Morgunblaðið - 19.04.2021, Qupperneq 27
kom frá norska fé-
laginu Lilleström í
byrjun árs, mun
missa af fyrstu
umferðum Ís-
landsmótsins.
_ Enska knatt-
spyrnufélagið
Wolves hefur mik-
inn áhuga á að kaupa Skagamanninn
unga Ísak Bergmann Jóhannesson af
sænska félaginu Norrköping. Tele-
graph greinir frá því að enska félagið
hafi fylgst með Ísak að undanförnu og
vilji fá hann í sínar raðir. Á sama tíma
hafa Úlfarnir hins vegar áhyggjur af að
Ísak fái ekki atvinnuleyfi á Englandi
eftir útgöngu Breta úr Evrópu-
sambandinu. Samkvæmt Telegraph er
Ísak metinn á fimm milljónir punda og
er honum líkt við Gylfa Þór Sigurðs-
son. Ísak hefur spilað tvo landsleiki og
verið í stóru hlutverki hjá Norrköping,
þrátt fyrir ungan aldur.
_ Knattspyrnumaðurinn Óttar Magn-
ús Karlsson mun ekki spila meira með
Venezia á yfirstandandi leiktímabili
eftir að hafa brotið bein í fæti. Frá
þessu var greint á Fótbolta.net. Þar
segir að Óttar verði frá kepnni næstu
átta vikurnar, sem þýðir að hann nær
ekki síðustu fjórum leikjum ítölsku B-
deildarinnar né líklegum umspils-
leikjum Venezia, en liðið er sem stend-
ur í 5. sæti deildarinnar og fara sæti
3-8 í umspil um laust sæti í A-deildinni.
_ Knattspyrnudeild HK hefur tilkynnt
að tveir lykilmanna liðsins hafi fram-
lengt samninga sína. Þetta eru mark-
vörðurinn Arnar Freyr Ólafsson og
miðjumaðurinn Arnþór Ari Atlason.
Báðir gera þeir samning út keppnis-
tímabilið 2023. Arnar Freyr gekk til liðs
við HK fyrir tímabilið 2016 og á að baki
116 leiki í efstu fjórum deildunum hér á
landi, þar af 35 í efstu deild. Arnþór Ari
gekk til liðs við HK vorið 2019 og hefur
spilað 194 leiki í efstu tveimur deild-
unum hér á landi, þar af 135 í efstu
deild.
_ Hallbera Guðný Gísladóttir, lands-
liðskona í fótbolta, er strax komin í mik-
ilvægt hlutverk hjá sænska liðinu AIK en
hún var fyrirliði liðsins í 1:1-jafnteflinu
gegn Växjö á laug-
ardag í 1. umferð
sænsku úrvals-
deildarinnar. Leik-
urinn var sá fyrsti
hjá Hallberu í nýju
liði og lék hún allan
leikinn.
_ Sveindís Jane
Jónsdóttir var einnig snögg að láta að
sér kveða í sænska boltanum því hún
skoraði eftir aðeins tólf mínútur í sín-
um fyrsta deildarleik með Kristians-
tad, sem Elísabet Gunnarsdóttir þjálf-
ar. Liðið gerði jafntefli við Eskilstuna á
útivelli, 1:1. Sveindís er að láni hjá
Kristianstad frá þýska stórliðinu
Wolfsburg.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. APRÍL 2021
HANDBOLTI
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Handknattleikslið Álaborgar hefur
unnið danska meistaratitilinn und-
anfarin tvö tímabil og stefnir að því
að verja hann á yfirstandandi tíma-
bili. Félagið virðist þó ekki ætla að
láta sér nægja að vera besta lið
Danmerkur. Liðstyrkurinn sem von
er á í sumar og sumarið þar á eftir
gefur það sterklega til kynna að
stefnan sé tekin á að festa sig í sessi
sem eitt af stórveldum Evrópu.
Nú þegar hefur verið tilkynnt um
komu þriggja sterkra leikmanna,
sem allir koma úr þýsku 1. deildinni
og ganga til liðs við Álaborg í sum-
ar. Sænski línumaðurinn Jesper
Nielsen kemur til liðsins frá Rhein-
Neckar Löwen, norski hægri horna-
maðurinn Kristian Björnsen frá
Wetzlar og danska hægri skyttan
Martin Larsen frá Leipzig.
Um helgina greindi danska sjón-
varpsstöðin TV2 svo frá stærstu fé-
lagaskiptum sumarsins; Arons
Pálmarssonar frá Barcelona til Ála-
borgar. Aron er sagður munu ganga
til liðs við Danmerkurmeistarana
eftir núverandi tímabil og skrifa
undir þriggja ára samning. Félögin
eiga þó eftir að staðfesta tíðindin.
Auk þessa gífurlega liðstyrks nú í
sumar mun Mikkel Hansen ganga
til liðs við félagið sumarið 2022 frá
Frakklandsmeisturum París Saint-
Germain. Þá er uppi hávær orðróm-
ur um að Mads Mensah Larsen
muni yfirgefa þýska 1. deildar liðið
Flensburg til að ganga í raðir Ála-
borgar sumarið 2022.
Hvaðan koma peningarnir?
Ef Aron og Mensah Larsen bæt-
ast í hóp fjórmenninganna sem þeg-
ar er búið að staðfesta er ljóst að
byrjunarliðið sem Álaborg getur
stillt upp, sérstaklega frá og með
sumrinu 2022, verður ógnvænlega
sterkt.
En hvernig hefur félagið efni á að
fá til liðs við sig heimsklassa leik-
menn á við Hansen og mögulega Ar-
on og Mensah Larsen? „Laun launa-
hæstu leikmanna og annan kostnað í
viðskiptum í tengslum við þá verður
að fjármagna eingöngu með dag-
legum rekstri félagsins,“ sagði Jan
Larsen, framkvæmdastjóri og með-
eigandi Álaborgar, við danska við-
skiptablaðið Finans í febrúar sl.
„Peningarnir koma í gegnum sölu
aukaársmiða, kostun, sölu í sölubás-
um og treyjusölu. Allt sem mögulegt
er hvað varðar viðskipti. Við vorum
settir í heiminn til að vinna titla,
ekki til að setja peninga í bankann,“
sagði Larsen einnig og útskýrði
nánar:
„Við þurfum að eiga peninga í
bankanum en við setjum peningana
sem við fáum inn í aðstöðu fyrir
styrktaraðila til að gera það meira
aðlaðandi að vera bakhjarl, ársmiða-
hafi og aðdáandi, á meðan við fjár-
festum í leikmönnunum.“
Komnir langt í Meistaradeild
Álaborg er nú þegar með afar
sterkt lið enda ekki hlaupið að því
að vinna danska meistaratitilinn tvö
ár í röð. Á þessu tímabili hefur verið
lagður grunnur að því sem vænta
má frá liðinu á næstu árum þar sem
það er búið að tryggja sér sæti í átta
liða úrslitum Meistaradeildar Evr-
ópu í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Þar mun liðið mæta Flensburg
heima og að heiman í næsta mánuði.
Þó að það sé ólíklegt þetta tímabilið
er ekki loku fyrir það skotið að Ála-
borg verði fyrsta danska handknatt-
leiksliðið í sögunni til þess að vinna
Meistaradeildina, en það mun tím-
inn þó einn leiða í ljós.
Nýtt Evrópu-
stórveldi í
uppbyggingu?
- Aron Pálmarsson líklega til Álaborgar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ný áskorun Aron Pálmarsson mun styrkja lið Álaborgar verulega.
Spánn
Zaragoza – Gipuzkoa.......................... 99:71
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 13 stig,
gaf 5 stoðsendingar og tók 1 frákast á 16
mínútum með Zaragoza.
B-deild:
Ourense – Girona ................................ 73:71
- Kári Jónsson skoraði 12 stig, tók 2 frá-
köst og gaf 1 stoðsendingu á 21 mínútu með
Girona.
Litháen
CBet – Siaulai ...................................... 90:89
- Elvar Már Friðriksson skoraði 15 stig,
gaf 6 stoðsendingar og tók 3 fráköst á 30
mínútum með Siaulai.
NBA-deildin
LA Lakers – Utah ....................(frl.) 127:115
Washington – Detroit....................... 121:100
Chicago – Cleveland........................... 106:96
Boston – Golden State...................... 119:114
Milwaukee – Memphis ..................... 115:128
Phoenix – San Antonio....................... 85:111
Atlanta – Indiana.............................. 129:117
New York – New Orleans .........(frl) 122:112
Miami – Brooklyn............................. 109:107
4"5'*2)0-#
Þýskaland
RN Löwen – Hannover-Burgdorf ..... 33:28
- Ýmir Örn Gíslason skoraði 3 mörk fyrir
Löwen.
Flensburg – Bergischer...................... 29:22
- Alexander Petersson skoraði ekki fyrir
Flensburg.
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk
fyrir Bergischer.
Magdeburg – Melsungen.................... 31:27
- Ómar Ingi Magnússon skoraði 5 mörk
fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist-
jánsson er frá vegna meiðsla.
- Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki fyr-
ir Melsungen. Guðmundur Þ. Guðmunds-
son er þjálfari liðsins.
Göppingen – Nordhorn....................... 26:26
- Gunnar Steinn Jónsson skoraði ekki fyr-
ir Göppingen. Janus Daði Smárason er frá
vegna meiðsla.
Coburg – Lemgo.............................. Frestað
- Bjarki Már Elísson er leikmaður Lemgo.
Balingen – Kiel .................................... 22:33
- Oddur Gretarsson skoraði 4 mörk fyrir
Balingen.
B-deild:
Bietigheim – Fürstenfeldbruck......... 31:25
- Aron Rafn Eðvarðsson varði 5 skot í
marki Bietigheim.
Sachsen Zwickau – Nurtingen .......... 19:16
Díana Dögg Magnúsdóttir er með landslið-
inu og lék ekki með Zwickau.
Danmörk
Úrslitakeppnin, 1. riðill:
GOG – SönderjyskE ............................ 36:27
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 11 skot í
marki GOG.
- Sveinn Jóhannsson skoraði 1 mark fyrir
SönderjyskE.
_ GOG 6 stig, Bjerringbro/Silkeborg 3,
SönderjyskE 2, Kolding 0.
Úrslitakeppnin, 2. riðill:
Tvis Holstebro – Skanderborg .......... 34:29
- Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 4 mörk
fyrir Tvis Holstebro.
Aalborg – Skjern ................................. 41:32
- Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
- Elvar Örn Jónsson skoraði 4 mörk fyrir
Skjern.
_ Tvis Holstebro 5 stig, Aalborg 4, Skan-
derborg 2, Skjern 0.
Fallkeppnin:
Mors – Ribe-Esbjerg ........................... 21:27
- Rúnar Kárason skoraði 7 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg en Daníel Þór Ingason ekk-
ert.
_ Ribe-Esbjerg 5, Mors 3, Fredericia 3,
Lemvig 2, Aarhus 1.
Frakkland
Aix – Créteil..................................... Frestað
- Kristján Örn Kristjánsson er leikmaður
Aix.
Svíþjóð
Undanúrslit, annar leikur:
Kristianstad – Skövde......................... 27:33
- Teitur Einarsson skoraði 4 mörk fyrir
Kristianstad og Ólafur Guðmundsson 3.
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði
ekki fyrir Skövde.
_ Staðan er 2:0 fyrir Skövde.
Sviss
Kriens – Kadetten ............................... 37:26
- Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
Undankeppni HM kvenna
Umspil, fyrri leikir:
Úkraína – Svíþjóð................................. 14:28
Rúmenía – Norður-Makedónía ........... 33:22
Slóvenía – Ísland .................................. 24:14
Slóvakía – Serbía .................................. 19:26
Tékkland – Sviss................................... 27:27
Portúgal – Þýskaland........................... 27:32
Umspil, seinni leikur:
Ítalía – Ungverjaland........................... 12:41
_ Ungverjaland á HM, 87:31 samanlagt.
Vináttulandsleikir kvenna
Danmörk – Spánn................................. 27:23
%$.62)0-#
Lyon er úr leik í Meistaradeild Evr-
ópu í fótbolta eftir að hafa tapað 1:2
á heimavelli gegn löndum sínum í
París Saint-Germain í síðari leik lið-
anna í átta liða úrslitum í gær. Sara
Björk Gunnarsdóttir lék ekki með
Lyon vegna meiðsla. Lyon vann
fyrri leikinn 1:0 en PSG fór áfram á
fleiri mörkum skoruðum á útivelli.
Lyon er ríkjandi Evrópumeistari
síðustu fimm ára og það byrjaði vel
fyrir liðsfélaga Söru Bjarkar því
Catarina Macario kom Lyon yfir á 4.
mínútu. Grace Geyoro jafnaði hins
vegar á 24. mínútu og Wendie Ren-
ard skoraði sjálfsmark eftir rúmlega
klukkutíma leik og þar við sat.
PSG mætir Barcelona í undan-
úrslitum og Bayern München og
Chelsea eigast við í hinum undan-
úrslitaleiknum. Ljóst er að nýtt nafn
fer á Evrópubikarinn því ekkert af
liðunum fjórum sem eftir eru í
keppninni hefur áður orðið Evr-
ópumeistari. Karólína Lea Vil-
hjálmsdóttir leikur með Bayern.
AFP
Fögnuður Leikmenn París SG fagna sigurmarkinu í Lyon í gær.
Nýtt nafn á Evrópu-
meistarabikarinn
Leicester mætir Chelsea í úrslitum
ensku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu hinn 15. maí á Wembley í
London, en þetta varð ljóst um ný-
liðna helgi.
Hakim Ziyech skoraði sigurmark
Chelsea á 55. mínútu þegar liðið
mætti Englandsmeistaraefnunum í
Manchester City í undanúrslitum á
Wembley á laugardaginn en leikn-
um lauk með 1:0-sigri Chelsea.
Í gær mættust svo Leicester og
Southampton í hinu undanúrslita-
einvíginu á Wembley, þar sem loka-
tölur urðu 1:0 en þar var það Ke-
lechi Iheanacho sem skoraði
sigurmark leiksins, nánar tiltekið á
55. mínútu.
Arsenal er það lið sem hefur oft-
ast unnið ensku bikarkeppnina eða
fjórtán sinnum og Manchester Unit-
ed kemur þar á eftir með tólf bikar-
meistaratitla.
Chelsea er í þriðja sætinu með
átta bikarsigra en Leicester, sem
hefur fjórum sinnum leikið til úr-
slita, hefur aldrei unnið keppnina
en liðið lék síðast til úrslita árið
1969 þegar liðið tapaði 1:0 fyrir
Manchester City.
Chelsea hefur hins vegar fimm-
tán sinnum leikið til úrslita, síðast í
fyrra, þegar liðið tapaði 2:1 fyrir
Arsenal.
Þá féll Sheffield United úr ensku
úrvalsdeildinni um helgina þegar
liðið tapaði 1:0 fyrir Wolves í Wolv-
erhampton þar sem Willian Jose
skoraði sigurmark Úlfanna á 60.
mínútu.
Chelsea leikur til úr-
slita í sextánda sinn
AFP
Sigurmark Hakim Ziyech fagnar
marki á Wembley á laugardaginn.