd til dauða, jörðin skuli verða ný. „Ríkið á himni, sem kirkjan hefur boð- að, skal nú verða skapað á jörð. Guð skal rýma fyrir manninum. Draumurinn um himneska gæsku, guðlegt rétt- læti og visku, mun verða veru- leiki á jörð, því að mannlegur góðleikur og viska mun ná að rétta úr sér til fulls og vaxa til fullkomnunar, þegar himinn- inn er horfinn, Kristur orðinn afhjúpuð skrýtla, Guð dauð- ur.“ Sigurbjörn segir að þannig hafi margir dáðir menning- arvitar þeirra tíma kennt með verulegum árangri. Hann spyr hvernig hafi farið og segir svo: „Saga aldarinnar svarar því. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hakakross Hitlers og hamar Stalíns eru meðal ávaxtanna, blóðbað á blóðbað ofan, kúgun og svívirða, sem sver sig fullkomlega í ætt við helvítið sjálft. Samt er haldið áfram að flytja sama fals,“ segir Sig- urbjörn, og bætir því við að enn trúi því ýmsir, „sem ann- ars eru næsta borgaralega þenkjandi, að þessi úldna blekking fyrri aldar sé fersk opinberun og kjarnavöxtur mannlegs þroska. Gætið yðar. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Þau orð Jesú Krists skyldu ekki gleymast.“ Í Dagmálum í liðinni viku átti Andrés Magnússon blaða- maður ágætt samtal við séra Svein Valgeirsson dóm- kirkjuprest og Kristrúnu Heimisdóttur lögfræðing. Í þættinum, sem finna má á mbl.is, var meðal annars kom- ið inn á löggjöf þá sem snýr að kirkju og trúmálum. „Lögin sem voru sett 2013 um trú- félög, held ég að hafi afhjúpast sem algjör mistök og eitthvað sem verður að endurskoða frá grunni,“ sagði Kristrún og vís- aði þar til svikamyllunnar í tengslum við félagið Zúista. Hún furðaði sig á hversu blint ríkisvaldið hefði orðið og sagði svo að það sama sæist í nýju frumvarpi um „þjóð- kirkju í landinu, að það er ver- ið að ganga út frá því að þjóð- kirkjan sé bara félag“. Kristrún benti á að hingað til hefði verið gengið út frá því í lagasetningu að trúfélög væru ekki hefðbundin og venjuleg félög, en nú hefði það, eins og sjá mætti af öðru fyrirliggj- andi frumvarpi, með undra- hraða umhverfst í að horft væri á trúfélög eins og fyrir- tæki á samkeppnismarkaði. Hún sagðist telja að marka þyrfti trúfélögum og trúar- brögðum ákveðið svið og að það væri mjög alvarlegt ef ekki væri skilningur á því. Ríkisvaldinu ber með laga- setningu að standa vörð um trúarbrögð, trúfrelsi og um kristna kirkju. Í því felst engin mótsögn, þjóðfélög Vest- urlanda og þar með talið ís- lenskt þjóðfélag, byggjast á kristnum gildum og réttindum hvers og eins, mannréttindum. Þessi gildi eru samofin og þau þarf að verja og þeir sem að- hyllast þessi gildi mega ekki láta háværan málflutning ann- arra leggja undir sig um- ræðuna. Það ágæta rit sem nefnt var hér í upphafi sækir heiti sitt í eitt af þekktari versum Pass- íusálma séra Hallgríms Pét- urssonar. Það á ekki síður vel við nú en þegar það var ort á 17. öld: Gefðu að móðurmálið mitt, minn Jesú, þess ég beiði, frá allri villu klárt og kvitt krossins orð þitt út breiði um landið hér til heiðurs þér, helst mun það blessun valda, meðan þín náð lætur vort láð lýði og byggðum halda. Morgunblaðið óskar les- endum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra páska. Af ávöxtunum S itt sýnist hverjum um hvort þörf sé á siðareglum. Skoðanir á slíkum reglum ná allt frá því að þær séu taldar vera algjört bull yfir í óþarfa vesen, ágætis viðmið, nauðsynlegt aðhald eða stjórntæki. Það merkilega er að það hafa allir rétt fyrir sér á sama tíma. Hvernig er það hægt? Til að byrja með þá er ekki þörf á siða- reglum úti um allt. Skoðanir eru auðvitað skiptar um það líka, en við getum öll verið sammála um að til eru þær aðstæður þar sem það er engin þörf á slíkum reglum. Á sama hátt eru til aðstæður þar sem siðareglur eru allt frá því að vera hjálplegar til þess að vera nauðsynlegar. Mikið hefur verið fjallað um siðareglur RÚV að undanförnu og eitt af lykilatriðunum þar er hver samdi siðareglurnar. Það skiptir máli af því að enginn getur sett öðrum siðareglur. Þannig virka siðareglur ekki. Þannig reglur eru til þess að siða ein- hvern til. Siðareglur koma frá þeim sem ætla að fara eft- ir reglunum en ekki frá einhverjum öðrum. Hvað varðar siðareglur RÚV segja sumir að starfsmenn hafi samið þær en fulltrúi starfsmanna í þeim hópi sem vann að undirbúningi siðareglnanna segir að þær reglur séu ekki verk hópsins, „höfundanna þarf að leita annars staðar“. Þingmenn eru einnig með siðareglur. Þær voru sam- þykktar af Alþingi fyrir rétt tæpum fimm árum og nýj- um þingmönnum gert að skrifa undir þær siðareglur. Það er óljóst hvað gerist ef þingmaður neitar að skrifa undir. Ég skrifaði undir þær siðareglur af því að ég er sammála því sem þar kemur fram og vil sýna það fyrir fram hvernig ég hyggst sinna starfi þingmanns. Þetta eru því ekki reglur sem aðrir setja mér, þótt ég hafi ekki tekið þátt í að semja þær, heldur reglur sem ég vil fara eftir. Það er það sem siðareglur snúast um. Þess vegna tel ég nauðsynlegt að segja að það er rökstuddur grunur um að Ásmundur Friðriksson hafi dregið að sér fé, almannafé, og við erum ekki að sjá viðbrögð þess efnis að það sé verið að setja á fót rannsókn í þeim efnum. Ég segi þetta þrátt fyrir að ég viti að þessi ummæli hafi verið sögð brjóta gegn siðareglum alþingismanna – vegna þess að ummælin voru og eru rökstudd; af viðurkenn- ingu Ásmundar í Kastljósi og síðar með end- urgreiðslu á umræddum akstursgreiðslum. Ég segi þetta án þess að hafa aðgang að neinum öðrum gögnum en hafa birst opinberlega í fyrirspurnum mínum til þing- forseta. Ég segi þetta af því að það ætti að vera öllum augljóst að niðurstaða siðanefndar um þessi ummæli er staðreyndalega röng. Siðareglur eru almenn viðmið um hegðun og tjáningu. En ef túlkun þeirra byggist hins vegar á bókstafnum en ekki samhengi glatast hæðni og staðreyndir. Þannig verða til reglur sem eru notaðar til þess að siða aðra til og ganga á stjórnarskrárbundin réttindi þeirra. Björn Leví Gunnarsson Pistill Siðareglur eða reglur til að siða? Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is E ru Norðurlandaþjóðirnar í raun eitt málsvæði? Að því hafa verið færð ýmis rök og undir þetta er meðal annars ýtt í nýlegum sjón- varpsþáttaröðum á borð við Brúna, Exit og Ísalög og Atlantic Crossing þar sem norrænir leikarar frá ýms- um þjóðum tala ýmist sitt eigið móð- urmál eða önnur Norðurlandamál og virðast ekki eiga í neinum erf- iðleikum með að gera sig skiljanlega. Kannanir, sem gerðar hafa verið á þessari öld, benda þó ekki til þess, að Norðurlandaþjóðirnar skilji hver aðra sérstaklega vel og raunar hafi heldur dregið úr því á síðustu ára- tugum. Nú síðast lét norræna ráð- herranefndin gera könnun meðal ungs fólks á aldrinum 16-25 ára á öll- um Norðurlöndunum að Álands- eyjum, Færeyjum og Grænlandi meðtöldum þar sem spurt var um málakunnáttu og afstöðu til tungu- mála og menningar annarra landa. Í ljós kom áhugaverður munur milli landanna og tungumálanna. Meginniðurstaða könnunarinnar, sem hefur nú verið birt á heimasíðu ráðherranefndarinnar, er að 62% allra svarenda sögðust eiga frekar auðvelt með að skilja norsku og sænsku en aðeins 26% sögðu það sama eiga við um dönskuna. Þegar svörin voru greind eftir löndum sagðist meirihluti svarenda í Noregi og Færeyjum eiga auðvelt með að skilja önnur norræn tungumál en meirihluti Finna, Íslendinga og Grænlendinga var þessu ósammála. Þegar svör Norðmanna, Svía og Dana voru skoðuð nánar kom í ljós, að aðeins 23% ungra Svía sögðust skilja dönsku ágætlega og 40% ungra Dana töldu sig skilja sænsku. Eyrarsundsbrúin virðist því ekki al- veg hafa náð að brúa það bil sem er á milli þessara tveggja tungumála. Allir skilja ensku Næstum allir, eða 95% svarenda, sögðust hins vegar eiga auðvelt með að tala og skilja ensku. Og áhrif enskunnar á norræna menningu og tungumál eru greinilega mikil því 65% sögðu að raunar væri auðveld- ara að tjá sig á ensku en móðurmál- inu og 62% sögðu að enska hefði mikil áhrif á það hvernig þau tjáðu sig. Samt lýstu tveir af hverjum þremur svarenda þeirri skoðun, að það væri mikilvægur þáttur í sam- norrænni ímynd, að skilja önnur norræn tungumál. Þegar unga fólkið var spurt hvaða tungumál það talaði þegar það hitti fólk frá öðrum Norðurlöndum kom í ljós að um 60% sögðust tala Norð- urlandamál og jafn stór hundraðs- hluti sagðist tala ensku en fólk gat valið fleiri en einn svarmöguleika. Ungir Norðmenn sögðust þó síður tala ensku en aðrir. Í skýrslunni segir, að margir telji að enska hafi mikil áhrif á móðurmál þeirra og það sé stundum auðveld- ara að tjá sig á ensku en á eigin tungumáli. Enska sé með öðrum orðum orðin hluti af daglegu máli norrænna ungmenna. Þessar niðurstöður staðfesti þró- un, sem hafi verið lengi. Að skiln- ingur norrænna ungmenna á Norð- urlandamálunum sé mjög mismunandi eftir þjóðum og í nokkr- um landanna eigi þessi ungmenni af- ar erftitt með að skilja norræn tungumál – en nánast allir skilji ensku. Þetta veki upp ýmsar erfiðar spurningar. Það hafi lengi verið gengið út frá því í norrænu sam- starfi að norræn samkennd byggist á sameiginlegum skilningi á dönsku, norsku og sænsku. „Er þetta raunin nú?“ spyrja skýrsluhöfundar. Skilja Norðurlanda- þjóðir hver aðra? Norden.org/Benjamin Suomela Norðurlönd Norræn tungumál eru ólík þótt þau séu flest skyld. Niðurstöðurnar um Ísland byggja á viðtölum við 200 ung- menni. Um sex af hverjum tíu þeirra sögðust tala og/eða skrifa önnur norræn mál, eink- um þó dönsku enda er hún kennd hér í grunnskólum. Hins vegar sögðust einnig 63% svarenda eiga erfitt með að skilja dönsku og aðeins um þriðjungur sagðist tala norrænt tungumál við aðra Norður- landabúa. Innan við helmingur sagðist telja dönskukunnáttu mikilvæga til að falla að nor- rænni ímynd og almennt eru ís- lensk ungmenni áhugasöm um norræna menningu. Finnst erfitt að skilja dönsku ÍSLENDINGAR Morgunblaðið/Hari Norræn Íslensk ungmenni hafa áhuga á norrænni menningu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.