Fréttablaðið - 23.09.2021, Side 28
Lengi hefur tíðkast að
geyma tölvur sem keyra
ýmiss konar hugbúnað í
tölvuskápum. Með nýjum
og breyttum tímum færist
nú í aukana að hýsa hug-
búnað í skýi og hefur skýið
sótt gríðarlega í sig veðrið
á síðustu árum. Rue de Net
hefur því verið á þeirri veg-
ferð að flytja hugbúnað við-
skiptavina sinna af tölvum
í tölvuskápum og upp í
skýið, svo þaðan er frasinn
kominn.
Karl Einarsson er fæddur og
uppalinn í Breiðholtinu og verður
þrítugur í lok október. Hann
útskrifaðist úr tölvunarfræði árið
2017 og hóf störf með skólanum
hjá Rue de Net árinu áður.
„Ég vissi að vísu ekkert um Rue
de Net þegar ég sótti um starf hjá
félaginu, en á þeim tíma var ég
farinn að velta fyrir mér hvað tæki
við eftir skólann,“ segir Karl, sem
er þjónustustjóri hjá Rue de Net
Reykjavík.
„Ég sat í heita pottinum í Sport-
húsinu á spjalli við vinkonu mína
og sem þá þegar var hjá Rue de
Net. Hún hvatti mig til að sækja
um, sem ég og gerði og hér erum
við,“ segir Karl, ánægður með sitt
hlutskipti.
Hann byrjaði sem forritari en
varð síðar hópstjóri og fór að stýra
stærri og stærri verkefnum og inn-
leiðingum.
„Þegar Rue de Net stækkaði
enn frekar varð ég sviðsstjóri
viðskiptakerfa og nú síðast tók
ég við hlutverki þjónustustjóra,
sem er klárlega mjög spennandi
áskorun. Það sem ég geri í starfi
mínu hjá Rue de Net er að aðstoða
og þjálfa starfsmenn sem heyra
undir viðskiptakerfissvið. Einnig
áætla ég tíma og kostnað sem felast
í innleiðingum og uppfærslum
á Business Central, og hanna
útfærslur og samþættingar við hin
ýmsu kerfi hjá viðskiptavinum
okkar,“ útskýrir Karl, sem hefur
fengið mörg tækifæri til að vaxa í
starfi og fengið stigvaxandi ábyrgð
í gegnum árin.
„Ég hef alltaf sóst eftir stærri
áskorunum og hef gaman af því að
takast á við krefjandi verkefni. Það
væri lygi ef ég segði að starfið hefði
alltaf verið auðvelt, enda stundum
mikill hraði, viðskiptavinir hinum
megin við borðið og lítið sem má
út af bregða. Það er hins vegar ekki
sjálfgefið að fá þessi tækifæri og ég
er mjög ánægður með vegferðina
eins og hún hefur verið hingað til.
Það má heldur ekki gleyma við-
skiptavinum okkar, þeir eru stór
hluti af þessu öllu. Ég hef fengið
að fara inn í sum af stærstu fyrir-
tækjum landsins, tekið mikinn
þátt í þeirra vegferð, og eignast
marga góða kunningja hér og þar
um bæinn, sem mér þykir mjög
vænt um.“
Þjónusta Rue de Net
Rue de Net var stofnað á eyjunni
Jersey í Ermarsundi árið 2003.
Stofnendur voru tveir; Alfred B.
Þórðarson og Aðalsteinn Valdi-
marsson. Félagið stofnað utan um
samþættingarlausn, nánar tiltekið
samþættingu milli vefs og Navi-
sion.
„Nafnið Rue de Net stendur
fyrir akkúrat það sem verið var að
gera; að brúa bilið á milli vefs og
Navis ion. Götuheiti í Jersey byrja
sum á „Rue de“ og því varð til Rue
de Net, eða Netstrætið,“ útskýrir
Karl um vel til fundna nafngift
fyrirtækisins.
Þeir Alfred og Aðalsteinn seldu
vöruna um allan heim í nokkur
ár, en þegar þeir komu til Íslands
kölluðu íslenskir viðskiptavinir
eftir þjónustu þeirra, og úr varð
Rue de Net Reykjavík sem sinnti og
sinnir enn allri ráðgjöf og þjónustu
við Business Central, (sem áður hét
Dynamics NAV og Navision) og
LS Central (sem hét LS Nav frá LS
Retail).
„Rue de Net hefur stækkað
jafnt og þétt í gegnum árin, en við
höfum nánast alltaf verið litli aðil-
inn á markaðnum. Við viljum líka
gera hlutina öðruvísi, persónuleg
nálgun hefur ávallt verið okkar
sérsvið, og við leitumst mjög eftir
því að kynnast viðskiptavinum
okkar vel og þekkja þarfir þeirra,
til að ráðgjöfin verði sem best. Til
að mynda fær hver viðskiptavinur
úthlutað viðskiptastjóra sem öll
hans samskipti fara í gegnum.
Viðskiptastjórinn lærir fljótt mjög
vel inn á viðskiptavininn og getur
því veitt heiðarlega og góða ráðgjöf
um hvað hentar viðskiptavininum
best,“ greinir Karl frá.
Viðskiptakerfi í skýinu
Fyrir tæpum þremur árum hóf
Microsoft að bjóða upp á Dyna-
mics 365 Business Central sem
SaaS-lausn, en það útleggst sem
Software as a Service. Á íslensku
þýðir þetta hugbúnaður sem
þjónusta. Það þýðir að Microsoft
annast hýsingu á kerfinu, ásamt
öllum uppfærslum, viðhaldi og
afritatöku.
„Við hjá Rue de Net urðum strax
mjög hrifin af þessari nálgun
Microsoft, enda mikið hagræði
og þægindi falin í henni. Við-
skiptakerfið er nú aðgengilegt
hvar og hvenær sem er, og áður
þekkt vandamál eins og tengingar,
rekstur kerfisins og annað slíkt
heyrir sögunni til,“ upplýsir Karl.
Hann segir einn af helstu
kostum þessarar tilhögunar vera
þann að viðskiptavinir séu nú
alltaf í nýjustu útgáfu.
„Microsoft uppfærir kerfið í
hverjum mánuði, og tvisvar á ári
er um stærri uppfærslur að ræða.
Í gamla fyrirkomulaginu var
alkunna að uppfærslur voru tíma-
frekar, erfiðar og kostnaðarsamar.
Öll vinna við Microsoft-uppfærslur
er innifalin í mánaðargjöldum, svo
enginn óvæntur kostnaður kemur
til vegna þess,“ segir Karl.
Áður þurfti líka að leggja í
töluverða vinnu til að fá inn nýja
staðlaða virkni.
„Viðskiptavinir áttu alltaf rétt
á þessari nýju virkni en þurftu
sjálfir að leggja út kostnað til að fá
Taktu viðskiptakerfið þitt úr skápnum í skýið
Karl Einarsson
er þjónustu-
stjóri hjá Rue de
Net Reykjavík.
Fyrirtækið
hlaut nafngift
sína þegar það
var stofnað á
Jersey-eyju á
Ermarsundi, þar
sem margar
götur byrja á
Rue de. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/EYÞÓR
Hér má sjá hluta starfsfólks Rue de Net en fyrirtækið telur í dag yfir 30 manns. Starfsfólk Rue de Net hvetur fyrirtæki
til að vera framsækin og hugsa til framtíðar. Það er líka alltaf til í spjall um bestu lausnirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
6 kynningarblað 23. september 2021 FIMMTUDAGURUPPLÝSINGATÆKNI