Fréttablaðið - 23.09.2021, Qupperneq 40
Ástkær móðir mín,
systir okkar og mágkona,
Edda Svava Arnórsdóttir
lést sunnudaginn 5. september í Osló.
Ólafur Jónsson
Víðir Kalmar Arnórsson Jóhanna Lúðvíksdóttir
Guðlaug Sigríður Arnórsdóttir
Okkar ástkæri
Gunnlaugur V. Snævarr
fyrrverandi kennari og
yfirlögregluþjónn,
lést á Landspítalanum 18. september.
Jarðarförin fer fram frá Neskirkju
miðvikudaginn 29. september kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á líknarfélög. Streymt verður frá
athöfninni á: https://youtu.be/kwr390hhniw
Auður Adamsdóttir
Þórhildur Erla Pálsdóttir
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Björgvin Runólfsson
bóndi á Dvergasteini,
Lindasíðu 2, Akureyri,
lést sunnudaginn 19. september á
Sjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin fer fram
frá Glerárkirkju mánudaginn 4. október klukkan 13.00.
Benedikt Björgvinsson
Vilborg Björgvinsdóttir Davíð Stefánsson
Jón Björgvinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
Þór Matthíasson
Klapparstíg 3, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans
11. september. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Aðstandendur senda alúðarþakkir fyrir
frábæra þjónustu til líknardeildarinnar og HERU.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeildina
í Kópavogi og líknarþjónustuna HERU.
Yrja Þórsdóttir
Janet Matthíasson, Freyja Matthíasdóttir
Edda Matthíasdóttir Swan, Sif Matthíasdóttir
og fjölskyldur.
Við þökkum af alhug hlýjar kveðjur
og samhug vegna fráfalls ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Steinars Geirdal
Sérstakar þakkir fær starfsfólk heima-
hlynningar, dagdvalar Ísafoldar og Skógar-
bæjar ásamt frímúrarastúkunni Sindra.
Vigdís Erlingsdóttir
Sverrir Geirdal Lára Jóhannesdóttir
Snorri Geirdal Christina Byö
Dagný Geirdal Bergþór Haukdal Jónasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín,
amma og langamma,
Hlíf Helgadóttir
Furugrund 70, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans
þann 9. september.
Hjartans þakkir til starfsmanna
líknardeildar fyrir yndislega umönnun.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Dís, börn og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ólína S. Guðmundsdóttir
frá Grenivík í Grímsey,
sem lést á Landspítalanum
mánudaginn 6. september,
verður jarðsungin frá Digraneskirkju
miðvikudaginn 29. september klukkan 15.
Erlendur Geirdal Kolbrún Matthíasdóttir
Guðmundur Gísli Geirdal Linda Jörundsdóttir
Halldóra Sæunn Sæmundsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Birna Friðgeirsdóttir
Gunnólfsgötu 18, Ólafsfirði,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði
16. september. Útförin fer fram
frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn
24. september klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á dvalar- og hjúkrunarheimilið Hornbrekku, Ólafsfirði.
Sigurður Guðmundsson
Valgerður Sigurðardóttir Rúnar Guðlaugsson
Guðmundur Sigurðsson Sigurborg Gunnarsdóttir
Friðgeir Sigurðsson Ragnhildur Skúladóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Einar Skúlason stofnaði göngu-
hóp fyrir tíu árum til að sleppa
við vesenið í kringum enda-
lausar bílferðir.
arnartomas@frettabladid.is
Gönguhópurinn Vesen og vergangur
fagnar tíu ára afmæli á næstu dögum. Í
tilefni þess verður efnt til svokallaðrar
Vesenispartíafmælisgöngu næsta föstu-
dag, þar sem tímamótunum verður fagn-
að með tilheyrandi göngu og gleðskap.
„Þegar ég stofnaði þennan klúbb var
tilgangurinn að fara lengri ferðir á borð
við þjóðleiðir og þess háttar,“ segir Einar
Skúlason stofnandi hópsins. „Það var
búið að vera svo mikið vesen að skipu-
leggja endalausar bílferðir á upphafs-
og endastað ferðanna að ég vildi stofna
klúbb svo við gætum leigt rútu og losnað
við allt þetta skutl.“
Hópurinn var í fyrstu stofnaður sem
Facebook-hópur þar sem Einar bauð
200-400 manns sem hann taldi að hefði
áhuga á göngum og úr varð fyrsta ganga
hópsins. Í kjölfarið fór fólk að sækja um
aðild og í dag telur hópurinn um 15 þús-
und meðlimi. Einar segir að góður félags-
skapur skipti lykilmáli í gönguferðum.
„Það skiptir auðvitað máli upp á örygg-
ið að gera, ef eitthvað kemur upp á,“ segir
hann. „Maður fær líka meira út úr hug-
hrifunum ef maður deilir reynslunni
með einhverjum og úr endurteknum
göngum og samverustundum getur
þróast góð vinátta. Fólk fær líka meira úr
göngum þegar góður leiðsögumaður er
með í för sem stýrir hraðanum, bendir
á áhugaverða staði og segir sögur, það er
toppurinn.“
Píslargöngur og dansilabb
Einar segir að göngurnar þar sem eitt-
hvað er að veðrinu séu yfirleitt minnis-
stæðari en aðrar.
„Ég man eftir rigningargöngu þar sem
við gengum á móti vindi og regni allan
daginn,“ segir Einar. „Hún var haldin á
hvítasunnu og titluð sem píslarganga
og hún stóð undir því nafni. Við fengum
algjörlega það sem við báðum um – það
var alveg sama hversu góður fatnaður
fólks var, í svona veðri þá kemst vatnið
í gegnum allar glufur og allir urðu gegn-
sósa.“
Að lokum endaði gangan þó í kjötsúpu
sem var göngugörpunum kærkomin.
„Það er oft eitthvað í gangi eftir ferðirnar,“
segir Einar. „Maður spinnur þetta bara
áfram og reynir að hafa þetta skemmti-
legt, en oft þarf ekkert að spinna, þátt-
takendur eru svo frjóir og skemmtilegir.“
Tíu ára afmæli félagsins verður svo
fagnað í Elliðaárdal í fyrrnefndri partí-
göngu.
„Upphaflega átti að vera stórt ball en
það eru auðvitað ekki aðstæður til þess í
dag,“ segir Einar. „Í staðinn verður þetta
undir berum himni með tónlist, söng og
veitingum, eða það sem systir mín myndi
kalla „dansilabb“. Við ætlum að reyna að
skemmta okkur saman á sama tíma og
við höldum smitmöguleikum í lágmarki.“
Áhugasamir geta kynnt sér Vesen og
vergang betur á Facebook-síðu félags-
ins. n
Vesen og vergangur í tíu ár
Frá göngu hópsins
í Lónsöræfum.
MYND/AÐSEND
Það var búið að vera svo
mikið vesen að skipu-
leggja endalausar bílferðir
á upphafs- og endastað
ferðanna að ég vildi
stofna klúbb svo við
gætum leigt rútu og losn-
að við allt þetta skutl.
1922 Oddur Oddsson, 74 ára, og Oddný Hannesdóttir,
níræð, eru gefin saman í Reykjavík. Þar með verður
hún elsta brúður landsins.
1941 Snorrahátíð er haldin í hátíðarsal Háskóla Íslands í
minningu 700 ára dánarafmælis Snorra Sturlusonar.
1943 270 kjósendur afhenda Alþingi áskorun um að
ganga ekki frá sambandsslitum við Dani.
1973 Leifar fellibylsins Ellenar ganga yfir Suðvesturland
og valda miklu tjóni á húsum, bátum og bílum. Í
Reykjavík nær vindhraði 200 kílómetrum á klukku-
stund.
1981 Hornsteinn er lagður að Þjóðarbókhlöðunni í
Reykjavík
Merkisatburðir
Þjóbó
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 23. september 2021 FIMMTUDAGUR