Morgunblaðið - 03.04.2021, Qupperneq 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021
40 ára Sigurður fæddist
og ólst upp á Sauðár-
króki en býr í Kópavogi.
Hann er með BSc.-gráðu
í vélaverkfræði frá HÍ og
tvær M.Sc.-gráður í
iðnaðarverkfræði frá
Norska tækniháskól-
anum í Þrándheimi og KTH í Stokkhólmi.
Sigurður er deildarstjóri framleiðslu-
þróunar hjá Marel og er í Karlakór Reykja-
víkur.
Maki: Bergdís Björk Sigurjónsdóttir, f.
1984, tölfræðingur hjá embætti land-
læknis.
Dætur: Guðrún Katrín, f. 2010, og Sigríður
Elma, f. 2017.
Foreldrar: Einar Svansson, f. 1958, dósent
við Háskólann á Bifröst, og Sigríður Sig-
urðardóttir, f. 1961, sjúkraliði í Sunnuhlíð.
Sigurður Ágúst Einarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Einbeittu þér að hverju verkefni fyr-
ir sig. Ef þú kemst ekki hjá því skaltu fara
vandlega yfir alla hluti, vandaðu til verka
20. apríl - 20. maí +
Naut Réttu einhverjum í fjölskyldunni
hjálparhönd. Samband þitt við yngra fólkið
í fjölskyldunni er til fyrirmyndar.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er margt talað í kringum þig
en þér finnst vanta að öllum þessum orð-
um fylgi einhverjar athafnir. Ef þú nýtir þér
afslætti sparar þú þér mikla peninga.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú hefur mikla hæfileika til þess að
fá aðra á þitt band. Ný sambönd eiga eftir
að skila þér gleði. Reyndu að sýna skyn-
semi í eyðslunni.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú geislar af krafti og ert tilbúin/n til
að hefjast handa hvort sem er í starfi eða
einkalífi. Erfitt samtal sem þú kvíðir mun
reynast þér auðvelt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú ættir ekki að gera ferðaáætlanir
fyrir árið strax. Reyndu að breyta þeim að-
stæðum sem þú ert ósátt/ur við.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú hefur í svo mörgu að snúast að þú
þarft að fá fólk í lið með þér til þess að hlut-
irnir gangi upp. Þér veitir ekki af aðstoð við
viss verkefni.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Ef þú átt erfitt er það vegna
þess að þú ert of upptekin/n af þér. Ef þú
þarft að fara í fýlu þá komdu þér þangað
sem þú ert ekki fyrir neinum.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þér tekst að ná takmarki þínu
með aðstoð að minnsta kosti þriggja ann-
arra. Hóflegum kröfum þínum er mætt, en
hugsanlega ekki jafn skjótt og þú vonaðist
til.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú hefur það réttilega á tilfinn-
ingunni að draumar þínir séu að rætast.
Hlutirnir gætu sýnst fulkomnari en þeir eru.
Reyndu að sýna þolinmæði og hafa hægt
um þig.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú þarft að gæta þess að ofgera
þér ekki. Kannaðu málið vegar vandlega áð-
ur en þú lætur til skarar skríða. Ekki er allt
gull sem glóir.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Það er til lítils að hafa mörg orð um
hlutina ef þeim fylgja engar athafnir. Láttu
allt slúður sem vind um eyru þjóta.
Á starfsferli sínum stóð Haukur m.a.
fyrir útgáfu um 70 nótna- og fræðslu-
bóka fyrir kóra og organista. Hann hef-
ur haldið orgeltónleika víða á Íslandi, í
Evrópu og Bandaríkjunum og leikið
einleik á orgel með Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Einnig hafa kórar undir hans
stjórn haldið tónleika á Íslandi og víða í
Evrópu og í Ísrael. Þá hefur hann leik-
ið á píanó í samleik á tónleikum, bæði
með sellói, fiðlu og ýmsum blásturs-
hljóðfærum og einnig með söngvurum,
á Íslandi og í Evrópu.
Haukur og Gunnar Kvaran sellóleik-
ari hafa spilað mikið saman, m.a. á eft-
irminnilegum minningartónleikum á
125 ára fæðingarafmæli Pablos Casals
árið 2001, í fæðingarbæ hans Vendrell í
Katalóníu. Grímhildur Bragadóttir,
eiginkona Hauks, hefur einmitt þýtt
ævisögu Casals á íslensku. Haukur hef-
ur gert upptökur fyrir útvarp, sjónvarp
og á hljómplötur og geisladiska. Hann
gaf út tvo tvöfalda geisladiska (2011 og
2020) þar sem hann leikur á mörg orgel
á Íslandi og í Hamborg. Hann hefur
samið og gefið út Kennslubók í org-
anleik í þremur bindum.
Haukur hefur hlotið ýmsar viður-
kenningar fyrir störf sín. Hann er
heiðursfélagi bæði í Félagi íslenskra
organleikara og í Félagi íslenskra tón-
listarmanna. Árið 1983 sæmdi Vigdís
Finnbogadóttir forseti Íslands hann
riddarakrossi hinnar íslensku fálka-
H
aukur Guðlaugsson
fæddist á Eyrarbakka
5. apríl 1931 og verður
því níræður á annan í
páskum. „Ég fæddist
að morgni páskadags meðan móðir
mín var að hlusta á útvarpsmessuna.
Það var því strax byrjað að messa yfir
mér,“ segir Haukur.
Hann hóf píanónám 13 ára og lauk
burtfararprófi frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík 1951 undir handleiðslu
Árna Kristjánssonar. Hann stundaði
orgelnám við Staatliche Hochschule
für Musik í Hamborg 1955-1960 og
var aðalkennari hans þar prófessor
Martin Günther Förstemann. „Ég sá
20 óperur á þessum tíma og skoðaði
helstu listasöfnin. Ég lærði mikið á
því líka.“ Framhaldsnám í orgelleik
stundaði hann við Accademia di Santa
Cecilia í Róm hjá Maestro Fernando
Germani 1966, 1968 og 1972.
Haukur var tónlistarkennari og
kórstjóri Karlakórsins Vísis á Siglu-
firði 1951-1955 og skólastjóri Tónlist-
arskólans á Akranesi 1960-1974. Þá
var hann einnig organisti og kórstjóri
Akraneskirkju 1960-1982 og kórstjóri
Karlakórsins Svana. Hann var söng-
málastjóri íslensku þjóðkirkjunnar og
skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar
1974-2001. Þá stóð hann árlega fyrir
organista- og kóranámskeiðum á hinu
forna biskupssetri í Skálholti í 27 ár.
orðu og árið 2008 hlaut hann Liljuna,
sérstök tónlistarverðlaun íslensku
þjóðkirkjunnar.
Haukur hefur alla tíð farið flestra
sinna ferða á reiðhjóli, löngu áður en
það komst í tísku. Á meðan aðrir
keyrðu um borð í Akraborgina, þá
hjólaði Haukur um borð. „Nú hjóla ég
ekki lengur, því miður. En ég spila
daglega á píanóið og er að fara að
spila með Gunnari Kvaran sumt af
því sem við höfum spilað í gegnum ár-
in. Við hjónin hugsum um okkur sjálf
hér á Laufásvegi en fáum líka hjálp.
Mér finnst annars líf mitt hafa verið
háð tilviljunum en það hefur ræst svo
vel úr öllu. Mér er gefin mikil lífs-
gleði, þótt ýmislegt hafi bjátað á eins
og hjá öllum í lífinu.“
Fjölskylda
Eiginkona Hauks er Grímhildur
Bragadóttir, f. 10.10. 1937, bókasafns-
fræðingur og kennari. Þau bjuggu á
Akranesi frá 1960-1995, en hafa síðan
búið á Laufásvegi 47 í Reykjavík. For-
eldrar Grímhildar voru hjónin Bragi
Matthías Steingrímsson, f. 3.8. 1907,
d. 11.11. 1971, dýralæknir, og Sig-
urbjörg Lárusdóttir, f. 12.1. 1909, d.
20.5. 1999, húsmóðir, skrifstofumaður
og listakona. Þau voru lengst búsett á
Egilsstöðum. Fyrri eiginkona Hauks
er Svala Guðmunds Einarsdóttir, f.
23.1. 1932.
Haukur Guðlaugsson, fyrrverandi söngmálastjóri þjóðkirkjunnar – 90 ára
Ljósmynd/Kristinn Snær Agnarsson
Hjónin Haukur og Grímhildur bjuggu lengi á Akranesi en búa nú á Laufásvegi í Reykjavík.
Kom í heiminn í páskamessunni
Ljósmynd/Bragi L. Hauksson
Organistinn Haukur við orgelið á Eyrarbakka.
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson
Við Akraneskirkju Haukur fór
flestra sinna ferða á reiðhjóli.
30 ára Hafdís er
Hornfirðingur, fædd
og uppalin á Höfn í
Hornafirði. Hún er
með BEd.-gráðu frá
menntasviði Háskóla
Íslands og er í meist-
aranámi í kennslurétt-
indum við HÍ. Hafdís er leiklistarkenn-
ari í Grunnskóla Hornafjarðar og
syngur í Kvennakór Hornafjarðar
Maki: Ægir Olgeirsson, f. 1989, sjó-
maður á Þóri SF hjá Skinney-
Þinganesi.
Börn: Gísli Ólafur, f. 2010, og Móeiður
Björk, f. 2020.
Foreldrar: Haukur Reynisson, f. 1956,
lagermaður hjá Skinney-Þinganesi, og
Erna Gísladóttir, f. 1959, grunnskóla-
kennari.
Hafdís Hauksdóttir
Til hamingju með daginn
Höfn í Hornafirði Móeiður Björk
Ægisdóttir fæddist 24. mars 2020 á
Landspítalanum. Hún vó 3.474 g og
var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru
Hafdís Hauksdóttir og Ægir Olgeirs-
son.
Nýr borgari
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.