Morgunblaðið - 19.04.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021
Erum með þúsundir vörunúmera
inn á vefverslun okkar brynja.is
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Vandaðir þýskir
póstkassar, hengi-
lásar, hjólalásar
og lyklabox.
MIKIÐ ÚRVAL
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau f
rá 1
0-16
Bergur Þorri Benjamínsson, for-
maður Sjálfsbjargar, landssam-
bands hreyfihamlaðra, deildi í gær
mynd á Facebook-síðu sinni þar sem
búið var að koma fyrir bæði gulri
steypublokk og blómakeri í bílastæði
fyrir fatlaða við Hafnarhúsið í
miðbæ Reykjavíkur.
„Þarna eru einhverjar fram-
kvæmdir og ég læt það vera að gula
steypublokkin hafi verið í öðru stæð-
inu, en hingað til veit ég ekki til þess
að menn hafi afmarkað fram-
kvæmdasvæði með blómakeri,“ seg-
ir Bergur og bætir við að ef ekki
hefði verið fyrir blómakerið hefði
hann kannski látið þetta fram hjá sér
fara.
Bergur segir þá mikinn vafa leika
á því að þörf hafi verið fyrir að koma
blómakerinu fyrir á þessum stað.
Bergur bendir þar að auki á að það
sé „ekkert alltof mikið af stæðum
fyrir fatlaða í miðborginni,“ og að
þessi stæði séu þar að auki með betri
stæðum miðborgarinnar, þau séu
ekki í halla, alveg slétt og nægt pláss
í kringum þau.
„Lögin eru alveg skýr að það sem
eigi að vera í stæði fyrir fatlaða, það
er bíll sem er merktur fötluðum ein-
staklingi og ekkert annað. Menn
mættu alveg fara yfir reglurnar
vegna þess að þær eru eins og ég
segi að mínu mati alveg skýrar,“ seg-
ir Bergur og bætir við að ef nota þarf
bílastæði fyrir fatlaða vegna fram-
kvæmda verði að vera skýrt að svo
sé.
Að lokum bendir Bergur á að hann
hafi sent borgarstjóra og fleiri að-
ilum innan borgarkerfisins skilaboð.
Þeir aðilar eru að kanna málið til að
fá fullnægjandi skýringar.
gunnhildursif@mbl.is
Ljósmynd/Aðsend
Stæði Við Hafnarhúsið í Reykjavík er búið að koma fyrir bæði steypuklumpi og blómakeri á bílastæði fyrir fatlaða.
Blómaker í bílastæði
- Segir mikinn vafa leika á því að þörf hafi verið fyrir kerið
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
„Við verðum að fá þetta sumar inn
og síðan vonandi tekur haustið betur
við sér, eða verður heldur betra en
við áttum von á
fyrir einhverjum
mánuðum,“ segir
Jóhannes Þór
Skúlason, fram-
kvæmdastjóri
Samtaka ferða-
þjónustunnar.
Hann segir að
Bandaríkjamark-
aðurinn sé farinn
að taka við sér en
að hreyfingar á
Evrópumarkaði séu hægari.
Bólusetningar eru komnar vel á
veg bæði í Bandaríkjunum og Bret-
landi sem og í Ísrael. Jóhannes segir
að einhver áhugi hafi heyrst frá Ísr-
ael en að fyrirtæki séu ekki að herja
á þann markað með beinum hætti þó
að bólusetningar gangi vel þar í
landi. „Íraelsmenn eru tiltölulega
lítill hluti af flórunni sem kemur til
landsins,“ segir Jóhannes.
Bólusetningar hér á landi skipta
líka sköpum fyrir ferðaþjónustuna
og gangi bólusetningaráætlanir eftir
segir Jóhannes að fyrirtæki í ferða-
þjónustu geti leyft sér að horfa fram
á bjartari tíma.
Áhyggjurnar eru mestar af þeim
fyrirtækjum sem sækja helst tekjur
sínar til ferðamanna frá Evrópu þar
sem þau þurfi að öllum líkindum að
bíða lengur eftir að markaðurinn
taki við sér samanborið við þann
bandaríska.
„Fyrirtækin eru náttúrlega í mjög
erfiðri stöðu fyrir, mörg þeirra hafa
safnað upp skuldum til að lifa í
gegnum þessa stöðu. Þau hafa mörg
hver verið tekjulaus í eitt og hálft
ár. Þetta er mjög flókin og erfið
staða til að vinna sig út úr,“ segir
Jóhannes.
Aukið flugframboð
Hann segir að það sé mikilvægt
að ef sumarið fari hægt af stað taki
haustið við og bæti upp fyrir þær
tekjur sem ekki skiluðu sér á sumar-
mánuðum. Árstíðasveiflan sé það
mikil hér á landi að það sé mikilvægt
að ástandið batni sem fyrst. Í könn-
un Maskínu sem framkvæmd var í
febrúar á helstu markaðssvæðum ís-
lenskra fyrirtækja í ferðaþjónustu
kom fram að ferðamenn væru opnir
fyrir því að ferðast utan hefðbund-
ins sumarleyfistíma.
Aukið flugframboð til landsins
hefur líka haft jákvæð áhrif á bók-
anir og áhuga að sögn Jóhannesar. Í
maí hefur Delta Air Lines flug til Ís-
lands frá þremur borgum í Banda-
ríkjunum, Boston, New York og
Minneapolis. Flugfélagið Icelandair
hefur bætt nýjum áfangastöðum við
leiðakerfi sitt og í sumar verður
flogið til 11 áfangastaða í Norður-
Ameríku og 23 áfangastaða í
Evrópu.
Bandaríkin taka
fyrr við sér
- Bólusetningar skipta sköpum
Jóhannes Þór
Skúlason