Morgunblaðið - 06.04.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 06.04.2021, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021 „Sóttvörnum hér á Tenerife er sinnt svo til mikillar fyrirmyndar er. Staðan er góð,“ segir Þórunn Reynisdóttir, forstjóri Úrvals Út- sýnar. Í síðustu viku fóru tvær vélar Icelandair til Kanaríeyja með farþega ferðaskrifstofunnar en áætla má að nú séu á svæðinu á bilinu 700-800 Íslendingar, sem flestir dveljast einmitt á Tenerife. Þar ræðir um fólk sem hefur kom- ið á svæðið bæði á eigin vegum og í skipulögðum ferðum. Flestir dveljast á hótelum, en margir leigja sér líka annars konar hús- næði. Borðin utandyra Við innritun á hótelin á Tenerife þurfa gestir að sýna sóttvarna- vottvorð, ekki eldra en þriggja sólarhringa, sem staðfestir að þeir séu án veiru. Einnig er fólk hita- mælt, sé talin ástæða til. „Hótelin eru í góðu samstarfi við heilbrigðisþjónustuna. Læknar og hjúkrunarfræðingar koma oft á staðinn og ganga úr skugga um að allt sé í lagi. Fyrir heimför getur fólk tekið próf á hótelinu til að sýna landamæravörðum við heim- komuna til Íslands,“ segir Þórunn og heldur áfram: „Annars er fyrirkomulag sóttvarna hér svipað og gerist heima. Grímu- notkun er al- menn regla, spritt og hand- þvottur og tveggja metra fjarlægðar- reglan. Á veit- ingastöðum mega ekki fleiri en fjórir sitja við borð sem öll eru ut- andyra. Slíkt er líka bara gott, því síðustu daga hefur verið hér 20-25 stiga hiti og aðstæður allar hinar bestu. Golfvellir eru opnir, sund- laugar og fleira slíkt. Ekki hááhættusvæði Nokkuð er síðan Kanaríeyjar voru teknar af lista sem há- áhættusvæði vegna kórónuveir- unnar, enda er staðan þar mun betri en til dæmis á meginlandi Spánar og í Mið-Evrópu. Þar kemur til, að mati Þórunnar, að sóttvörnum hefur verið sér- staklega vel sinnt á Kanaríeyjum, meðal annars með tilliti til þess hve þýðingarmikil ferðaþjónustan á svæðinu er. sbs@mbl.is Gestir stundum hitamældir á hóteli - Sóttvarnir í sól - Hundruð Íslend- inga á Tenerife - Veiran er ekki vandi Ljósmynd/Aðsend Tenerife Horft frá sundlaug út yfir garðinn og að hótelum úti við ströndina. Þórunn Reynisdóttir Gunnhildur Sif Oddsdóttir Alexander Gunnar Kristjánsson Alls greindust sjö með Covid-19 innanlands síðustu helgi. Þrjú smit- anna greindust utan sóttkvíar og þar af leiðandi voru fjórir þeirra smituðu í sóttkví. Samkvæmt upp- lýsingum frá Almannavörnum greindust fjögur smit á laugardag- inn 3. apríl og á páskadag, 4. apr- íl, greindust þrjú smit. Annar þeirra sem greindist utan sóttkvíar á laug- ardaginn var á leið úr landi og fór því í PCR- próf sem reynd- ist síðan jákvætt. Auk innanlands- smitanna greindist eitt smit á landamærunum bæði á laugardag og sunnudag. Þá var nýgengi veir- unnar innanlands í gær um 23,3. Vegna þeirra samkomutakmark- ana sem nú eru í gildi fara færri í sóttkví þegar smit koma upp en áð- ur. Kemur í ljós þegar nær dregur Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá Almannavörn- um, sagði í samtali við blaðamann í gær að þróun faraldursins yrði að leiða í ljós hvort slakað verði á sótt- varnareglum innanlands þann 15. apríl þegar núgildandi reglugerð fellur úr gildi. Það væri ekki hægt að segja til um það á þessum tíma- punkti. „Það er bara eitthvað sem verður að koma í ljós þegar nær dregur. Við sjáum það í lok vikunnar hvern- ig við komum undan páskunum, jafnvel á næstu tveimur vikum,“ sagði Rögnvaldur. Eins og áður segir greindust ein- ungis þrjú smit utan sóttkvíar á laugardag og sunnudag. Rögnvald- ur sagði jákvætt að faraldurinn hefði ekki náð að breiðast meira út en bætti þó við að það væri alltaf áhyggjuefni þegar fólk greinist utan sóttkvíar. „Ekki þægileg staða“ „Þetta er allavega ekki þægileg staða þegar við erum enn að greina smit utan sóttkvíar. Þá er það vís- bending um að það séu smit sem við erum ekki búin að finna. Það er allt- af betra þegar við erum búin að finna öll smit,“ sagði Rögnvaldur. Hann sagði það hafa gengið upp og ofan að rekja smit síðustu daga en sagði þó að í flestum tilvikum hefði gengið vel að finna þá sem hafa verið í kringum viðkomandi. Verr hafi gengið að finna uppruna smitanna í einhverjum tilvikum, en raðgreining hjálpi oft mikið til, því þá finnist tengingar sem ekki voru augljósar. Þá hafði Rögnvaldur ekki upplýs- ingar í gær um það hvaða afbrigði veirunnar hafa verið að greinast undanfarna daga en hið svokallaða breska afbrigði hefur verið ríkjandi undanfarnar vikur. Smit utan sóttkvíar alltaf áhyggjuefni Rögnvaldur Ólafsson. - Ekki tímabært að segja til um tilslakanir á reglum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sýnataka Sjö smit greindust innanlands um helgina, fjögur á laugardag og þrjú á sunnudag. Þrjú þeirra greindust utan sóttkvíar. Karlmaður lést á laugardaginn á Landspítala af áverkum sem hann hlaut þegar ráðist var á hann fyrir utan heimili hans í Kópavogi á föstu- dag. Maðurinn hét Daníel Eiríksson og var fæddur árið 1990. Maður á þrítugsaldri var á sunnu- dag úrskurðaður í Héraðsdómi Reykjaness í fimm daga gæsluvarð- hald í tengslum við rannsókn lög- reglu á andláti mannsins. Þrír voru handteknir í tengslum við málið en tveimur hefur nú verið sleppt úr haldi. Maðurinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald segir andlátið hafa verið slys. Margeir Sveinsson, yfirlögreglu- þjónn hjá lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu, sagði í samtali við mbl.is á sunnudag að málið sé hins vegar ekki rannsakað sem slys, heldur manndráp. Rannsóknin snúi fyrst og fremst að því að komast að því hvernig maðurinn hlaut þá áverka sem leiddu til andláts. Lögreglan vildi ekki tjá sig um málið í gær. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lögregla Þrír voru handteknir í tengslum við málið en tveimur hefur verið sleppt úr haldi. Málið er ekki talið tengjast skipulagðri glæpastarfsemi. Andlátið rannskað sem manndráp

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.