Morgunblaðið - 21.04.2021, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
Street Tray
Verð: 19.995.-
Stærðir: 36 - 41
Street Tray
Verð: 19.995.-
Stærðir: 36 - 41
Soft 7
Verð: 19.995.-
Stærðir: 40 - 47
Soft 7
Verð: 19.995.-
Stærðir: 40 - 47
ECCO GÖTUSKÓR
Vandaðir og góðir sumarskór
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
SMÁRALIND – DUKA.IS
Componibili
3ja hæða hirslur úr endurunnu plasti
NÝIR LITIR
29.900,- stk.
Kartell
Michael Raymond er búsettur á
Íslandi og er ótrúlega hæfi-
leikaríkur ljósmyndari, heillaður af
samspili ljóss og skugga. Nýlega
lauk hann við myndaseríu sína
Speglun úr laugunum sem hann
stefnir á að setja upp sem sýningu
síðar í vor.
Myndaserían samanstendur af
fjögurra mánaða ferðalagi hans um
landið þar sem hann heimsótti yfir
40 sundlaugar um allt Ísland, synti
í þeim og myndaði þær svo á ótrú-
lega skemmtilegan hátt. Ég spjall-
aði aðeins við Michael um þetta
fallega og áhugaverða verkefni.
Hann segir hugmyndina hafa
kviknað út frá því að hann byrjaði
að taka þátt í sundlaugamenningu
Íslendinga. Í fyrstu var hann örlít-
ið hikandi en fór fljótt að skilja
hvað heillaði við laugarnar. Hann
fór því að heimsækja fleiri og fleiri
laugar og því oftar sem hann fór
því heillaðri varð hann af ólíkri
lögun, mynstrum og línum laug-
anna og hvernig þær blandast
saman í mjúkum litum.
Ljósmyndaverkefnið gaf honum
mikið og segir hann sundlaugarnar
hafa verið leiðarljós úr skugga
hjartans, einmanaleika og missi.
Þær gáfu honum spegil til að líta í,
þær gáfu honum tilgang og þær
gáfu honum líf.
Hann segist hafa áttað sig í kjöl-
farið á að sundlaugarnar og menn-
ingin í kringum þær eigi skilið að
vera fagnað. Landslagið tekur oft
yfir athygli fólks, af augljósum
ástæðum, en hann komst að því að
sundlaugarnar bjóða einnig upp á
jafn mikið rými fyrir innri og ytri
endurspeglun og hugarró. Svo ekki
sé minnst á að fallega birtan og
ljósið sem færir líf í íslenska lands-
lagið skín jafn skært í sundlaugar
landsins.
Á heimasíðu Michaels stendur
meðal annars:
„Vatn og líf tengjast órjúfan-
legum böndum. Vatn gefur líf og
endurspeglar ljósi. Það er því eng-
in furða að laugar Íslands séu full-
kominn staður til að velta lífinu
fyrir sér. Staður þar sem við get-
um horft á speglað yfirborð meðan
við látum hugann reika í ró og
meðal fólks. Hér getum við upp-
lifað dansinn á milli ljóss og myrk-
urs, bæði á yfirborði vatnsins og
innra með okkur.“
Ótrúlega fallegt verkefni og
dásamlegar myndir af því undri
sem sundlaugar eru. Ég hlakka
mikið til að geta skellt mér á ljós-
myndasýninguna með hækkandi
sól og ég mæli með því að hafa
augun opin fyrir listinni sem um-
kringir okkur, án þess að við verð-
um alltaf vör við hana.
Linkur: https://www.speglun.is/
Sundlaugar Íslands hinn
fullkomni staður til að
velta lífinu fyrir sér
Michael Raymond synti í og myndaði yfir 40 sundlaugar um allt Ísland og nýlega lauk
hann við myndaseríuna Speglun úr laugunum. Hugmyndin að myndaseríunni kvikn-
aði eftir að Michael byrjaði að taka þátt í sundlaugarmenningu Íslendinga.
Ljósmynd/Michael Raymond/Speglu
Sundlaug Myndir Michael sýna íslenskar sundlaugar í nýju ljósi.
Skjáskot/Speglun.is
Michael Raymond Hér getum við upplifað dansinn á milli ljóss og myrkurs,
bæði á yfirborði vatnsins og innra með okkur.
Ljósmynd/Michael Raymond/Speglu
Regnbogalitir Litir regnbogans endurspeglast í sundlaugarvatninu.