Morgunblaðið - 03.04.2021, Page 32

Morgunblaðið - 03.04.2021, Page 32
HÁSKÓLAÍÞRÓTTIR Gunnar Valgeirsson Los Angeles Fjögurra liða úrslit karla og kvenna í bandaríska háskólakörfuknatt- leiknum hefjast í dag og verða úr- slitaleikirnir sjálfir á mánudags-og þriðjudagskvöld. Segja má að þessir leikir fari fram um leið og kröfur um breytingar á réttindum íþróttafólks- ins séu nú í brennidepli. Bandarískar skólaíþróttir eru mun stærri hluti af íþróttaheiminum hér í landi en í öðrum löndum, þar sem fé- lagsíþróttir skipa mestan sess. Stór hluti barna- og unglingaíþrótta fer fram í skólunum og endar í háskóla- íþróttunum, en þar er keppnin í vin- sælustu liðsíþróttunum efnahagslega á borð við stóru atvinnudeildirnar. Upphaflega voru þessar háskóla- íþróttir skipulagðar og reknar af stúdentum, en eftir þó nokkur dauðs- föll í ruðningsíþróttinni í upphafi 20. aldar, ákváðu stjórnendur skólanna að ekki væri lengur hægt að treysta stúdentunum fyrir keppninni. Þeir stofnuðu sérstakt íþróttasamband háskólanna árið 1911 – NCAA – og síðan þá hefur það samband aukið völd sín við að stjórna allri keppni, þar á meðal lífi íþróttafólksins sjálfs í smáatriðum. Peningarnir ráða stjórnun Í gegnum áratugina hefur keppnin í háskólaíþróttunum orðið æ stærri í sniðum, sérstaklega eftir að alrík- isstjórnin í Washington samþykkti nýja menntalöggjöf 1972, sem bann- aði mismunun varðandi kyn og kyn- þætti. Um leið og sú löggjöf varð að veruleika hófust hundruð lögsókna gegn gagnfræða- og háskólum, sér- staklega varðandi keppni og skipulag stúlkna- og kvennaíþrótta. Afleið- ingin varð sú að sprenging varð í þátttöku kvenna og afraksturinn af því sést best á árangri bandaríska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, og árangri bandarískra kvenna á tvenn- um síðustu Ólympíuleikum, en á þeim unnu konurnar fleiri verðlaun en karlarnir. Þrátt fyrir þessar framfarir hefur gagnrýni á NCAA aukist, mest- megnis vegna kerfis sem sífellt verð- ur erfiðara og erfiðara að verja. Vegna aukinna sjónvarpstekna, sérstaklega í ruðningi og körfuknatt- leik undanfarna þrjá áratugi, hafa ákvarðanir NCAA verið álitnar spilltar af streymi peningaflæðisins frá sjónvarpsstöðvum og styrkja fyr- irtækjum. Svo virðist sem allar ákvarðanir NCAA ráðist af því að gera tekjustrauminn ánægðan – oft- ast á kostnað íþróttafólksins. Segja má að um tvenns konar íþróttir sé að ræða í háskólunum. Annars vegar íþróttir sem skapa tekjur – til að mynda sjónvarpspen- inga, áhorfendatekjur, tekjur frá styrktarfyrirtækjum (körfubolti, ruðningur) – og hins vegar íþróttir sem aðeins kosta pening (frjálsar, golf, glíma). Flest vandamálin í há- skólunum snúast um fyrri hópinn – peningaíþróttirnar svokölluðu. Óverjanlegt arðrán Rétt eins og ólympíuíþróttafólk var um áratugi skilgreint sem áhuga- fólk, skilgreinir NCAA háskóla- íþróttafólkið sem áhugafólk og fram- fylgir sambandið síðan ströngum lögum um merkingu þess. Það gefur út 400 síðna bók árlega með hundr- uðum reglna um hvað íþróttafólkið megi og hvað ekki. Þessi skilgreining á áhuga- mennsku er það sem erfitt er að verja í nútímaþjóðfélagi. Reglur NCAA banna aðeins íþróttafólkinu sjálfu að vinna sér inn peninga, en engum öðrum, þar á meðal þjálf- urum. Sambandið hefur í áratugi haldið því fram að námsstyrkirnir sem íþróttafólkið fái frá háskólunum séu næg þóknun. Þessar reglur gera einnig íþróttafólkinu erfitt að skipta um skóla, jafnvel þótt þjálfararnir sem fengu það til að koma til skólans hafi ákveðið að yfirgefa hann – venjulega fyrir meiri peninga annars staðar. Þótt þessar reglur hafi kannski átt við fyrir öld, er ljósara með hverjum degi að í öllu því peningastreymi sem kerfið býr til – mestmegnis með hjálp svartra leikmanna í tveimur vinsælustu íþróttunum – er ekki hægt að verja þá skoðun að náms- styrkirnir einir séu næg þóknum. Í núverandi kerfi er öllum leyft að vinna sér inn eins miklar tekjur og þeir geta, nema íþróttafólkinu. Aukin vitund Undirritaður hefur fylgst náið með þessum málum, fyrst í fram- haldsnámi í íþróttafélagsfræði og síðan í kennslu í því fagi undanfarna þrjá áratugi hér í háskólum í Kali- forníu. Vitundin um þetta arðrán NCAA á íþróttafólkinu hefur verið umrædd í ritum félagsvísindafólks og meðal íþróttafréttamanna um áratugi, en hún er nú orðin mun út- breiddari meðal almennings. Tvennt kemur þar til. Fréttir af ótrúlegum launum þjálfara í vinsæl- ustu íþróttum háskólanna, sem fylgt hafa auknum tekjustraumi, hafa fengið marga aðdáendur háskóla- íþróttanna til að hugsa um þessi mál. Tilkoma samfélagsmiðla hefur síðan leitt til þess að íþróttafólkið sjálft er farið að vera óhræddara við að láta til sín heyra með gagnrýni á fram- komu NCAA gagnvart réttindum þess sem þjóðfélagsþegna. Sumt af þessu fólki á milljónir af fylgjendum á samfélagsmiðlum, án þess að það geti nýtt þær vinsældir til að skapa sér tekjur. Til að mynda hafa fimleikakonur UCLA-háskólans hér í bæ orðið geysivinsælar bæði á Instagram og Tik Tok vegna frábærrar framkomu á fimleikamótum, en ef þær myndu taka svo mikið sem einn dal í auglýs- ingatekjur, myndu þær samstundis brjóta áhugamannareglur NCAA og þar með myndi allt liðið verða sent í langt bann af sambandinu. Yfirhöfuð skaða þessar reglur konur mun meira en karla, þar sem þær eru mun ólíklegri til að geta unnið sér inn háar fjárhæðir í at- vinnumennsku síðar. Þær geta því ekki unnið sér inn tekjur af hæfni sinni þegar vinsældir þeirra eru mestar. Fyrir flesta þá sem heyra slíkt í dag, virðast þetta vera fáránlegar reglur, sérstaklega þegar tillit er tekið til þess að öllum öðrum hópum sem koma beint eða óbeint að há- skólaíþróttunum er leyft að skapa sér eins miklar tekjur og hver getur. Allir nema þeir sem allt hafurtaskið snýst í kringum og búa til apparatið sem býr til tekjurnar. Lögsóknir fyrir Hæstarétt Undanfarin ár hafa nokkrir leik- menn í ruðningnum og körfuknatt- leiknum farið í mál við NCAA, og hefur fyrsta lögsóknin þegar komist alla leið til Hæstaréttar í Wash- ington. Á miðvikudag var fyrsta mál- ið tekið fyrir, en í því er NCAA sakað um að brjóta samkeppnislög frá 1890 sem banna einokun á markaði. Í lög- sókninni er bent á að þrátt fyrir að skólum sé leyft að keppa um þjálfara með því að bjóða þeim eins mikla peninga og önnur hlunnindi og þeir þora, sé slíkt bannað þegar komi að stúdentum. Slíkt samkomulag skól- anna sé því í andstöðu við samkeppn- islög. Í framsögu lögfræðings NCAA fyrir réttinum, rökræddi hann að þar sem almenningur sem hefur áhuga á háskólaíþróttum vildi ekki að íþróttafólkinu yrði borgað fyrir æf- ingar og keppni umfram skólastyrk- inn, ætti sambandið þar með ekki að borga því. Þetta væri hluti af „menn- ingu“ háskólaíþróttanna eins og hann orðaði það. Eftir þá framsögu voru það mest íhaldssamari dómararnir sem virtust svartsýnir á þessa kenningu sam- bandsins. Brett Kavanaugh hafði til dæmis á orði: „Sambandið ætti ekki að vera að nota samkeppnislögin til að arðræna stúdenta. Fyrir mér lítur út fyrir að skólarnir hér séu í sam- særi sín á milli að greiða engin laun hér til fólksins, sem er að vinna inn milljarða í tekjur í þessu kerfi, allt eftir þeirri kenningu að neytend- urnir vilji ekki að þeim séu greidd laun. Það virðast mér vera hringrök og það truflar mig.“ Aðrir dómararnir virtust hins veg- ar vera svartsýnni á að nota völd réttarins til að breyta reglum há- skólaíþróttanna, sem þeir sögðu hafa ólíka hefð miðað við atvinnuíþróttir. Þeir virtust hræddir um að úrskurð- ur dómstólsins gæti haft ófyrirsjáan- legar afleiðingar sem gætu eyðilagt núverandi kerfi og þannig skapað enn meiri samkeppni um besta íþróttafólkið. Að auki voru þeir einn- ig hræddir um að dómur hliðhollur lögsókninni gæti haft afleiðingar fyr- ir aðra geira, sérstaklega tölvu- og netgeirann. Önnur mál varðandi rétt háskóla- stúdenta til að vinna sér inn auglýs- ingatekjur eru einnig á leið til Hæstaréttar. Þar gætu dómararnir haft aðra skoðun. Loks er að geta þess að stjórn- málafólk í báðum flokkum hefur brugðist við þessari auknu vitund á málinu með því að samþykkja lög um aukin réttindi íþróttafólksins í sínum eigin fylkjum. Slík lög munu hins vegar ekki ganga til langframa og hafa því þingmenn í Washington tek- ið upp málið og má búast við að alrík- isþingið muni einfaldlega draga NCAA-sambandið grátandi inn í 21. öldina. gval@mbl.is Ekki hægt að verja kerfið mikið lengur - NCAA heimilar ekki greiðslur til íþróttafólksins sem skapar tekjurnar AFP NCAA Leikmenn UCLA-háskólans frá Kaliforníu fagna sigri í úrslitakeppni háskólakörfuboltans sem nú stendur yfir í Indianapolis. 32 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. APRÍL 2021 England B-deild: Millwall – Rotherham ............................. 1:0 - Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill- wall á 73. mínútu. Bournemouth – Middlesbrough.............. 3:1 Bristol City – Stoke.................................. 0:2 Derby – Luton .......................................... 2:0 Preston – Norwich ................................... 1:1 QPR – Coventry ....................................... 3:0 Watford – Sheffield Wed ......................... 1:0 Wycombe – Blackburn............................. 1:0 Barnsley – Reading.................................. 1:1 Birmingham – Swansea ........................... 1:0 Staða efstu liða: Norwich 39 25 9 5 57:28 84 Watford 39 23 9 7 56:26 78 Swansea 38 20 9 9 45:30 69 Brentford 37 19 11 7 65:39 68 Barnsley 39 19 8 12 50:43 65 Reading 39 18 9 12 53:42 63 Bournemouth 38 17 11 10 58:38 62 Cardiff 39 16 10 13 55:38 58 Middlesbrough 39 16 8 15 47:42 56 Millwall 39 13 16 10 39:36 55 Stoke 39 14 13 12 44:42 55 QPR 38 14 11 13 42:43 53 C-deild: Swindon – Blackpool............................... 0:2 - Daníel Leó Grétarsson lék fyrstu 77 mínúturnar með Blackpool. D-deild: Port Vale – Exeter .................................. 1:0 - Jökull Andrésson varði mark Exeter. Meistaradeild kvenna 8-liða úrslit, seinni leikur: Rosengård – Bayern München .............. 0:1 - Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn með Rosengård. - Karólína Lea Vilhjálmsdóttir kom inn á hjá Bayern á 57. mínútu. _ Bayern áfram, 4:0 samanlagt. Svíþjóð Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Hammarby – Trelleborg ........................ 3:2 - Jón Guðni Fjóluson lék fyrstu 64 mín- úturnar með Hammarby sem mætir Djurg- ården í undanúrslitum. Sigurliðið þar leik- ur til úrslita við Häcken. Ítalía B-deild: Brescia – Pordenonne............................. 4:1 - Birkir Bjarnason kom inn á hjá Brescia á 80. mínútu, Hólmbert Aron Friðjónsson sat á varamannabekknum. Venezia – Reggina................................... 0:2 - Óttar Magnús Karlsson kom inn á hjá Venezia á 76. mínútu, Bjarki Steinn Bjarkason var ekki í leikmannahópnum. _ Efstu lið: Empoli 59, Lecce 55, Monza 51, Salernitana 51, Venezia 49, SPAL 46, Citta- della 45, Chievo 45, Brescia 42, Vicenza 41, Pisa 40. Holland B-deild: Excelsior – Jong PSV.............................. 0:0 - Elías Már Ómarsson lék allan leikinn með Excelsior. - Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á hjá Jong PSV á 63. mínútu. 4.$--3795.$ Meistaradeild karla 16-liða úrslit, fyrri leikur: Elverum – Barcelona .......................... 25:37 - Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir Barcelona. Porto – Aalborg................................... 32:29 - Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Motor Zaporozhye – Meshkov Brest.. 32:30 Vardar Skopje – Veszprém ................. 27:41 Celje Lasko – París SG........................ 24:37 Þýskaland Melsungen – RN Löwen...................... 25:26 - Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyr- ir Melsungen. Guðmundur Þ. Guðmunds- son er þjálfari liðsins. - Ýmir Örn Gíslason skoraði eitt mark fyr- ir Löwen. Balingen – Nordhorn .......................... 35:24 - Oddur Gretarsson skoraði 4 mörk fyrir Balingen. Staða efstu liða: Flensburg 34, Magdeburg 34, RN Löwen 34, Kiel 33, Göppingen 29, Bergischer 27, Füchse Berlín 27, Melsungen 23. Frakkland B-deild: Nice – Séléstat ..................................... 34:23 - Grétar Ari Guðjónsson varði 13 skot í marki Nice. Nancy – Pontault................................. 26:33 - Elvar Ásgeirsson skoraði 5 mörk fyrir Nancy. Svíþjóð 8-liða úrslit, fjórði leikur: Alingsås – Skövde ............................... 21:26 - Aron Dagur Pálsson lék ekki með Al- ingsås vegna meiðsla. - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði ekki fyrir Skövde. _ Skövde vann einvígið 3:1. %$.62)0-# ÍR-ingurinn Elísabet Rut Rúnars- dóttir setti nýtt Íslandsmet í sleggjukasti á vetrarkastmóti í Laugardalnum í gær. Elísabet kastaði 64,39 metra og bætti þar Íslandsmet Vigdísar Jóns- dóttur úr FH frá því á síðasta ári. Þær hafa skipst á metinu und- anfarið en þetta er í annað sinn sem Elísabet slær met Vigdísar. Með kastinu í gær er Elísabet bú- in að ná lágmarkinu fyrir Evr- ópumeistaramót U20 og U23 og einnig fyrir heimsmeistaramót U20. Nýtt Íslandsmet í sleggjukasti Ljósmynd/FRÍ Sleggja Elísabet Rut Rúnarsdóttir setti nýtt met í Laugardalnum. Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur tilkynnt að hægri hornamað- urinn Starri Friðriksson sé búinn að framlengja samning sinn við fé- lagið. Nýi samningurinn rennur út sumarið 2024. Starri er uppalinn Stjörnumaður og hefur leikið með félaginu alla tíð. Hann hefur spilað alla 15 leiki Stjörnunnar í Olísdeildinni á tíma- bilinu og skorað í þeim 45 mörk, þar af níu mörk gegn KA í 32:27- sigri Stjörnunnar fyrir norðan rétt áður en keppni var frestað í síðasta mánuði. Stjörnumaður framlengir Morgunblaðið/Eggert Uppalinn Starri Friðriksson hefur alla tíð spilað með Stjörnunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.