Morgunblaðið - 19.04.2021, Page 32

Morgunblaðið - 19.04.2021, Page 32
stuðning við íslenska tónlist í út- varpi. Vegna kórónuveirufaraldursins hefur tónleikunum „Út við himin- bláu sundin“ verið frestað þrisvar en nú er stefnt að því að þeir verði í Salnum í Kópavogi 15. maí næst- komandi. Þar rifja Svanhildur, Helena Eyjólfs og Mjöll Hólm ásamt yngri söngkonunum Hug- rúnu Sif Hallgrímsdóttur, Hrein- dísi Ylvu Garðarsdóttur Holm og Sigurlaugu Vordísi Eysteinsdóttur upp nokkur af vinsælustu dægur- lögum fyrri ára. Goslokahátíðin í Vestmanna- eyjum verður 1. júlí og þangað hef- ur Svanhildur verið ráðin til að skemmta gestum. Hún er líka í hópi söngvara sem valdir voru til að flytja sjómannalög í Salnum, en tónleikunum hefur verið frestað þar til í október vegna veirufarald- ursins. Svanhildur áréttar að frá því að hún byrjaði að syngja hafi það allt- af verið jafn gaman. Hún hafi verið svo heppin að hafa verið í ágætu formi alla tíð og það hafi ekki síst haldið sér við efnið. „Heilsan hefur allt að segja, en ég geri ekkert sérstakt til þess að halda henni við nema að fara út að ganga með hundinn.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Margir íslenskir söngvarar hafa skemmt þjóðinni í áratugi og þar á meðal er Svanhildur Jakobsdóttir. „Ég hef sungið opinberlega með mislöngum hléum síðan ég byrjaði 19 ára gömul með Leiktríóinu í Þjóðleikhúskjallaranum,“ segir söngkonan, sem kemur væntanlega næst fram á sviði um miðjan maí. Svanhildur er með mörg járn í eldinum. Hún hefur verið með tón- listarþætti í Ríkisútvarpinu síðan 1987 og er núna með „Óska- stundina“ á föstudagsmorgnum. Hún sló í gegn í þættinum „Það er komin Helgi“ í Sjónvarpi Símans ekki alls fyrir löngu. „Það tínist alltaf eitthvað til og þetta er alltaf jafn gaman,“ segir hún. Ýmislegt á döfinni Svanhildur vann í Bókabúð Lár- usar Blöndal í Vesturveri, sem var í Morgunblaðshöllinni í Aðalstræti. Þá fékk Ólafur Gaukur, sem síðar varð eiginmaður hennar, hana til að syngja með Leiktríóinu, sem hann, Hrafn Pálsson og Kristinn Vilhelmsson höfðu stofnað nýlega. „Vesturver var fyrsta verslunar- miðstöð landsins, bókabúðin var fremst og stelpuna sem þar af- greiddi höfðu þeir félagar séð í söngleiknum Rjúkandi ráð eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni,“ seg- ir hún um upphafið. „Söngleik- urinn gekk vel en sýningum var lokið, söngkonu vantaði í tríóið, þremenningarnir buðu stúlkunni mér starfið og í kjölfarið byrjaði ballið sem enn stendur,“ upplýsir Svanhildur. Ólafur Gaukur var einn af braut- ryðjendum dægurtónlistar hér- lendis, samdi lög og texta og út- setti jafnt fyrir stórhljómsveitir sem djassbönd og allt þar á milli. Var afar áberandi í tónlistarlífinu hérlendis, en andaðist 2011. Svan- hildur söng með Sextett Ólafs Gauks á böllum, í sjónvarpsþáttum og inn á plötur, og hefur oftar en ekki tekið lagið eftir að þeim kafla lauk. „Segðu ekki nei“ var fyrsta lagið sem hún söng inn á plötu og kom út 1967, en 2016 fékk hún sér- staka viðurkenningu á Degi ís- lenskrar tónlistar fyrir góðan Gaman á sviðinu - Svanhildur Jakobsdóttir söngkona í framlínunni í áratugi Ljósmynd/Mummi Lú Það er komin Helgi Svanhildur Jakobsdóttir fór á kostum með Helga Björns og Reiðmönnum vindanna í beinni útsendingu fyrir skömmu. Í tilefni af 25 ára samstarfi Gallerís Foldar og lista- mannsins Harrys Bilsons hefur verið opnuð einkasýn- ing á verkum hans í Fold. Í tilkynningu segir að á sýn- ingunni megi sjá bæði ný verk eftir listamanninn og einnig úrval verka hans frá fyrri árum. Harry Bilson fæddist í Reykjavík árið 1948 en fluttist til Bretlands á unga aldri. Hann er að mestu sjálf- menntaður í listinni og er heimshornaflakkari sem dvalist hefur víða um heim við listsköpun sína, en hefur kallað Ísland heimili sitt síðustu tvo áratugina. 25 ára samstarfi með Harry Bilson fagnað á sýningu í Gallerí Fold MÁNUDAGUR 19. APRÍL 109. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Íslenska kvennalandsliðið í handbolta fékk 14:24-skell gegn Slóveníu ytra í fyrri leik liðanna í undankeppni HM á laugardag. Eins og lokatölurnar gefa til kynna átti ís- lenska liðið erfitt með feikisterka vörn slóvenska liðs- ins. Vörn og markvarsla Íslands var í fínu lagi í leiknum en betur má ef duga skal í sóknarleiknum. Lovísa Thompson var markahæst íslenska liðsins með fimm mörk en markverðirnir Elín Jóna Þorsteinsdóttir og Saga Sif Gísladóttir voru bestu leikmenn Íslands. Liðin mætast í seinni leiknum á Ásvöllum á miðvikudag. »26 Íslenska kvennalandsliðið fékk tíu marka skell í Slóveníu ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.