Morgunblaðið - 21.04.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 21.04.2021, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Uppgröfturinn í manngerðum hellum í Odda á Rangárvöllum er einstakur. Það hefur ekki áður verið grafið í hellum hér á landi sem hafa verið óraskaðir jafn lengi og þessir. Hellir sem við erum að grafa upp núna hefur verið lokaður í minnst 800 ár. Það er alveg einstakt að kom- ast í gólflög í mannvirki sem hefur verið óraskað jafn lengi og þetta,“ segir Kristborg Þórsdóttir, forn- leifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands og stjórnandi fornleifahluta Oddarannsókn- arinnar. Hún er einnig ritstjóri nýrrar skýrslu um það sem ávannst í forn- leifarannsókn í Odda 2020. Fjöldi áður óþekktra minja var þá skráður. Þar ber hæst fjölda mann- gerðra hella og fornar minjar við Kamphól þar sem Þverá og Ytri- Rangá sameinast. Líklegt þykir að þar séu minjar um seljabúskap Oddastaðar frá fyrstu tíð. Þær þykja einstaklega mikilvægar fyrir helsta markmið fornleifarannsóknanna sem er að varpa ljósi á efnahags- legar undirstöður miðstöðvarinnar í Odda. Þverfagleg Oddarannsókn Oddafélagið fékk Kristborgu og Fornleifastofnun í lið með sér 2017 til að gera þriggja ára áætlun fyrir fornleifarannsóknir í Odda. Gerður var prufuskurður 2018 og þá fannst uppistandandi manngerður hellir. Það þótti merkilegur fundur og mik- ilvægt var að halda áfram rann- sóknum á honum, að sögn Krist- borgar. Þverfagleg Oddarannsókn á veg- um Oddafélagsins hlaut vorið 2020 styrk úr sjóðnum Ritmenning ís- lenskra miðalda (RÍM). Markmið Oddarannsóknarinnar er að varpa sem skýrustu ljósi á ritmenningu í Odda á miðöldum með áherslu á tímabilið 1100-1300. Rannsóknin skiptist í þrjá verkþætti: fornleifa- rannsókn, rannsókn á umhverfi og mannvist og rannsókn á miðstöðinni Odda. Fornleifarannsóknin hófst síðasta sumar og var beitt fjöl- breyttum rannsóknaraðferðum við hana. Allar sýnilegar minjar í heima- túni Oddahverfis og út við Kamphól voru mældar upp. Einnig var fjöldi minja skráður. Styrkur RÍM- sjóðsins gerði þetta kleift. Mikil valdamiðstöð í Odda „Það var ekki hvaða staður sem var sem gat staðið undir gerð bók- menntaverka á miðöldum eins og talið er að Oddi hafi gert,“ segir Kristborg. „Þótt við séum ekki að leita að beinum vísbendingum um handritagerð eða ritun þá snýst rannsóknin m.a. um að skoða um- hverfið og undirstöðurnar að þeirri valdamiðstöð sem þarna var.“ Uppgröftur fór fram á tveimur stöðum í Hellirsdölum sem eru í túni Odda. Á öðrum staðnum var grafin upp bygging framan við mann- gerðan helli frá miðri 10. öld. Hún kom í ljós við forrannsóknina 2018. Á hinum staðnum var grafinn könn- unarskurður við munna fallins manngerðs hellis. Þar komu í ljós allfornar byggingarleifar sem eru yngri en hinn hellirinn og byggingin á hinu uppgraftarsvæðinu. Líklega samtengt hellakerfi Vestan við kirkjuna í Odda eru ummerki um fjölda hella. Þar hefur líklega verið samtengt hellakerfi. „Það getur verið spurning hvar einn hellir endar og annar byrjar. Síðasta sumar taldi ég átján nýfundna hella en það er ljóst að þetta er mjög mik- ið af hellum og þeir eru úti um allt, einkum í túninu,“ segir Kristborg. Ljóst er að hellarnir voru grafnir út skömmu eftir að menn settust fyrst að í Odda. Notkun þeirra virð- ist líka hætt snemma vegna þess að sandsteinninn, sem þeir voru grafnir í, er gljúpur og því entust hellarnir illa. Kristborg sagði ekki vitað með vissu til hvers manngerðu hellarnir voru notaðir í öndverðu. Meira er vitað um notkun þeirra á seinni öld- um. Ætla má að þeir hafi mikið verið notaðir sem gripahús og heyhlöður, skemmur og búr en einnig eru til dæmi um mannabústaði. Hellarnir hafa tæplega verið vistlegir íveru- staðir vegna þess hvað þeir voru dimmir, rakir og kaldir. Búrhellar eru þekktir á Ægissíðu við Hellu og eins á Gaddstöðum sem eru ekki langt frá Odda. Kristborg segir að í fyrstu hafi sér þótt sérkennilegt að hæsti hóllinn, Gamlabrekka, sem er rétt við bæj- arstæðið, skyldi ekki hafa verið not- aður til hellagerðar í ljósi mikillar hellagerðarmenningar í Odda. „Þeg- ar ég fór að skoða þetta betur þá fann ég alla vega tvo hella í hólnum. Við tókum borkjarna við opið í þann sem er næst bæjarstæðinu og þar virðast vera mjög fornar mannvist- arleifar. Líklega frá miðri 10. öld eins og í hellinum sem við erum að grafa upp núna,“ segir Kristborg en eftir er að staðfesta þessar aldurs- greiningar betur með nánari rann- sóknum. Hellirinn sem nú er unnið að upp- greftri á er ekki mjög stór, það sem sést er um 10 x 2,5 metrar að grunn- fleti en mikið hefur hrunið innst í hellinum. Þessi hellir hefur tengst öðrum risastórum helli sem er fall- inn saman. Hann gæti mögulega verið Nautahellir sem nefndur er í Jarteinabók Þorláks helga biskups. Suðaustan við hann er annar gríðar- stór samfallinn hellir. Grafinn var könnunarskurður í munna hans. Þessir hellar mynda stóra samstæðu manngerðra hella. Kristborg segir að nautgripahald hafi verið algeng- ara á öldum áður en síðar varð. Menn notuðu uxa sem dráttardýr, auk þess sem kýr voru mjólkaðar og nautgripum slátrað til manneldis. Þá voru kálfskinn notuð í skinnhandrit og nautshúðir til margra nota. Þykk jarðvegslög hylja Búið er að grafa upp byggingu sem var fyrir framan hellinn sem nú er unnið í. Uppgröftur inni í hell- inum verður flókið úrlausnarefni, að sögn Kristborgar. Styrkja þarf hellisþakið til að tryggja öryggi þeirra sem munu vinna þar inni við uppgröftinn. Þykkur jarðvegur hefur safnast ofan á minjarnar enda hefur verið mikið áfok á þessum slóðum. Það tefur fyrir. Skurðgrafa var notuð í fyrrasumar til að afhjúpa tóftina framan við stóra hellinn. „Við erum bara komin niður á mögulega fyrsta yfirborð í gólfinu þar. Markmiðið í sumar er að klára að grafa inni í þessari tóft og rannsaka gólfin í henni. Mögulega finnum við einhver ummerki um burðarvirki eða inn- réttingar. Ætlunin er að komast að því til hvers þessi tóft var notuð. Ýmislegt bendir til þess að þetta hafi verið hlaða en hvort það var alltaf þannig er ekki vitað. Vonandi kom- umst við líka eitthvað inn í hellinn, þótt ég sé ekki mjög bjartsýn á það því tíminn leyfir það ekki,“ segir Kristborg. Í sumar á einnig að grafa könn- unarskurð í forna tóft við Kamphól og kanna hvort það er seltóft og hve gömul hún er. Þar rétt hjá er lok- aður manngerður hellir og langar Kristborgu að kanna hvað mann- virkið þar fyrir framan er gamalt og hvort það geti verið samtíða meintri seltóft. Sérfræðingar frá Bretlandseyjum hafa gefið vilyrði fyrir því að koma og gera segul- og viðnámsmælingar í Odda í sumar. Einnig eru væntan- legir sérfræðingar frá Bandaríkj- unum sem vilja gera meiri jarð- sjármælingar á svæðinu og gera borkjarnarannsóknir á stórum hluta túnsins í Odda til að kortleggja bet- ur mannvistarleifar þar. „Það er mikið háð Covid- ástandinu hvort þessir sérfræðingar koma,“ segir Kristborg en sérfræð- ingarnir eru háskólafólk sem er styrkt af sínum stofnunum til að stunda rannsóknir. „Það er mikill akkur fyrir Oddarannsóknina að fá þau vegna sérfræðiþekkingar þeirra.“ Margra ára verkefni Oddarannsóknin er margra ára verkefni ef á að fullkanna svæðið. „Það er ótrúlega margt þarna í Odda sem hægt er að skoða, en við höfum reynt að fara ekki fram úr okkur til að geta klárað það sem við byrjum á,“ segir Kristborg ennfremur. Í þessum verkhluta rannsókn- arinnar var byrjað að kortleggja all- ar ferðaleiðir í landi Odda og breyt- ingar sem á þeim urðu. Leiðirnar eru fjölmargar og frá mismunandi tímum. Þá hafa orðið miklar breyt- ingar á umhverfinu, m.a. vegna upp- blásturs og breytinga á farvegum Ytri-Rangár en aðallega Þverár. Umhverfisrannsóknirnar og forn- leifarannsóknirnar þurfa að spila saman. Gert er ráð fyrir að fornleifarann- sóknir hefjist aftur í síðari hluta júlí og standi fram í ágúst. Fornleifaskóli barnanna verður aftur haldinn í Odda í fyrstu viku maí. Verkefnið hófst haustið 2018 þegar 7. bekk í grunnskólanum á Hellu var boðið að koma í tilraunaskyni. Hald- inn var inngangsfyrirlestur fyrir nemendur í skólanum. Svo komu þau í Odda og voru þar dagpart. Fornleifaskólinn var haldinn aftur vorið 2019 og þá var hver hópur heil- an kennsludag í Odda. Þá komu 7. bekkingar í Hvolsskóla og Lauga- landsskóla í Odda. Lagt er upp með að 9-12 nemendur komi í senn í Odda. Hverjum hópi er skipt í þrjá 3-4 nemenda hópa og fá þeir kennslu í aðferðum fornleifaskrán- ingar, í fornleifauppgreftri og eins er þeim kennt að ganga frá gripum og greina þá. Fyrir kennslu í uppgraftar- aðferðum er útbúinn lítill reitur í rót- uðum jarðvegi og þar faldir ýmsir hlutir. Nemendurnir fá svo hver sinn reit og þurfa að teikna hann upp í fræðingur sagði að rætt hefði verið um að gefa bæði yngri og eldri nem- endum kost á kennslu í aðferðum fornleifafræðinnar. hnitakerfi. Svo fá þau að grafa hvert í sínum reit og „finna“ ýmsa muni sem síðan þarf að skrá á réttan hátt. Kristborg Þórsdóttir fornleifa- Krakkar fá að kynnast fornleifafræðinni FORNLEIFASKÓLI BARNANNA STARFAR Í MAÍMÁNUÐI Ljósmynd/Kristborg Þórsdóttir Fornleifaskóli í Odda Grunnskólanemendur fá þar að kynnast fornleifafræðinni og æfa sig í sérstökum reit þar sem finna má ýmsa hluti. Myndin var tekin 2019. Mergð manngerðra hella í Odda - Hellarnir í Odda á Rangárvöllum geyma gólflög sem hafa verið óröskuð í mörg hundruð ár - Fjöldi áður óþekktra minja skráður í fyrra - Fornleifarannsóknir í Odda halda áfram í sumar Ljósmynd/Kristborg Þórsdóttir Oddarannsóknin Uppgraftarsvæði framan við manngerðan helli í Odda. Manneskja sem örlar fyrir efst á myndinni til vinstri gefur hugmynd um hve stórt mannvirkið hefur verið. Manngerðu hellarnir voru sumir tengdir saman. Kristborg Þórsdóttir Ljósmynd/Kristborg Þórsdóttir Fornleifauppgröftur Gríðarmikill sandur var ofan á torfbyggingunni fram- an við þennan helli. Lengst til hægri sést glitta í hellismunnann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.