Morgunblaðið - 06.04.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.04.2021, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2021 Snertifletir sem draga úr smitum Kynntu þér nanoSeptic á hreint.is Auðbrekka 8 s: 589 5000 hreint@hreint.is Í Bretlandi er nú til umfjöllunar frumvarp til breytinga á hegning- arlögum. Taka skal harðar á grófum of- beldisbrotum og árás- um á þá er sinna neyð- arþjónustu en halda minni háttar brota- mönnum utan fangelsa. Einnig á lögreglan að fá meiri völd til að banna mótmæli sem valda almenn- ingi óþægindum (jafnvel eins manns mótmæli) og skemmdir á opinberum minnismerkjum skulu varða allt að 10 ára fangelsi. Í Bristol var mótmælt hressilega hinn 21.3. og var sem menn vildu sýna fram á þörfina fyrir þessi lög því mótmælendur brenndu tvo lög- reglubíla og skemmdu tíu aðra. Tuttugu lögregluþjónar meiddust og tuttugu til viðbótar slösuðust næstu daga. Ekki er á hreinu hverjir skipu- lögðu mótmælin (Extinction Rebell- ion ber það af sér) en Antífa í Bristol lýsti alténd yfir stuðningi sínum. Bristol er Portland Breta segir blaðamaðurinn Andy Ngo í grein í Spectator en honum fannst ACAB- krotið (All Cops Are Bastards), brennandi ruslagámarnir, flugelda- sprengjurnar, Antífa-fánarnir og BLM-límmiðarnir minna mjög á heimahagana handan Atlantsála. Andy komst í heimsfréttirnar 2019 er Antífa-liðar réðust á hann heima í Portland, Oregon, smávaxinn homma, afkomanda Víetnama er flýðu áþján kommúnismans á átt- unda áratugnum, helltu yfir hann mjólkurhristingi og börðu hann ítrekað svo blæddi milli heilahimna. Mörgum þótti þessi hegðun undarleg en Antífa sér svo sem fasisma víða. Nigel Farage fékk jú líka sinn mjólk- urhristing. Antífa hefur einnig sést ráðast gegn Querdenkers (fólki sem mótmælti kóvídlokunum í Frankfurt) og bandarískum hópi sem vill sem minnst ríkisafskipti (Three Percent- ers), sem sagt hópum sem tengjast fasisma ekki neitt. Það að beita of- beldi virðist stundum aðalatriðið hjá þeim, sem sést vel af einu lógói þeirra sem sýnir Antífa-liða lumbra á liggjandi manni. Nýlega gaf Andy út bók um Antífa: „Un- masked: Inside Antifa’s Radical Plan To Destroy Democracy“. Þar segir hann m.a. frá hinu skammlífa fríríki þeirra, CHAZ, sem þeir stofnuðu með BLM í Seattle og var lagt niður eftir fjórar skotárásir og tvö manndráp. Einnig lýsir hann kennsluefni Antífa, upp- byggingu samtakanna o.fl. Þær upp- lýsingar koma mikið til frá uppljóstr- ara sem gekk í samtökin. Upphaf Antífa má rekja til sam- takanna Antifascishe Action er stofn- uð voru í Þýskalandi 1932 er fylk- ingar sósíalista og kommúnista sameinuðust – merki þeirra notar Antífa enn í dag – en einnig sækir Antífa innblástur til baráttusveita gegn Franco og Mussolini. Frá Ítalíu kemur þekkt slagorð Antífa, „no pas- aran“, sem sjá má á bolum þeirra (ásamt krepptum hnefa). Eftir að Hitler náði völdum bannaði hann all- ar stjórnmálahreyfingar nema sína, en hugmyndirnar lifðu og blómstr- uðu í A-Þýskalandi þar sem menn reistu hinn „andfasíska“ múr til varn- ar gegn „fasistum“ V-Þýskalands. Andy sér hliðstæður milli Antífa nútímans og Baader-Meinhof- samtakanna; viljann til að beita valdi og fullvissuna um að rétt sé að berj- ast gegn hinum „fasísku“ stjórnvöld- um V-Þýskalands, BNA og annarra þjóðríkja. Hann segir að höfuðvígi samtak- anna sé í Berlín en að til BNA hafi hreyfingin borist frá Bretlandi eftir að hafa samlagast pönkhreyfingum þar. Í BNA hafi Antífa svo orðið fyrir áhrifum frá Frankfurtskólanum og snúist nú um baráttu undirskipaðra hópa gegn hinu hvíta, kapítalíska, gagnkynhneigða feðraveldi. Því hef- ur femínismi og LGBT-hug- myndafræði háan sess innan samtak- anna. Með því að skoða heimasíðu Brist- oldeildar Antífa má sjá sterk tengsl við BNA. Því hefur verið haldið fram að Antífa sé aðeins hugmynd en það stenst ekki skoðun því eins og Andy sýnir fram á hafa samtökin þétt þjón- ustunet í BNA, lögfræðinga og fólk innan stjórnkerfisins, kennarastétt- arinnar og meðal fjölmiðlamanna. Markmið Antífa er að koma Bandaríkjunum og vestrænum þjóð- félögum á kné – að koma af stað bylt- ingu sem myndi leiða af sér útópískt samfélag – landamæra- og lög- reglulaust, undir stjórn nýrrar valda- stéttar. Antífa er afar fært í upplýs- ingastríði, enda hafa samtökin marga blaðamenn á sínu bandi, segir Andy. Fela þarf upplýsingar og dreifa áróðri og ósannindum um andstæð- ingana til að reyna að hrekja þá frá völdum eða gera þá ótrúverðuga (myndbandið sem á að sanna að Andy sé í slagtogi með Proud Boys sannar ekkert slíkt – ég horfði á það). Sagan hefur tilhneigingu til að endurtaka sig. Á Spáni komu vinstri- sinnar Franco til valda með því að lama landið í verkföllum og í Þýska- landi hjálpuðu þeir Hitler til valda með því að berjast gegn miðjuflokk- unum. Stalín komst til valda í kjölfar- ið á byltingu bolsévikanna. Í BNA hafa BLM og Antífa enn grænt ljós hjá Demókrötum en samtök sem bera enga virðingu fyrir eignarrétt- inum né rétti hins almenna manns til að komast sinna ferða óáreittur hljóta að lenda upp á kant við yfirvöld fyrr eða síðar og þá er hætta á að þrengt verði að mótmæla- og tjáning- arrétti allra, eins og sjá má gerast með þessu breska lagafrumvarpi. Um Antífa og skerðingu á mótmælarétti almennings Eftir Ingibjörgu Gísladóttur »Með ofbeldisfullum mótmælum skapa vinstriöfgamenn hættu á að réttindi allra til að mótmæla stefnu ríkis- valdsins verði skert. Ingibjörg Gísladóttir Höfundur starfar við umönnun aldraðra. Kristnir menn hafa byggt Ísland í meir en þúsund ár. Fyrst voru það kaþólskir, síðan lúterskir og síðan hin- ir fjölmörgu kristnu sértrúarsöfnuðir. Allir leggja þessir hópar áherslu á ólík trú- aratriði, sem aðskilja þá frá öðrum. Sum smávægileg. Eitt eru þó allir sammála um og það er trúin á Jesú Krist og end- urlausn mannsins fyrir hjálpræðis- verk hans á krossinum. Í Jóhannesarguðspjalli standa þessi frægu orð: „Því að svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess, að hver sá sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.“ (Jóh. 3:16) Það er oft vitnað til þessara orða, sem Jóhannes þrír sextán. Í þeim felst, að sá sem trúir á Jesú Krist sé hólpinn. Hann er frelsaður/frelsuð. Það þýðir, að enginn er meira eða minna frelsaður en aðrir. „Í trúnni á hann eigum vér öruggan aðgang að Guði.“ (Efesusbréfið 3:12) Eftir komu Krists gilda aðrir hlutir, sem ekki voru teknir gildir fyrir komu hans. „Kristur er enda- lok lögmálsins, svo að nú réttlætist sérhver sá sem trúir.“ (Rómverja- bréfið 10:4) Það er náðargjöf, vegna þess, að vér mennirnir erum ófullkomnir og getum ekki haldið lögmálið allt. Samkvæmt kristninni er okkur gefið fagnaðarerindið um hjálpræðið fyrir Krist Jesú. Enginn er þar fremri öðrum. Lág- launamaðurinn og hinn ofríki eru hér í sama flokki. „Allir réttlætast án verðskuldunar af náð hans fyrir endurlausn- ina, sem er í Kristi Jesú.“ (Róm. 3:23-24) Því svo elskaði Guð heiminn, að „nú er eng- in fordæming fyrir þá, sem tilheyra Jesú Kristi.“ (Róm. 8:1) Guð, hinn miskunnsami alvaldi Drottinn, hefur umvafið þennan heim gæsku sinni, náð og elsku. Þökk sé honum, dýrðin og lofgjörðin um aldir alda. Fyrirheitið er allra. Það stendur öllum til boða, sem vilja. Ekki einhverjum einum sér- trúarflokki, heldur þeim öllum og svo þeim líka, sem eru utan flokka. Í orði Guðs segir: „Hver, sem ákallar nafn Drottins mun hólpinn verða.“ (Róm. 10:13) Allir eiga þennan sama rétt, þessa sömu náðargjöf. Það er hinn nýi sáttmáli á milli Guðs og manna. Jóhannes þrír sextán Eftir Einar Ingva Magnússon Einar Ingvi Magnússon »Kristur er endalok lögmálsins, svo að nú réttlætist sérhver sá, sem trúir. Höfundur er áhugamaður um mannlífið. einar_ingvi@hotmail.com Veistu hvers þú ert megnugur, ein- staklingur, hvar hvat- irnar þínar geta endað með þig? Þú vilt vel en stundum fer illa, hvern- ig er þá með það þegar mest þörf er á? Hef- urðu séð Menn og mýs? Þekkirðu tölurnar um heimilisofbeldi? Skilurðu að það eru menn sem elska konurnar sínar, sem lemja þær og jafnvel drepa. Skilurðu að þetta eru menn eins og þú? Hvað geturðu gert til að lenda ekki í þessu, til að vera sem lengst frá þessu? Mað- urinn við stjórnvölinn sem lifir og dafnar með allt á hreinu. Miklu meiri kærleikur, einfaldlega. Vinahópur sem stendur við bakið á þér, bíður eftir þér í röð eins og segir í laginu. Heilbrigt líferni og spennandi framtíð. Auknar gáfur og betri sam- skipti með meiri húmor og kynþokka- fyllri tilveru. Við þurfum að tala sam- an til að eygja um hvað lífið raunverulega snýst þegar svona margir fara út af. Gandhi sagði að lífið snerist ekki bara um að auka hraðann á því. Hann er samt að benda á það að mikið sem á sér stað í nútímasamfélagi snýst um að fara hraðar. Meiri fullkomnun og hraðar. Við sækjumst eftir því að vera samkeppnishæf og lifa vel í lífs- gæðakapphlaupinu. Ef við erum að fara að slappa af viljum við helst flýta okkur og slappa af strax. Til er bókin Lifðu lífinu hægar, sem fjallar um heilbrigði þess að stíga úr þessu hamstrahjóli fyrir heilsuna og lífsgæðin og virkilega njóta þeirra ótal framfara sem mannkynið hefur náð. Það gerir okkur kleift að sjá að þegar við erum komin á ógnarhraða, farið að líða illa, áfergjan að taka toll, verður óhappið verra, eins og í bíl sem er á mikilli ferð. Við eigum alltaf að hafa í huga hvað það er margt sem við getum verið þakklát fyrir. Þakklæti er ein mest læknandi tilfinning sem við getum hugsað upp. Þá förum við síður að taka áhættu í eltingaleik við óreiðu og jarðlegar eignir. Andlegir leiðtog- ar segja að við eigum að lifa fyrir eilífðina og sjá að þetta líf er bara augnablik þannig að ekki falla fyrir freisting- unni sem sál þín leggur fyrir þig. Þú hefur val um að lifa með von um betrun mannkyns og fylgjast með kraftaverkum sem verða alla daga. Þú þarft ekki að lifa í ótta og minni- máttarkennd. Þú ert heilög vera, bjargvættur og grínisti. Tölum meira saman um hvernig lífið ætti að vera og hvað gerir það vert að lifa því. Hvað á maður að gera við reiðina? Róa í hina áttina? Hefur þú hugsað þína fallegustu hugsun? Geturðu stig- magnað þá hugsun tífalt? Ég hef lengi velt því fyrir mér hvað það skiptir miklu máli að gera það rétta. Hvert spor sem við tökum er nýtt spor og við getum valið hvert við förum. Við erum samsett úr ýmsum hugmyndum en þær eru ekki óhagg- anlegar. Kannski bætum við nokkrar af þessum hugmyndum og gjör- breytum heiminum til hins betra. Miklu meira af öllu því besta; miklu meiri kærleikur. Eftir Valdimar Garðar Guðmundsson Valdimar Garðar Guðmundsson » Þú hefur val um að lifa með von um betrun mannkyns og fylgjast með kraftaverk- um sem verða alla daga. Höfundur er frumkvöðull. valdimargardar@hotmail.com Björgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.