Morgunblaðið - 19.04.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021
Körfuboltaspjöld og standar
SAN Jose
59.900
SAN Diego
75.500
Seattle
24.500
Atlanta
8.550
Boston
18.100
Denver
6.990
Síðumúli 35 (gengið inn að aftanverðu)
108 Reykjavík - S. 568 3920 - Opið 11.00-18.00
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Íslensk erfðagreining gengst í dag
fyrir fræðslufundi um nýjustu
rannsóknir sínar á Covid-19.
Nokkurrar eftir-
væntingar gætir
vegna niður-
staðna þessara
rannsókna, sem
e.t.v. má sjá á
því að á fundin-
um verða for-
ystumenn ríkis-
stjórnarinnar
auk heilbrigðis-
ráðherra sér-
stakir gestir.
Vonast er til þess að niðurstöð-
urnar varpi betra ljósi á sjúkdóm-
inn, eftirköst hans og hvernig megi
verjast honum.
„Við erum með stóra stúdíu á
langtímaafleiðingum sjúkdómsins,
við erum með stóra stúdíu á ónæmi
og stóra stúdíu um það hvernig
veiran berst á milli í samfélaginu,“
segir Kári Stefánsson, forstjóri Ís-
lenskrar erfðagreiningar, í samtali
við Morgunblaðið. „En eftirvænt-
ingin veltur sjálfsagt á væntingum
hvers og eins!“
Á fundinum munu Hilma Hólm
hjartalæknir og Erna Ívarsdóttir
tölfræðingur kynna helstu niður-
stöður nýrrar rannsóknar sinnar á
langtímaáhrifum SARS-CoV-2-
sýkingar, en svo munu þau Daníel
Fannar Guðbjartsson stærðfræð-
ingur og Þórunn Á. Ólafsdóttir
ónæmisfræðingur kynna rannsókn
sína á því hvernig líkaminn losar
sig við veiruna og verst endurtekn-
um sýkingum.
Sérhvert SARS-CoV-2-tilfelli á
Íslandi er raðgreint af Íslenskri
erfðagreiningu í rauntíma og eru
þau gögn notuð til að aðstoða við
rakningu smita. Páll Melsted, pró-
fessor í tölvunarfræði, Kristján
Eldjárn Hjörleifsson doktorsnemi
og Sölvi Rögnvaldsson stærðfræð-
ingur fjalla um hvernig raðgrein-
ingar á veirunni nýtast í barátt-
unni við Covid-19 og kynna nýtt
líkan af þriðju bylgju faraldursins.
Sú bylgja samanstóð nær eingöngu
af smitum sem rekja má til eins
einstaklings sem slapp í gegnum
eftirlit á landamærunum. Með því
að styðjast við líkanið má reikna út
smitstuðul einstakra hópa og ald-
ursflokka og bera saman smitstuð-
ul innan og utan sóttkvíar.
Beint streymi á mbl.is
Fundurinn hefst klukkan 14 og
verður streymt beint, en streymið
má nálgast á mbl.is. Kári Stefáns-
son, forstjóri Íslenskrar erfða-
greiningar, stýrir fundinum og
dregur saman í lokin hvaða lær-
dóma megi draga af þessum rann-
sóknum í viðureigninni við fjórðu
bylgju heimsfaraldursins á Íslandi.
Sérstakir gestir á fundinum
verða Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra, Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra, Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra og
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Kynna rannsóknir á Covid-19 í dag
- Fræðslufundur Íslenskrar erfðagreiningar í beinu streymi - Rannsóknarniðurstöður á langtímaáhrif-
um af völdum kórónuveirunnar - Niðurstöður um ónæmisþætti - Rannsókn á smitdreifingu kynnt
Kári
Stefánsson
Morgunblaðið/Júlíus
Fræðslufundur Íslensk erfðagreining efnir til fræðslufundar í dag, þar sem
kynntar verða margvíslegar niðurstöður rannsókna sem tengjast Covid-19.
Alexander Gunnar Kristjánsson
alexander@mbl.is
Áhyggjuefni er hve langur tími leið
frá sóttkvíarbroti manns sem kom
til landsins þar til hópsmitið sem
rakið er til þess kom upp. Þetta seg-
ir Víðir Reynisson, yfirlög-
regluþjónn hjá almannavörnum. Það
gefi tilefni til að óttast að veiran hafi
fengið að grassera um hríð með til-
heyrandi samfélagssmiti, eins og
hann orðar það.
„Rakningin er erfið því það er lið-
inn svo langur tími og fólk er búið að
vera á ferðinni,“ segir Víðir. Sjald-
gæft sé að rakningarteymið sé að
rekja saman samskipti svo langt aft-
ur, en það hefur
þó gengið ágæt-
lega. Búið er að
tengja smit sem
greindust á leik-
skólanum Jörfa
og önnur smit
laugardagsins við
veitingahús í
borginni. 13 kór-
ónuveirusmit
greindust innan-
lands í gær, þar af voru átta utan
sóttkvíar.
Umræddur sóttkvíarbrjótur kom
til landsins frá Póllandi í lok mars.
Það var stuttu áður en reglur um
skyldudvöl á sóttkvíarhótelum, sem
síðar voru dæmdar ólöglegar, tóku
gildi og átti viðkomandi því að halda
sóttkví heima hjá sér. Á öðrum degi
sóttkvíar, þegar hringt var í hann,
kom í ljós að hann var ekki þar sem
hann sagðist myndu halda sig.
Smitrakningu vegna þess var lok-
ið þegar skyndilega tóku að greinast
smit tengd leikskólanum Jörfa í
Hæðargarði í Reykjavík og hafa þau
síðar verið rakin til sóttkvíarbrots-
ins. Maðurinn er ekki starfsmaður á
leikskólanum, en virðist hafa ein-
hver tengsl við hann, segir Víðir, án
þess að vilja fara nánar út í það.
Flestir þeirra sem hafa smitast á
leikskólanum eru starfsmenn, en þó
hefur eitt barn hið minnsta smitast.
Langur tími á milli sótt-
kvíarbrots og hópsmits
- Mögulega hafi kórónuveiran fengið að grassera um hríð
Víðir
Reynisson
Um helgina fóru fram tökur á tón-
listarmyndbandi fyrir lagið „Húsa-
vík – My Home Town“, úr kvik-
myndinni Eurovision Song Contest:
The Story of Fire Saga, en lagið er
tilnefnt til Óskarsverðlaunanna í
ár. Kvikmyndafyrirtækið True
North framleiðir myndbandið í
samstarfi við Netflix og verður það
sýnt á verðlaunaafhendingunni 25.
apríl. Sænska söngkonan Molly
Sandén kom til Íslands fyrir tök-
urnar og heillaði hún stúlknakórinn
sem söng með henni í tónlistar-
myndbandinu. „Molly er alveg heill-
uð af Húsavík og segist vilja flytja
hingað,“ segir Örlygur Hnefill Ör-
lygsson sem aðstoðaði við tökurnar
um helgina. Tökurnar voru skipu-
lagðar með litlum fyrirvara en
myndbandið átti að vera tekið upp í
Bandaríkjunum. Vegna heimsfar-
aldursins komst Sandén ekki til
Bandaríkjanna og því var ákveðið
að taka myndbandið upp á Húsavík.
Tökum lauk í gærkvöldi með glæsi-
brag þegar flugeldum var skotið á
loft af höfninni.
Tökur fyrir Óskarsverðlaunin á Húsavík
Sandén
heilluð af
Húsavík
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson