Fréttablaðið - 23.09.2021, Page 30
OZIO sérhæfir sig í hug-
búnaðarlausnum fyrir
fyrirtæki í Microsoft 365
viðskiptaumhverfi og hefur
yfirgripsmikla þekkingu
á verkferlum fyrirtækja af
öllum stærðum og gerðum.
Lausnirnar geta sparað
fyrirtækjum mikið fé.
„Við sérhæfum okkur í hugbúnað-
arlausnum fyrir fyrirtæki í Micro-
soft 365 viðskiptaumhverfi og
leggjum megináherslu á stafræna
ferla og hagræðingu með lausnum
sem fyrirtækin eiga nú þegar, en
nánast öll fyrirtæki eru í þessu
umhverfi Microsoft 365 en átta sig
kannski ekki alltaf á því hvernig
er hægt að nýta það,“ útskýrir
Sigurjón Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri OZIO. „Í sumum
tilvikum eru þau jafnvel að kaupa
lausnir frá öðrum sem er að finna
þarna inni. Við viljum hjálpa
fyrirtækjum að finna hvernig má
nýta umhverfið betur og þar með
ná fram töluverðri hagræðingu
með upplýsingatækni.“
Mjög oft svipaðar áskoranir
„Við búum yfir áralangri reynslu
og þekkingu á verkferlum fyrir-
tækja, óháð stærð og eðli starf-
semi þeirra,“ segir Sigurjón.
„Við erum búnir að leysa alls
konar vandamál og í raun eru
alltaf sömu verkferlar hjá fyrir-
tækjum, hvort sem fyrirtækin eru
15-20 manna eða 2-300 manna.
Fyrirtæki eru mikið að glíma við
svipaðar áskoranirnar, umfangið
er bara mismikið.
Samningakerfið sem við
bjóðum upp á er ágætis dæmi
um kosti þjónustunnar okkar.
Við erum með samningakerfi
sem er innbyggt í Microsoft 365
umhverfið og getur haldið utan
um samninga, allt frá samninga-
gerð til undirritunar,“ segir Sigur-
jón. „Kerfið inniheldur tengingu
við undirritunarþjónustu, þannig
að það er hægt að vinna samning-
inn, senda hann til undirritunar
og fá undirritað skjal til baka, allt
innan kerfisins, svo það þarf ekki
að fara neinar krókaleiðir.“
Getur sparað mikið fé
„Margir telja að upplýsingatækni
sé dýr, en tilgangurinn með því
að fjárfesta í henni er að spara
og hagræða,“ segir Sigurjón. „Það
kostar mögulega tvær milljónir að
fá heildstæða lausn, en mikilvægt
er að átta sig á hvað slík lausn
getur sparað á móti. Þegar kemur
að því að skoða fjárfestingar í
upplýsingatækni þarf því að huga
að því hvaða kostnaður fer út, sem
er ekki bara fjármagn heldur líka
tími.
Umræðan er oft villandi og
segir að það að eyða í upplýsinga-
tækni snúist um að fækka starfs-
fólki, en þetta snýst ekki um það,
heldur hagræðingu í fjármagni
og/eða tíma,“ segir Sigurjón. „Það
getur samt hins vegar þýtt að
fólk færist til í starfi eða geti eytt
tímanum í skemmtilegri verkefni,
því við viljum bjóða lausnir sem
gera óþarft að hafa fullt af fólki að
vinna handavinnu.“ ■
Hjálpa fyrirtækjum að nýta Microsoft 365
Sigurjón Hákonarson, framkvæmdastjóri OZIO. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nánast öll fyrir-
tæki eru í þessu
umhverfi Microsoft 365
en átta sig kannski ekki
alltaf á því hvernig er
hægt að nýta það.
Sigurjón Hákonarson
8 kynningarblað 23. september 2021 FIMMTUDAGURUPPLÝSINGATÆKNI
arionbanki.is *Skv. MMR 2021
Ef þú ert ekki með Arion appið getur þú sótt það í App Store
eða Google Play. Í appinu tekur enga stund að:
Ert þú með besta
bankaappið?
• Dreifa greiðslum
• Stýra yfirdrætti
• Sækja um Núlán
• Finna PIN númer
• Kaupa og selja hlutabréf og í sjóðum
• Stofna viðbótarlífeyrissparnað
• Byrja grænan sparnað
• Borga reikninga
• Frysta kort