Morgunblaðið - 19.04.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
NÚ FÁST BOSCH
BÍLAVARAHLUTIR HJÁ KEMI
TUNGUHÁLSI 10
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík, mótmælir harðlega
þeim áformum meirihluta borgar-
stjórnar Reykjavíkur að lækka há-
markshraða á öllum götum í umsjá
borgarinnar. Skipulags- og sam-
gönguráð Reykjavíkurborgar sam-
þykkti á miðvikudag nýja áætlun um
hámarkshraða á götum borgarinnar.
Með henni verða nær allar götur með
40 kílómetra hámarkshraða eða
lægri. Í yfirlýsingu Varðar segir að
reynslan hafi sýnt að þegar þrengt sé
að umferð á tengibrautum og stofn-
leiðum leiti umferð frekar inn í íbúða-
hverfin og það verði til þess að um-
ferðaröryggi allra vegfarenda sé
ógnað. Tekið er dæmi um þrengingu
Hofsvallagötu árið 2014 en þá fjölgaði
ökutækjum um 1.000 á sólarhring í
nærliggjandi íbúðagötum. Vörður
skorar á borgaryfirvöld að hverfa frá
áformunum og leita annarra leiða til
að minnka svifryk í borginni. Breyt-
ingarnar séu gerðar undir því yfir-
skini að lækka eigi umferðarhraða til
að draga úr svifryksmengun. Þrif á
götum borgarinnar hafi ekki verið
nægileg og þrífa þurfi götur Reykja-
víkur oftar en einu til tvisvar á ári.
Nær væri, að mati Varðar, að leggja
áherslu á þrif á stofnbrautum og betri
snjómokstur sem muni frekar draga
úr notkun nagladekkja.
Mótmæla lækkun hámarkshraða
- Segja reynsluna sýna að þrenging
gatna ógni öryggi allra vegfarenda
Morgunblaðið/Rósa Braga
Breytingar á götum Hofsvallagata
í Reykjavík var þrengd árið 2014.
Kolbeinn Ó. Proppé, þingmaður
Vinstri grænna, segist ætla að
svara því á allra næstu dögum
hvort hann gefi kost á sér í forvali
Vinstrihreyfing-
arinnar – græns
framboðs í
Reykjavík. Hóp-
ur flokkssystkina
hans hefur skor-
að á hann að gefa
kost á sér í
höfuðborginni.
„Ég tek
ákvörðun á
næstu dögum,“
segir Kolbeinn í
samtali við mbl.is, en framboðs-
frestur fyrir forvalið í Reykjavík
rennur út næstkomandi sunnudag.
Áskorunin kom fram eftir að Kol-
beinn reyndi fyrir sér í forvali
flokksins í Suðurkjördæmi og hlaut
þar sæti, sem skilar honum nær
örugglega ekki þingsæti.
„Ég er hrærður og upp með mér
yfir þessum stuðningi, sem felst í
áskoruninni,“ segir Kolbeinn.
„Þarna eru á blaði nöfn sem hafa
verið lífið og sálin í Reykjavíkur-
félaginu um langa hríð og ég tek
mark á því þegar þau segjast telja
þetta best fyrir Vg.“
Kolbeinn kvaðst auk áskorunar-
innar einnig hafa hlotið fjölda skila-
boða og símtala með hvatningu til
sín um framboð. Hann segir að sér
þyki mjög vænt um það allt, en
hann vilji hugsa málið.
Ekki sjálfgefin ákvörðun
en hún kemur
„Það er ekkert sjálfgefið að fara
úr einu forvali í annað, hafi maður
ekki náð tilsettum árangri, fyrir nú
utan hitt að það er töluvert fyrir-
tæki að taka þátt í forvali.
Ég hef legið undir feldi um mín
mál síðustu daga, en ég kem undan
honum og helginni með ákvörðun,“
segir Kolbeinn.
Kolbeinn Óttarsson Proppé hefur
setið á þingi fyrir Reykjavík suður
síðan 2016, en ákvað að reyna fyrir
sér í forvali flokksins í Suður-
kjördæmi á dögunum, þar sem
hann sóttist eftir fyrsta sæti listans,
en varð að gera sér 4. sætið að
góðu.
Við svo búið mátti heita ljóst að
hann hyrfi af þingi og því birtu 20
atkvæðamenn flokksins í Reykjavík
áskorun til Kolbeins á Facebook-
síðu Álfheiðar Ingadóttur, fv. þing-
manns og ráðherra, um að hann
gæfi áfram kost á sér í borginni.
Kolbeinn íhugar að
fara fram í Reykjavík
- Bregst við áskorunum á næstu dögum
Kolbeinn Ó.
Proppé
Athygli vekur að fulltrúi Við-reisnar í borgarstjórn skuli
heilshugar verja þau áform borg-
arstjóra Samfylkingar og Píratans
sem stýrir skipulagsmálum borg-
arinnar, að eyða vel
á annan milljarð
króna á næstu ár-
um í að þrengja
götur til að ná nið-
ur hámarkshraða.
Þetta kom fram í
Morgunblaðinu um
helgina og er enn
eitt dæmi þess að ekkert skilur á
milli Viðreisnar og hinna ESB-
flokkanna. Jafnvel í umferðar-
málum telur flokkurinn sig verða
að hengja sig aftan í Samfylkingu
og Pírata.
- - -
Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðis-félaganna í Reykjavík, sendi í
gær frá sér ályktun um þetta mál
sem var öllu uppbyggilegri. Þar er
þessum áformum harðlega mót-
mælt enda muni þau „að öllu
óbreyttu ýta umferðinni frekar inn
í íbúðahverfi borgarinnar, sem
verður til þess að ógna umferðar-
öryggi allra vegfarenda“.
- - -
Í ályktuninni segir ennfremur:„Reynslan hefur sýnt, að þegar
þrengt er að umferð á tengibraut-
um og stofnleiðum, leitar umferð
frekar inn í íbúðahverfin. Skýrt
dæmi um þetta er frá árinu 2014,
þegar borgaryfirvöld þrengdu að
umferð á Hofsvallagötu. Þetta
varð til þess, að ökutækjum fjölg-
aði um 1.000 á sólarhring í nær-
liggjandi íbúðargötum og er það
samkvæmt talningu borgar-
yfirvalda sjálfra.“
- - -
Borgaryfirvöld neita að þrífagötur reglulega enda væri þá
minna um svifryk og erfiðara að
rökstyðja árásirnar á fjölskyldubíl-
inn. En telja þau að fólk verði
ánægt með að bílum sé enn frekar
ýtt inn í íbúðahverfin?
STAKSTEINAR
Pawel Bartoszek
Viðreisn er líka á
móti einkabílnum