Morgunblaðið - 21.04.2021, Síða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
SVIÐSLJÓS
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Uppgröfturinn í manngerðum
hellum í Odda á Rangárvöllum er
einstakur. Það hefur ekki áður verið
grafið í hellum hér á landi sem hafa
verið óraskaðir jafn lengi og þessir.
Hellir sem við erum að grafa upp
núna hefur verið lokaður í minnst
800 ár. Það er alveg einstakt að kom-
ast í gólflög í mannvirki sem hefur
verið óraskað jafn lengi og þetta,“
segir Kristborg Þórsdóttir, forn-
leifafræðingur hjá Fornleifastofnun
Íslands og stjórnandi fornleifahluta
Oddarannsókn-
arinnar. Hún er
einnig ritstjóri
nýrrar skýrslu
um það sem
ávannst í forn-
leifarannsókn í
Odda 2020.
Fjöldi áður
óþekktra minja
var þá skráður.
Þar ber hæst
fjölda mann-
gerðra hella og fornar minjar við
Kamphól þar sem Þverá og Ytri-
Rangá sameinast. Líklegt þykir að
þar séu minjar um seljabúskap
Oddastaðar frá fyrstu tíð. Þær þykja
einstaklega mikilvægar fyrir helsta
markmið fornleifarannsóknanna
sem er að varpa ljósi á efnahags-
legar undirstöður miðstöðvarinnar í
Odda.
Þverfagleg Oddarannsókn
Oddafélagið fékk Kristborgu og
Fornleifastofnun í lið með sér 2017
til að gera þriggja ára áætlun fyrir
fornleifarannsóknir í Odda. Gerður
var prufuskurður 2018 og þá fannst
uppistandandi manngerður hellir.
Það þótti merkilegur fundur og mik-
ilvægt var að halda áfram rann-
sóknum á honum, að sögn Krist-
borgar.
Þverfagleg Oddarannsókn á veg-
um Oddafélagsins hlaut vorið 2020
styrk úr sjóðnum Ritmenning ís-
lenskra miðalda (RÍM). Markmið
Oddarannsóknarinnar er að varpa
sem skýrustu ljósi á ritmenningu í
Odda á miðöldum með áherslu á
tímabilið 1100-1300. Rannsóknin
skiptist í þrjá verkþætti: fornleifa-
rannsókn, rannsókn á umhverfi og
mannvist og rannsókn á miðstöðinni
Odda. Fornleifarannsóknin hófst
síðasta sumar og var beitt fjöl-
breyttum rannsóknaraðferðum við
hana. Allar sýnilegar minjar í heima-
túni Oddahverfis og út við Kamphól
voru mældar upp. Einnig var fjöldi
minja skráður. Styrkur RÍM-
sjóðsins gerði þetta kleift.
Mikil valdamiðstöð í Odda
„Það var ekki hvaða staður sem
var sem gat staðið undir gerð bók-
menntaverka á miðöldum eins og
talið er að Oddi hafi gert,“ segir
Kristborg. „Þótt við séum ekki að
leita að beinum vísbendingum um
handritagerð eða ritun þá snýst
rannsóknin m.a. um að skoða um-
hverfið og undirstöðurnar að þeirri
valdamiðstöð sem þarna var.“
Uppgröftur fór fram á tveimur
stöðum í Hellirsdölum sem eru í túni
Odda. Á öðrum staðnum var grafin
upp bygging framan við mann-
gerðan helli frá miðri 10. öld. Hún
kom í ljós við forrannsóknina 2018.
Á hinum staðnum var grafinn könn-
unarskurður við munna fallins
manngerðs hellis. Þar komu í ljós
allfornar byggingarleifar sem eru
yngri en hinn hellirinn og byggingin
á hinu uppgraftarsvæðinu.
Líklega samtengt hellakerfi
Vestan við kirkjuna í Odda eru
ummerki um fjölda hella. Þar hefur
líklega verið samtengt hellakerfi.
„Það getur verið spurning hvar einn
hellir endar og annar byrjar. Síðasta
sumar taldi ég átján nýfundna hella
en það er ljóst að þetta er mjög mik-
ið af hellum og þeir eru úti um allt,
einkum í túninu,“ segir Kristborg.
Ljóst er að hellarnir voru grafnir
út skömmu eftir að menn settust
fyrst að í Odda. Notkun þeirra virð-
ist líka hætt snemma vegna þess að
sandsteinninn, sem þeir voru grafnir
í, er gljúpur og því entust hellarnir
illa.
Kristborg sagði ekki vitað með
vissu til hvers manngerðu hellarnir
voru notaðir í öndverðu. Meira er
vitað um notkun þeirra á seinni öld-
um. Ætla má að þeir hafi mikið verið
notaðir sem gripahús og heyhlöður,
skemmur og búr en einnig eru til
dæmi um mannabústaði. Hellarnir
hafa tæplega verið vistlegir íveru-
staðir vegna þess hvað þeir voru
dimmir, rakir og kaldir. Búrhellar
eru þekktir á Ægissíðu við Hellu og
eins á Gaddstöðum sem eru ekki
langt frá Odda.
Kristborg segir að í fyrstu hafi sér
þótt sérkennilegt að hæsti hóllinn,
Gamlabrekka, sem er rétt við bæj-
arstæðið, skyldi ekki hafa verið not-
aður til hellagerðar í ljósi mikillar
hellagerðarmenningar í Odda. „Þeg-
ar ég fór að skoða þetta betur þá
fann ég alla vega tvo hella í hólnum.
Við tókum borkjarna við opið í þann
sem er næst bæjarstæðinu og þar
virðast vera mjög fornar mannvist-
arleifar. Líklega frá miðri 10. öld
eins og í hellinum sem við erum að
grafa upp núna,“ segir Kristborg en
eftir er að staðfesta þessar aldurs-
greiningar betur með nánari rann-
sóknum.
Hellirinn sem nú er unnið að upp-
greftri á er ekki mjög stór, það sem
sést er um 10 x 2,5 metrar að grunn-
fleti en mikið hefur hrunið innst í
hellinum. Þessi hellir hefur tengst
öðrum risastórum helli sem er fall-
inn saman. Hann gæti mögulega
verið Nautahellir sem nefndur er í
Jarteinabók Þorláks helga biskups.
Suðaustan við hann er annar gríðar-
stór samfallinn hellir. Grafinn var
könnunarskurður í munna hans.
Þessir hellar mynda stóra samstæðu
manngerðra hella. Kristborg segir
að nautgripahald hafi verið algeng-
ara á öldum áður en síðar varð.
Menn notuðu uxa sem dráttardýr,
auk þess sem kýr voru mjólkaðar og
nautgripum slátrað til manneldis. Þá
voru kálfskinn notuð í skinnhandrit
og nautshúðir til margra nota.
Þykk jarðvegslög hylja
Búið er að grafa upp byggingu
sem var fyrir framan hellinn sem nú
er unnið í. Uppgröftur inni í hell-
inum verður flókið úrlausnarefni, að
sögn Kristborgar. Styrkja þarf
hellisþakið til að tryggja öryggi
þeirra sem munu vinna þar inni við
uppgröftinn.
Þykkur jarðvegur hefur safnast
ofan á minjarnar enda hefur verið
mikið áfok á þessum slóðum. Það
tefur fyrir. Skurðgrafa var notuð í
fyrrasumar til að afhjúpa tóftina
framan við stóra hellinn. „Við erum
bara komin niður á mögulega fyrsta
yfirborð í gólfinu þar. Markmiðið í
sumar er að klára að grafa inni í
þessari tóft og rannsaka gólfin í
henni. Mögulega finnum við einhver
ummerki um burðarvirki eða inn-
réttingar. Ætlunin er að komast að
því til hvers þessi tóft var notuð.
Ýmislegt bendir til þess að þetta hafi
verið hlaða en hvort það var alltaf
þannig er ekki vitað. Vonandi kom-
umst við líka eitthvað inn í hellinn,
þótt ég sé ekki mjög bjartsýn á það
því tíminn leyfir það ekki,“ segir
Kristborg.
Í sumar á einnig að grafa könn-
unarskurð í forna tóft við Kamphól
og kanna hvort það er seltóft og hve
gömul hún er. Þar rétt hjá er lok-
aður manngerður hellir og langar
Kristborgu að kanna hvað mann-
virkið þar fyrir framan er gamalt og
hvort það geti verið samtíða meintri
seltóft.
Sérfræðingar frá Bretlandseyjum
hafa gefið vilyrði fyrir því að koma
og gera segul- og viðnámsmælingar í
Odda í sumar. Einnig eru væntan-
legir sérfræðingar frá Bandaríkj-
unum sem vilja gera meiri jarð-
sjármælingar á svæðinu og gera
borkjarnarannsóknir á stórum hluta
túnsins í Odda til að kortleggja bet-
ur mannvistarleifar þar.
„Það er mikið háð Covid-
ástandinu hvort þessir sérfræðingar
koma,“ segir Kristborg en sérfræð-
ingarnir eru háskólafólk sem er
styrkt af sínum stofnunum til að
stunda rannsóknir. „Það er mikill
akkur fyrir Oddarannsóknina að fá
þau vegna sérfræðiþekkingar
þeirra.“
Margra ára verkefni
Oddarannsóknin er margra ára
verkefni ef á að fullkanna svæðið.
„Það er ótrúlega margt þarna í Odda
sem hægt er að skoða, en við höfum
reynt að fara ekki fram úr okkur til
að geta klárað það sem við byrjum
á,“ segir Kristborg ennfremur.
Í þessum verkhluta rannsókn-
arinnar var byrjað að kortleggja all-
ar ferðaleiðir í landi Odda og breyt-
ingar sem á þeim urðu. Leiðirnar
eru fjölmargar og frá mismunandi
tímum. Þá hafa orðið miklar breyt-
ingar á umhverfinu, m.a. vegna upp-
blásturs og breytinga á farvegum
Ytri-Rangár en aðallega Þverár.
Umhverfisrannsóknirnar og forn-
leifarannsóknirnar þurfa að spila
saman.
Gert er ráð fyrir að fornleifarann-
sóknir hefjist aftur í síðari hluta júlí
og standi fram í ágúst.
Fornleifaskóli barnanna verður aftur
haldinn í Odda í fyrstu viku maí.
Verkefnið hófst haustið 2018 þegar
7. bekk í grunnskólanum á Hellu var
boðið að koma í tilraunaskyni. Hald-
inn var inngangsfyrirlestur fyrir
nemendur í skólanum. Svo komu
þau í Odda og voru þar dagpart.
Fornleifaskólinn var haldinn aftur
vorið 2019 og þá var hver hópur heil-
an kennsludag í Odda. Þá komu 7.
bekkingar í Hvolsskóla og Lauga-
landsskóla í Odda. Lagt er upp með
að 9-12 nemendur komi í senn í
Odda. Hverjum hópi er skipt í þrjá
3-4 nemenda hópa og fá þeir
kennslu í aðferðum fornleifaskrán-
ingar, í fornleifauppgreftri og eins er
þeim kennt að ganga frá gripum og
greina þá.
Fyrir kennslu í uppgraftar-
aðferðum er útbúinn lítill reitur í rót-
uðum jarðvegi og þar faldir ýmsir
hlutir. Nemendurnir fá svo hver sinn
reit og þurfa að teikna hann upp í
fræðingur sagði að rætt hefði verið
um að gefa bæði yngri og eldri nem-
endum kost á kennslu í aðferðum
fornleifafræðinnar.
hnitakerfi. Svo fá þau að grafa hvert
í sínum reit og „finna“ ýmsa muni
sem síðan þarf að skrá á réttan hátt.
Kristborg Þórsdóttir fornleifa-
Krakkar fá að kynnast fornleifafræðinni
FORNLEIFASKÓLI BARNANNA STARFAR Í MAÍMÁNUÐI
Ljósmynd/Kristborg Þórsdóttir
Fornleifaskóli í Odda Grunnskólanemendur fá þar að kynnast fornleifafræðinni og
æfa sig í sérstökum reit þar sem finna má ýmsa hluti. Myndin var tekin 2019.
Mergð manngerðra hella í Odda
- Hellarnir í Odda á Rangárvöllum geyma gólflög sem hafa verið óröskuð í mörg hundruð ár
- Fjöldi áður óþekktra minja skráður í fyrra - Fornleifarannsóknir í Odda halda áfram í sumar
Ljósmynd/Kristborg Þórsdóttir
Oddarannsóknin Uppgraftarsvæði framan við manngerðan helli í Odda. Manneskja sem örlar fyrir efst á myndinni
til vinstri gefur hugmynd um hve stórt mannvirkið hefur verið. Manngerðu hellarnir voru sumir tengdir saman.
Kristborg
Þórsdóttir
Ljósmynd/Kristborg Þórsdóttir
Fornleifauppgröftur Gríðarmikill sandur var ofan á torfbyggingunni fram-
an við þennan helli. Lengst til hægri sést glitta í hellismunnann.