Morgunblaðið - 21.04.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.04.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 stendur Reykjavíkurborg straum af þeim. Gengið var til samninga við Gleipni verktaka ehf. um að vinna verkið fyrir 65 milljónir króna. Framkvæmdirnar felast m.a. í gerð aðkomuvegar að nýjum mælireit, jarðvegsskiptum innan reits, und- irstöðum fyrir mælitæki og möstur, girðingum og umhverfisfrágangi. Nýi reiturinn er á lóð vestan Veð- urstofunnar sem kölluð er „Litla Öskjuhlíð“. Óðinn Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri hjá Veðurstofunni, hefur yfirumsjón með verkinu af hennar hálfu. Eiginlegar fram- kvæmdir hófust við reitinn um miðj- an ágúst 2020. Upphaflega átti framkvæmdum að ljúka fyrir 1. okt. 2020 og sam- anburðartímabilið að hefjast þá. „Þegar ljóst var að það tækist Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Unnið hefur verið að því að koma fyrir tækjum á nýjum mælireit hjá Veðurstofunni við Bústaðaveg. Gamli reiturinn þarf að víkja vegna nýrrar íbúðabyggðar, sem rísa mun þarna í fyllingu tímans. Vel þarf að vanda til verka svo hægt verði að tryggja samanburð við fyrri mæl- ingar, sem ná allt aftur til ársins 1820, eða meira en 200 ár. Borgarstjóri og fjármálaráðherra undirrituðu hinn 2. júní 2017 sam- komulag um að vinna sameiginlega að þróun og skipulagningu á lóðum í Reykjavík sem eru ýmist í eigu eða umráðum ríkisins. Færsla veður- mælireitsins við Veðurstofuna var forsenda þess að taka megi svæðið, sem markast af Bústaðavegi og Kringlumýrarbraut, austan við nú- verandi húsnæði Veðurstofu Ís- lands, nefnt Veðurstofuhæðin, til deiliskipulags og uppbyggingar íbúðarhúsnæðis. Áætlað er að á reitnum geti risið allt að 150 íbúðir, ætlaðar námsmönnum, tekjulágum og ungu fólki til fyrstu kaupa. Veðurstöðvakerfi byggt upp Það var svo í mars 2018 að Reykjavíkurborg og Veðurstofan undirrituðu samkomulag um nýja mælireitinn. Til að hraða mætti vinnunni og stytta samanburð- artíma sem nauðsynlegur er til að ná samfellu í veðurmælingum í Reykjavík, fól samningurinn einnig í sér uppbyggingu veðurstöðvakerfis, tíu stöðva í borginni og nær- umhverfi hennar. Framkvæmdir voru boðnar út í fyrrahaust og ekki var frágangi frestað fram yfir harðasta vetur, en ég á von að þeim ljúki nú í byrjun sumars,“ segir Óð- inn. Einungis er búið að koma fyrir tækjum til grunnmælinga á vindi hita og raka (óformlegar mælingar). Tekur við í sumarbyrjun 2023 Samanburðartímabilið þarf að vera samfellt í sem næst tvö ár, eða frá byrjun október til loka maí. Því sé nú miðað við að öll tæki verði komin upp 1. okt. 2021. Nú er gert ráð fyrir að nýr reitur taki við í sum- arbyrjun 2023 og sá gamli leggist af frá sama tíma. Á meðan engar fram- kvæmdir verða hafnar á Veður- stofuhæðinni megi þó gera ráð fyrir að lengt verði í samanburðar- tímabilinu, svo lengi sem færi gefst til. „Samanburðarmælingarnar ná til þeirra þátta sem við köllum hefð- bundnar mælingar, vindur lofthiti, raki, úrkoma, snjódýpt, hiti við jörð og í jarðvegi. Veðurþættir sem ekki hafa verið mældir sjálfvirkt áður eru t.d. skyggni og skýjahæð,“ segir Óðinn. Veðurstofan Íslands tók til starfa fyrir rúmlega einni öld eða 1. janúar 1920. Hún var til húsa að Skóla- vörðustíg 3 allt til 1931, er hún flutti í Landssímahúsið við Austurvöll. Veðurstofan flutti í hús Sjómanna- skólans við Háteigsveg í árslok 1945. Í ársbyrjun 1950 fluttist öll starfsemi stofnunarinnar, er laut að daglegri veðurþjónustu, í gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli og tólf árum seinna í þann nýja, en önnur starfsemi varð um kyrrt í Sjó- mannaskólahúsinu. Árið 1973 flutt- ist öll starfsemi Veðurstofunnar að Bústaðavegi 9. Morgunblaðið/Baldur Arnarson Nýr mælireitur Hann er staðsettur á „Litlu Öskjuhlíð“ vestan megin við húsnæði Veðurstofunnar við Bústaðaveg. Reiturinn er af svipaðri stærð og núverandi mælireitur eða um 1.000 fermetrar. Nýr mælireitur senn tilbúinn - Til að tryggja samanburð við fyrri mælingar verður veðrið mælt á báðum reitum næstu tvö árin Vegagerðin er byrjuð að leita að nýrri ferju til áætlunarsiglinga á Breiða- firði. „Vegagerðin er að líta í kringum sig varðandi nýjan Baldur. Við höfum skoðað skip í nágrannalöndunum sem henta á þessu hafsvæði en það eru ekki mörg skip eða ferjur sem það gera og engin er á söluskrá,“ segir G. Pétur Matthíasson, upplýsinga- fulltrúi Vegagerðarinnar. Hann segir að hjá Vegagerðinni sé í gangi þarfagreining um framtíð sigl- inga á Breiðafirði. „Baldur er að sigla og uppfyllir öll skilyrði og leyfi til þess þannig að það er enginn bráðavandi til staðar.“ Núverandi ferja er komin til ára sinna, smíðuð í Molde í Noregi árið 1979. Hún er 1.677 brúttótonn og tek- ur 280 farþega og 55 fólksbíla. Sæ- ferðir ehf. gera Baldur út með samn- ingi við Vegagerðina. Sem kunnugt er varð alvarleg bilun í aðalvél Baldurs í síðasta mánuði og var skipið dregið inn til Stykkishólms. Um borð voru 20 farþegar og átta manna áhöfn. „Framtíðin er ný ferja, sem þjónar betur þörfum atvinnustarfseminnar fyrir vestan og svæðinu í heild,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- ráðherra, þegar Morgunblaðið leitaði eftir viðbrögðum hans vegna bilunar- innar í Baldri. Stjórnvöld hafi verið með áform um að fara í orkuskipti í ferjum þegar komi að endurnýjun þeirra. Það hafi verið gert með nýjum Herjólfi og einnig hafi verið horft til Baldurs og Hríseyjarferjunnar. sisi@mbl.is Ljósmynd/Viktor Björnsson Bilunin Baldur var dreginn til Stykkishólms í síðasta mánuði, vélarvana. Vegagerðin hefur leit að nýjum Baldri Góður ferðafélagi! AirMini kæfisvefnsvélin Sú allra minnsta og hljóðlátasta á markaðnum í dag. Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is Auðvelt að taka með í: Bústaðinn • Veiðina • Golfferðina • Fríið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.