Fréttablaðið - 23.09.2021, Síða 12
10 Fréttir 16. september 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFÓKUS Á HJARTA LANDSINS
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi
Þótt Eyjafjallajökull sé sjötti stærsti jökull landsins og
næstum 80 ferkílómetrar að stærð, þá renna aðeins frá
honum tveir skriðjöklar, Gígjökull og Steinsholtsjökull.
Undir jökulhettunni er eldkeila sem gosið hefur fjórum
sinnum frá landnámi, 920, 1612, 1821 og síðast 14. apríl
2010 í frægu gosi sem næstum eyddi Gígjökli. Steins-
holtsjökull, sem er næsti nágranni Gígjökuls, má einnig
muna sinn fífil fegurri vegna loftslagshlýnunar. Hann
felur sig á bak við voldugan jökulgarð og sést því ekki
frá veginum inn í Þórsmörk, en þegar nær jöklinum er
komið sést hversu stórbrotinn hann er. Steinsholtsjökull
tengist einu mesta berghruni sem orðið hefur á Íslandi frá
landnámi, en aðeins það í Öskju sumarið 2014 var stærra.
Um hádegisbil 15. janúar 1967 losnaði rúmlega 900 metra
löng bergspilda úr fjallinu Innstahaus (720 m), en bændur
höfðu um nokkurt skeið tekið eftir stækkandi sprungu
í bergstálinu. Eftir miklar rigningar opnaðist sprungan
og 40 milljónir tonna af bergi steyptust mörg hundruð
metra niður á skriðjökulinn. Um leið köstuðust feikna-
stór björg og jökulís yfir lón við jökulsporðinn, sem kom
af stað gríðarlegri flóðbylgju. Barst hún með látum eftir
endilöngum Steinsholtsdal að aurum Krossár og þaðan
áfram 40 kílómetra leið að ósum Markarfljóts. Þegar ekið
er inn í Þórsmörk yfir vaðið á Steinsholtsá sést hversu stór
björgin voru, en mörg eru nokkrar mannshæðir og allt að
200 tonn að þyngd. Sem betur fer voru engir á ferð í Þórs-
mörk þennan vetrardag, en bændur sáu þó til flóðsins
auk þess sem hamfaranna varð víða vart á jarðskjálfta-
mælum.
Ganga inn að Steinsholtsjökli er frábær skemmtun
og tekur tæpa klukkustund hvora leið. Bílum er lagt
við Fagraskóg, handan vaðsins á Steinsholtsá, en það
getur verið varasamt í rigningu. Gróður í dalnum er afar
gróskumikill og birki og mosi áberandi. Mikilvægt er að
fylgja göngustígum og þræða gamla árfarvegi til að hlífa
viðkvæmum mosanum. Innar í dalnum er þyrping risa-
stórra sandhóla sem bárust með bergskriðunni og eru
flestir þeirra grónir frá toppi til táar. Einnig má sjá jökul-
ker sem mynduðust þegar jökulís úr flóðinu bráðnaði og
skildi eftir stórar dældir í sandinum. Athyglinni stelur þó
snarbrattur Steinsholtsjökull en frá 1967 hefur hann hörf-
að um rúman kílómetra. Því má segja að hann hafi lent
á milli steina berghruns og sleggju hamfarahlýnunar. ■
Milli steins og sleggju
Steinsholtsjökull hefur hörfað mikið á sl. áratugum og jökullónið við sporð hans stækkað. Fyrir miðri mynd er Innstihaus, en úr honum brotnaði 900 m bergspilda veturinn 1967. MYND/TG
Steinsholtsdalur
er afar gróinn og
skartar dulúð-
legu landslagi.
MYND/ KÁRI
HEIÐDAL
Risabjarg neðst
í Steinsholtsdal
sem barst með
flóðbylgjunni
1967.
MYND/ TG
23. september 2021 FIMMTUDAGUR