Vinnan - 01.12.1943, Page 52
VBNNQJSFA1A0IEIMÐ BSB.ANDS %
IRItVIKMVOíK
★ Ht ir
KHflKI
NBNKIN
Vér viljum hérmeð tilkynna heiðruðum við-
skiptavinum vorum, að auk hinnar venju-
legu tegundar vorrar aí nankinsfötum úr
XXX NANKINI, er vér höfum framleitt und-
anfarin 11 ár, höfum vér nú bætt við fram-
leiðslu vora nýrri tegund nankinsfata. Teg-
und þessi, sem vér seljum undir merkinu
VIR er úr þykkara efni, sem er þæft með
sérstakri aðferð (SANFORIZED) svo fötin
hlaupa ekki. Efni þetta er það sama og
notað er í beztu tegundir nankinsfata, sem
framleidd eru í Ameríku.
Er oss óblandin ánægja að geta framleitt og selt þessa nýju tegund
vora fyrir mun lægra verð en föt úr sama efni, sem innflutt hafa verið
frá Ameríku, hafa kostað.
Vér viljum vekja athygli á, að við kaup á fatnaði þessum, skyldu menn
velja sér heldur minna stærðarnúmer en vant er, þar eð ekki þarf
að reikna með að fötin hlaupi, sem neinu nemur, við þvott.
Markmið vort er sem fyrr, hámark gæðanna fyrir lágmarlc
verðsins.
Þessi merki tryggja gæðin
VINNUFATAGERÐ ISLANDS H°F
Elzta,
stœrsta og fullkomnasta
verksmið ja
sinnar greinar
á Islamli