Fréttablaðið - 23.09.2021, Síða 14
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
E-flokkur-
inn býður
sig raunar
aldrei fram.
Hann þarf
þess ekki.
En vinnur
alltaf.
Við erum
rétt að
byrja, en
við höfum
varðað
leiðina
og ég
þarf þinn
stuðning
til þess að
komast á
leiðarenda.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser@frettabladid.is
Á líðandi kjörtímabili lagði ég áherslu á málefni
barna. Verkefnið var umfangsmikið og er sennilega
mesta breyting sem gerð hefur verið á umhverfi
barna á Íslandi í áratugi.
Ný lög um samþættingu þjónustu í þágu far-
sældar barna taka gildi næstkomandi áramót og
fela það í sér að barnið verður hjartað í kerfinu.
Það þýðir að þjónustan kemur til barnsins, og
fjölskyldu þess, en að barnið þurfi ekki að fara og
nálgast þjónustuna. Þjónusta við börn hefur að
margra mati verið völundarhús að rata um, en með
þessum nýju lögum breytist það.
Barnamál 2.0
Þessi lög og þessi nýja nálgun í málefnum barna eru
þó aðeins grunnurinn að húsinu sem við erum að
byggja.
Ofan á þessi lög þurfa að koma fleiri úrræði þann-
ig að við þjónum hagsmunum barna og fjölskyldna
sem best. Þetta hef ég kallað Barnamál 2.0 og er
næsta skref í breytingunum í málefnum barna.
Þar er brýnast að takast á við þann vanda að börn
bíða alltof lengi eftir þjónustu í mörgum tilfellum.
Til að takast á við það ætlum við að bjóða börnum
upp á þjónustutryggingu. Í henni felst að eyða bið-
listum fyrir börn með þeim hætti að ef kerfið getur
ekki veitt viðeigandi þjónustu innan skynsamlegs
biðtíma, þá mun ríkið fjármagna þjónustu veitta af
hálfu einkaaðila.
Fjárfestum í fólki
Verkefnið á næsta kjörtímabili er að klára þessa
stóru kerfisbreytingu. Ég brenn fyrir málefnum
barna og mun leggja allt undir til þess að láta það
verða að veruleika. Við erum rétt að byrja, en við
höfum varðað leiðina og ég þarf þinn stuðning til
þess að komast á leiðarenda.
Málefni barna eru gríðarlega mikilvæg fyrir
okkur öll og mig langar ekkert frekar en að klára
verkefnið á næsta kjörtímabili.
Fjárfestum í fólki og setjum X við B á laugar-
daginn. n
Við erum rétt að byrja!
Ásmundur Einar
Daðason
félags- og barna-
málaráðherra og
skipar 1. sæti á
lista Framsóknar í
Reykjavík norður
Ef að líkum lætur fer E-flokkurinn með sigur af hólmi í alþingiskosningunum að þessu sinni, eins og raunar endra-nær. Hann lætur þó ekki mikið fyrir sér fara, frekar en fyrri árin, en árangurinn
skilar sér samt sem áður í völdum og leiðarstefi í
lykilstofnunum landsins.
Þannig hefur þetta verið um áratugaskeið.
E-flokkurinn býður sig raunar aldrei fram.
Hann þarf þess ekki. En vinnur alltaf. Það er
raunin þegar upp er staðið. Hann fer með völdin,
kann vel við sig með völdin, finnur til sín með
völdin – og sleppir þeim ekki.
Fullu nafni heitir hann Embættismannaflokk-
ur Íslands – og hafi Hákot þótt stórt nafn, er
E-flokkurinn hástigið í því líflega lýsingarorði.
En ofsagt væri að hann stæli völdum að
afloknum hverjum kosningum, flokkurinn sá
arna sem er ekki einu sinni í framboði, en hann
fær þau bara upp í hendurnar af því að löglega
kjörnir fulltrúar þjóðarinnar, sem veljast reglu-
lega á löggjafarsamkundu þjóðarinnar, hafa
ekki sömu völdin og æviráðnir embættismenn.
Þingmenn koma og fara. Embættismenn sitja
þá af sér. Það er meginreglan í íslensku kerfi sem
kennt er við lýðræði, en er í raun og veru stofn-
ræði.
Í aðdraganda kjördags í nokkuð þrosk-
uðu lýðræðisríki er umhugsunarefni hvað
alþingismenn á Íslandi hafa lítil völd. Þeir sitja í
nefndum. Og sitja þar sem fastast. Raunar eins
og þeim sé haldið þar föstum. Oftar en ekki af
embættismönnum. Akkúrat þeim mönnum
sem segja fulltrúum fólksins í landinu hvernig
kaupin gerast í kerfinu.
Sömu mennirnir eru fóðrið í frumvörp
framkvæmdavaldsins sem renna í gegnum
alþingi, áreynslulaust, eins og stimpilpúði fyrir
stofnanaveldi landsins.
Og þannig líður kjörtímabilið. Hvert kjörtíma-
bilið af öðru. Þingmenn koma. Þingmenn fara.
En eftir situr raunverulega valdið í reykvískri
bírókratíu sem hagar málum að hentisemi sinni,
án nokkurs einasta umboðs frá þjóðinni.
Í Bandaríkjunum er embættismannakerfið
eins og það leggur sig hreinsað út við valdaskipti
í Hvíta húsinu. Og ekki er það ósvipað í Bret-
landi. Í Þýskalandi er vald nýrrar stjórnar svo
áþreifanlegt að embættismennirnir taka skip-
unum. Ekki er það ósvipað á Norðurlöndunum.
Nema á Íslandi.
Þar eru ráðuneytin valdameiri en ráðherrann.
Oft og tíðum. Og fyrir vikið breytist minna en
meira, enda þótt ráðherrann mæti ferskur til
leiks.
Á Íslandi verður stofnræði að víkja fyrir lýð-
ræði. n
E-flokkurinn
toti@frettabladid.is
Help!
Frambjóðendur gera allt fyrir
athyglina, nema kannski koma
naktir fram, á endaspretti kosn-
ingabaráttunnar og þegar einn
frambjóðenda er búinn að graðga
í sig hrátt nautahakk er þó erfitt
að vita í hvaða átt skal halda.
Samfylkingarfólkið Þórunn
Sveinbjarnardóttir, Logi Einars-
son, Heiða Björg Hilmisdóttir
og Guðmundur Andri Thorsson
náðust þó á mynd þar sem þau
arka í suður, á móti Bítlunum, yfir
gangbraut í Kópavogi í tilbrigði
við kunnuglegt stef á sögulegu
umslagi plötunnar Abbey Road
og sýnist sitt hverjum.
Sigmundur á leik
Bítlarnir, með John Lenn-
on í stað Þórunnar, gengu í
austur eins og Jón Óskar, mynd-
listarmaður og frambjóðandi
Sósíalista, bendir á þegar hann
segir á Facebook að þetta viti
allir nema Samfylkingin. „Þessi
leikaraskapur er að drepa mig!
Bjánabítlar sem vita ekki í hvaða
átt skal halda,“ segir aðdáandi
Ringo Starr númer eitt á Íslandi
og vekur fjörugar umræður
þar sem Gunnar Hrafn Jónsson
bendir á að maðurinn með
hakkið hljóti að eiga næsta
leik: „Nú bíð ég bara eftir því
að Sigmundur Davíð leiki eftir
Nirvana plötuumslagið fræga,“
segir hann með vísan í umdeilda
mynd af nöktu sveinbarni kafa
eftir dollaraseðli. n
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 23. september 2021 FIMMTUDAGUR