Morgunblaðið - 06.04.2021, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021
INXX II
Glæsilegasta lína okkar til þessa.
INXX II
BLÖNDUNARTÆKI
Brushed brass
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
6. apríl 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.31
Sterlingspund 173.79
Kanadadalur 100.18
Dönsk króna 19.913
Norsk króna 14.818
Sænsk króna 14.466
Svissn. franki 133.78
Japanskt jen 1.1406
SDR 178.97
Evra 148.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.8939
Hrávöruverð
Gull 1715.85 ($/únsa)
Ál 2212.5 ($/tonn) LME
Hráolía 63.12 ($/fatið) Brent
« Reuters greinir
frá að á mánudag
hafi samanlagt
markaðsvirði allra
rafmynta á markaði
farið yfir 2.000
milljarða dala mark-
ið og hafi aldrei verið hærra.
Samkvæmt mælingu CoinGecko og
Blockfolio myndar bitcoin langstærstan
hluta af rafmyntahagkerfinu og er sam-
tals um 1.100 milljarða dala virði. Þar á
eftir kemur ethereum með samanlagt
markaðsvirði upp á 244 milljarða dala.
Það sem af er þessu ári hefur bitcoin
hækkað í verði um 100% en ethereum
um nærri 190%. ai@mbl.is
Rafmyntir orðnar 2.000
milljarða dala virði
STUTT
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Hér á landi eru hafnar fyrstu tilraun-
ir með þjálfun starsfólks með aðstoð
sýndarveruleika. Það er ráðgjafar-
og fræðslufyrirtækið Gerum betur
sem stendur að verkefninu og er
fyrsta útgáfa sýndarveruleikanáms-
efnisins til þess gerð að æfa af-
greiðslufólk í samskiptum við erfiða
viðskiptavini.
Margrét Reynisdóttir, eigandi
Gerum betur, segir sýndarveruleika
þegar hafa gefið
góða raun við
starfsmanna-
þjálfun erlendis
og geti gjörbreytt
aðferðum fyrir-
tækja við þjálfun
á sviði þjónustu.
„Wal-Mart-versl-
anakeðjan notar
svipaða tækni
með mjög góðum
árangri til að
þjálfa milljón starfsmenn sína um öll
Bandaríkin. Hafa erlendar mælingar
leitt í ljós að með þessari aðferð lærir
starsfólk fjórum sinnum hraðar en ef
kennt væri með hefðbundnum hætti í
kennslustofu. Þá öðlast þau margfalt
meira sjálfsöryggi í samskiptum við
viðskiptavini.“
Stýra atburðarásinni
Í þjálfuninni er hermt eftir þrem-
ur kunnuglegum aðstæðum sem
kunna að koma upp í þjónustustörf-
um: reiðum viðskiptavini, ósáttum
viðskiptavini og viðskiptavini sem er
orðinn ergilegur eftir að hafa ekki
verið sinnt. Tekur um 10-20 mínútur
að fara í gegnum sviðsmyndirnar
þrjár. Framleiðsla þjálfunarefnisins
var í höndum Árna Rúnars Hrólfs-
sonar hjá Ár films en hópur leikara
túlkar erfiðu viðskiptavinina. Í lok
hverrar æfingar þarf starfsmaður-
inn, sem upplifir sig sem þátttak-
anda í atburðarásinni, að velja rétt
viðbrögð við þeim aðstæðum sem
hafa skapast í sýndarveruleikanum.
Að æfingu lokinni fær starfsmaður-
inn síðan endurgjöf í samræmi við
frammistöðu sína.
Sviðsmyndirnar sem sýndarveru-
leikaþjálfunin tekur fyrir urðu fyrir
valinu vegna þess einmitt að þar
reynir sérstaklega á fimi í mannleg-
um samskiptum og getur verið mjög
krefjandi fyrir þann starfsmann sem
í hlut á. „Þetta eru tilvik sem óhjá-
kvæmilegt er komi upp og þegar það
gerist getur það haft veruleg áhrif á
ánægju viðskiptavina sem og starfs-
andann og jafnvel dregið dilk á eftir
sér í marga daga eða vikur,“ útskýrir
Margrét.
Eins og að vera á staðnum
Sýndarveruleikinn hefur ótal
kosti, að sögn Margrétar. Tæknin
þjálfar m.a. virka hlustun, samvinnu,
samskipti, frumkvæði og skapandi
nálgun við lausn vandamála. „Þegar
fólk setur á sig sýndarveruleikagler-
augun kallar það fram þá upplifun að
viðkomandi sé staddur í þessum
krefjandi aðstæðum, sem fela í sér
sérstaka áskorun við útfærslu þjón-
ustunnar,“ segir Margrét. „Það er
undir starfsmanninum komið að
velja rétt viðbrögð og hann fær að
upplifa bæði hvað gerist ef farin er
rétt leið og málið leyst farsællega, en
líka hvað gerist ef röng leið verður
fyrir valinu.“
Sýndarveruleiki hefur einnig þann
kost að hann fangar alla athygli
fólks: „Það er sammerkt með þeim
sem hafa farið í gegnum sviðsmynd-
irnar þrjár að þeim þykir þjálfunin
áhrifarík og jafnframt skilja þau
mjög vel hversu óþægilegt það getur
verið að lenda í þeim kringumstæð-
um sem verið er að æfa.“
Margrét mælir með að tvinna
saman sýndarveruleikaþjálfun og
aðrar kennsluaðferðir og segir m.a.
skipta miklu máli fyrir starfsfólk að
fá að vinna úr því sem það fékk að
upplifa í sýndarveruleikanum, og
ræða um hvernig því leið á meðan.
„Því fylgir eðlilega mikið álag að fást
við erfiðan viðskiptavin og getur t.d.
framkallað líkamleg viðbrögð eins og
örari hjartslátt eða spennu í jöxlum,“
segir Margrét og bætir við að þau
sem hafa farið í gegnum sýndarveru-
leikaþjálfun Gerum betur hafi upp-
lifað þessi líkamlegu streituviðbrögð.
„Að ræða upplifunina þýðir líka að
fólk á auðveldara með að beita þeirri
þekkingu sem það öðlaðist í herm-
inum. Þjálfunarefni sýndarveruleik-
ans kveikir sterkar tilfinningar rétt
eins og ef fólk lenti í sams konar at-
vikum í raunheimi og festist þekk-
ingin þannig betur í minni.“
Að sögn Margrétar eru miklar
vonir bundnar við þjálfun starsfólks
með sýndarveruleikatækni. Eigi það
sérstaklega við um mannleg sam-
skipti að sýndarveruleikinn er miklu
öflugra kennslutæki en hefðbundinn
fyrirlestur með glærum. „Að leysa
rétt úr svona kringumstæðum er
eitthvað sem varla er hægt að læra
með því að lesa bók en sýndarveru-
leikinn er það sem kemst næst því að
fá að upplifa krefjandi aðstæður í
eigin persónu, og læra t.d. að glíma
við þá miklu streitu sem þessar
kringumstæður geta skapað.“
Meira í vændum
Margrét bendir á að þjálfun með
þessu nýja formi henti ekki bara
starfsfólki í verslunum og almennum
þjónustustörfum heldur öllum þeim
sem þurfa að eiga í beinum samskipt-
um við viðskiptavini. Ávinningurinn
felist í auknu öryggi og sjálfstrausti
starfsfólks og ríkari fagmennsku í
starfi sem síðan skili sér í færri
kvörtunum, minnkaðri starfsmanna-
veltu, aukinni starfsánægju og síðast
en ekki síst ánægðari viðskiptavin-
um. Segja 97% þeirra sem hafa farið
í gegnum sýndarveruleikaþjálfun
Gerum betur að þau telji að þjálfunin
muni nýtast þeim í starfi.
Verður áhugvert að sjá hvernig
tæknin þróast. Gerum betur er þeg-
ar með nýtt verkefni í smíðum til að
þjálfa starfsfólk, með aðstoð sýndar-
veruleika, í að taka á móti viðskipta-
vinum frá ólíkum menningarheim-
um. „Það mætti líka nota sömu
nálgun til að æfa fólk mjög vel í að
t.d. fást við enn meira krefjandi að-
stæður, á borð við viðskiptavini sem
sýna ógnandi hegðun eða búa fólk
undir það álag sem fylgt getur ýmiss
konar neyðartilvikum eins og ráni,
eldsvoða, eða ef viðskiptavinur þarf á
skyndihjálp að halda,“ segir Mar-
grét. „Eins gæti það vel hugsast að
nota mætti sýndarveruleika til að
efla verklega kennslu af ýmsu tagi.“
Mæta erfiðum viðskiptavinum í hermi
Átök Sviðsmyndirnar þrjár felast í því að reyna að leysa farsællega úr
vanda mjög erfiðra viðskiptavina. Úr nokkrum kostum er að velja.
- Sýndarveruleikinn býður upp á mjög raunverulega upplifun og getur framkallað sterk viðbrögð
- Ákvarðanir starfsmanns stýra því hvernig atburðarásin þróast - Tæknin býður upp á ótal möguleika
Margét
Reynisdóttir
« Jákvæðar fréttir af þróun bandarísks
vinnumarkaðar og þjónustugeira urðu
til þess að helstu hlutabréfavísitölur
Bandaríkjanna styrktust um meira en
1% á mánudag.
Á föstudag sýndu nýjustu hagtölur
að í marsmánuði hefðu orðið til
916.000 ný störf í atvinnulífinu, að
landbúnaði undanskildum, og er það
langt umfram spár hagfræðinga sem
væntu 647.000 nýrra starfa að meðal-
tali. Þá virðist ríkja bjartsýni meðal fyr-
irtækja og fjárfesta um horfurnar á
komandi misserum bæði vegna þess
hve vel gengur að bólusetja Banda-
ríkjamenn gegn kórónuveiru og eins
vegna fyrirhugaðra örvunaraðgerða
ríkisstjórnar Bidens.
Um miðjan dag á mánudag, að stað-
artíma, hafði Dow Jones-vísitalan
hækkað um 1,26% og stóð í 33.569,43
stigum sem er nýtt met. Svipaða sögu
er að segja um S&P 500 sem hækkaði
um 1,45% upp í 4.077,97 stig sem er
líka met. Aðalvísitala Nasdaq hækkaði
um 1,37% framan af degi og mældist
13.664,14 stig en vantar um það bil
4% til að ná fyrra meti frá því í febrúar
síðastliðnum.
Af einstökum geirum er það að
frétta að flugfélagavísitala S&P 1500
hækkaði um 4% eftir að bandarísk
heilbrigðisyfirvöld sögðu að fullbólsettu
fólki stafaði sáralítil hætta af að fljúga.
Þá hækkaði hlutabréfaverð Tesla um
5% eftir að félagið sló met í afhend-
ingu nýrra rafmagnsbifreiða. ai@m-
bl.is
Bandarískar vísitölur
í hæstu hæðum