Morgunblaðið - 06.04.2021, Qupperneq 4
ELDGOS Á REYKJANESSKAGA4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021
Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
LKINUGEFÐU
DAGAMUN
Rafn Valur Alfreðsson og Hjalti
Jón Pálsson voru staddir um 200-
300 metra frá sprungunni sem
opnaðist í Geldingadölum í gær.
Þeir félagar höfðu farið þar á
fjallahjólum rétt áður en sprungan
opnaðist.
„Það kom björgunarsveitarbíll á
móti okkur á fullri ferð. Við vor-
um bara rétt búnir að stoppa áður
en við ætluðum upp síðustu brekk-
una, sem er dálítið brött. Þá kom
hann bara niður á milljón og allir
gasmælar í botni og okkur sagt að
verið væri að rýma svæðið,“ segir
Rafn í samtali við mbl.is. Þá hjól-
uðu þeir um hálfan kílómetra upp
á hæð og sáu gufustrókana og
hraunið flæða upp rétt við slóðann
sem þeir höfðu hjólað nokkrum
mínútum áður.
Rafn segir þá hvorki hafa heyrt
né séð sprunguna opnast. Þeir
sögðust ekki heldur hafa fundið
fyrir mikilli hræðslu heldur fund-
ist þessi upplifun mjög skemmti-
leg. Þeir hefðu dregið það á lang-
inn að fara og skoða eldgosið og á
endanum næstum því lent í gos-
inu. sonja@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sprunga Ný sprunga myndaðist við gosstöðvarnar í Geldingadölum í gær.
Voru um 200-300
metra frá sprungunni
Að öllum líkindum verður dregið úr
vöktun og viðveru björgunarsveita
við eldstöðvarnar í Geldingadölum nú
að loknum páskum. Eldgosið hófst
19. mars og síðan þá hefur verið stöð-
ug gæsla á svæðinu. Björgunarsveit-
armenn hafa vísað fólki veginn, stað-
ið við lokunarpósta og aðstoðað fólk
sem lent hefur í vanda; slasast, of-
kælst eða örmagnast. Þetta segir Þór
Þorsteinsson, formaður Slysavarna-
félagsins Landsbjargar.
„Hvernig fyrirkomulagið verður er
í höndum Lögreglustjórans á Suður-
nesjum. Allar ákvarðanir þarf að
taka eftir framvindu og þróun eld-
gossins, sem getur breyst skyndilega
samanber nýjustu fréttir,“ sagði Þór
þegar Morgunblaðið ræddi við hann í
eftirmiðdaginn í gær. Þá hafði stundu
fyrr opnast ný sprunga nærri Geld-
ingadölum.
Okkar fólk staðið sig afar vel
„Að björgunarsveitarmenn hafi
verið á svæðinu hefur klárlega breytt
miklu,“ segir Þór. „Núna þegar gosið
hefur staðið vel á þriðju viku er lík-
legt að umferð gangandi fólks um
svæðið fari að dragast saman, að
minnsta kosti á virkum dögum. Við
munum auðvitað reyna að standa
okkar plikt eins lengi og þess er ósk-
að og við eigum ennþá talsvert inni.
Þetta gos getur
hins vegar staðið
lengi og allt
skipulag verður
að taka mið af
þeirri sviðs-
mynd.“
Síðustu vikur
hafa 30-40 björg-
unarsveitarmenn
verið á og við gos-
svæðið. Mann-
skapur þessi - með bíla, fjórhjól,
dróna og fleiri tæki - hefur komið af
öllu landinu, rétt eins og skipulag
gerir ráð fyrir þegar umfangsmikil
verkefni koma upp. Fyrir gæslu á
svæðinu, sé vakt staðin í 72 klukku-
stundir eða lengur, fá björgunar-
sveitirnar sem verkefninu sinna
greitt tímagjald úr opinberum sjóð-
um skv. samkomulagi frá 2016 milli
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
og almannavarnadeildar Ríkislög-
reglustjóra. Sjálfur hefur Þór tekið
þátt í verkefnum sem vettvangsstjóri
aðgerða.
„Nú er mikilvægt að minnka lang-
varandi álag á björgunarsveitunum á
Suðurnesjum. Mannskapurinn í Þor-
birni í Grindavík og aðrar sveitir hafa
staðið sig afar vel síðustu vikurnar og
raunar allt okkar fólk,“ segir Þór.
sbs@mbl.is
Mikilvægt er að
minnka álagið
- Björgunarmenn komið af öllu landinu
Þór
Þorsteinsson
Morgunblaðið/ Íris Jóhannsdóttir
Eldgos Björgunarsveitarmenn við gossprunguna sem myndaðist í gær.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Eldgosið í Fagradalsfjalli á Reykja-
nesskaganum tók nýja stefnu um
hádegisbil í gær þegar tvær nýjar
gossprungur mynduðust um hálfan
kílómetra norð-
austan við gígana
tvo í Geldingadöl-
um. Sprungurnar
eru 100 til 200
metra langar og
frá þeim rennur
hraðskreið
hraunelfur, sem
er um 5 til 6 rúm-
metrar á sek-
úndu, niður í svo-
nefnda Meradali. Flugmenn sem
voru á sveimi yfir gosstöðinni urðu
þess fyrstir varir hvað væri að ger-
ast og létu vita. Lögregla og björg-
unarsveitir fóru þá strax í að rýma
svæðið, þar sem nokkur fjöldi fólks
var á göngu.
Framrás til yfirborðsins
á nýjum stað
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur
segir í samtali við Morgunblaðið at-
burðarás gærdagsins ekki þurfa að
koma á óvart. Með sífellt meiri og
þungum hraunmassa í Geldingadöl-
um hækki vökvaþrýstingur í gíg-
unum þar. Við slíkar aðstæður sé
eðlilegt að nýr kvikugangur brjótist
út til hliðar frá gosrásinni sem fyrir
er. Hraunið nú komi upp í sprung-
um sem fyrir voru í jörðinni og sést
hafði djarfa fyrir á síðustu dögum.
„Krafturinn í gígunum tveimur í
gígkeilunni í Geldingadölum er mun
minni en áður og virðist að tals-
verðu leyti kominn í nýju sprung-
urnar. Þessari framvindu svipar að
nokkru leyti til þess sem gerðist í
Kröflugosunum, sem hófust árið
1975 og urðu alls níu. Í fjórum þeim
fyrstu gaus fyrst af talsvert miklum
krafti, en síðan fékk kvikan framrás
neðanjarðar svo gosin hættu nokk-
uð snögglega. Núna er munurinn sá
að kvikan fær framrás til yfirborðs-
ins á nýjum stað,“ segir Páll.
Þróun atburða í
eðlisfræðilegum lögmálum
Yfirstandandi umbrot á Reykja-
nesskaga hófust í desember 2019.
Síðan þá hefur mælst aragrúi af
jarðskjálftum á svæðinu milli
Reykjaness og Kleifarvatns, meira
en 700 þeirra af stærðinni 3 og
stærri, þar af 73 stærri en 4. Mælst
hafa 4-5 kvikuinnskot á þessu um-
brotatímabili, hið síðasta náði til
yfirborðs í Geldingadölum þegar
eldgosið hófst þar 19. mars síðast-
liðinn. Umbrotin hafa verið kafla-
skipt.
„Hver kafli hingað til hefur rekið
annan og umbrotin hafa alltaf verið
að aukast eða sækja í sig veðrið,“
segir Páll Einarsson. „Þróun at-
burða mætti í rauninni skilja út frá
eðlisfræðilegum lögmálum, þegar
litið er til baka, þótt erfitt sé að
beita þeim til að segja eða spá fyrir
um framhaldið. Ekkert sem gerst
hefur hingað til er algjörlega á
skjön við fræðin. Satt að segja hefur
þróun þessara hræringa á Suður-
nesjum verið, frá einum kafla til
annars, eins og spennusaga sem enn
hefur ekki náð hámarki.“
Spennusagan hefur
ekki náð hámarki
- Eldgosið og jarðskjálftarnir hafa fylgt lögmáli og fræðum
Stóri-Hrútur
Borgar-
fjall
N
át
th
ag
i
Nátthaga-
kriki
Fagradals-
fjall
Suður
strandarvegur
Meradalir
Nýjar gossprungur
norðan við Geldingadali
Geldingadalir
Gossprunga
Hraun
Stikaðar gönguleiðir
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Hraun úr gos-
sprungunum rennur
austur í Meradali
Páll Einarsson