Morgunblaðið - 21.04.2021, Síða 31

Morgunblaðið - 21.04.2021, Síða 31
Pakistanska þjóðþingið frestaði í gær umræðu til næsta föstudags um það hvort ríkisstjórninni bæri að vísa sendiherra Frakklands úr landi. Umræðan kemur í kjölfar fjölmennra óeirða í landinu á veg- um stjórnmálaflokksins Tehreek- i-Labbaik Pakistan, TLP, en for- svarsmenn hans höfðu hótað frek- ari óeirðum ef ekki yrði orðið við kröfum þeirra. Tillagan, verði hún samþykkt, er hins vegar ekki bindandi fyrir ríkisstjórnina. Barátta TLP fyrir brottvísun sendiherrans hófst á síðasta ári þegar Emmanuel Macron Frakk- landsforseti varði rétt franska skoptímaritsins Charlie Hebdo til að endurbirta umdeildar teikn- ingar sínar af Múhameð spá- manni. AFP Ræða brott- vísun sendi- herrans www.danco.is Heildsöludreifing Vefverslun fyrir fyrirtæki og verslanir á www.danco.is Sápudæla Glær 18 cm Speglabakki 35 cm Gold Kerti snúin 4 stk. 20 cm. Gorilla BLK 36 cm. Upptakari Ananas Gold 10 cm. g 25x10 cm. Hilla Blk 100x35x75 cm. Kertastj.CIRCLE 30 cm. 3 stk. sett Strá Aubergine 2 teg. 130 cm B 4 óndarós Bleik 1x57 cm Plöntustatíf Fiskur ull Bekkur Flauel 100x50x42 cm. Glerborðasett 45x45x50 cm. FRÉTTIR 31Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Armin Laschet, formaður Kristi- legra demókrata, CDU, var í gær útnefndur kanslaraefni flokka- bandalags kristilegu flokkanna í Þýskalandi eftir að Markus Söder, formaður bæverska systurflokksins CSU, ákvað að draga framboð sitt til baka. Kallaði Laschet eftir ein- ingu í aðdraganda næstu þingkosn- inga í september, en Angela Merkel mun þá láta af embætti kanslara eftir 16 ára setu þar. Baráttan milli Laschet og Söder um útnefningu bandalagsins var hörð og töluðu þýskir fjölmiðlar um hatrömustu innanflokksdeilur kristilegra í fjörutíu ár. Söder taldi sig eiga tilkall til út- nefningar bandalagsins, þar sem kannanir sýna að hann nýtur mun meiri vinsælda meðal þýsks al- mennings en Laschet og einnig meiri stuðnings meðal þingmanna flokkanna tveggja á þýska sam- bandsþinginu. Hann dró sig hins vegar í hlé eftir að framkvæmda- stjórn CDU kaus að styðja Laschet í atkvæðagreiðslu, sem ekki var lok- ið fyrr en eftir miðnætti í fyrrinótt. Laschet lagði áherslu á að flokk- arnir tveir stilltu saman strengi sína fyrir kosningabaráttuna í haust. „CDU getur ekki unnið kosn- ingarnar án CSU og öfugt,“ sagði Laschet, en hann er forsætisráð- herra í Norðurrín-Vestfalíu, sem er fjölmennasta sambandslandið í Þýskalandi. Söder virtist einnig fús til þess að bera klæði á vopnin, og óskaði hann Laschet velgengni í kosningabar- áttunni. Sagði Söder að CSU myndi styðja óhikað við bakið á honum. Laschet hét á móti að Söder myndi gegna „mikilvægu hlutverki í fram- tíð Þýskalands“. Vanur hrakfallaspám Það loforð er ekki síst tilkomið vegna þess að kannanir benda til þess að Söder sé nú vinsælasti stjórnmálamaður Þýskalands, vin- sælli en Merkel sjálf, en Laschet vermdi þar 12. sætið. Hinn sextugi Laschet er hins vegar vanur því að sigrast á hrakfallaspám. Árið 2017 náði hann að leiða CDU til sigurs í Norðurrín-Vestfalíu í sambandskosningum, en sam- bandslandið hafði þá verið vígi Sósí- aldemókrataflokksins SPD til margra ára. Óvíst er hvort Laschet geti end- urtekið þann óvænta árangur í september, en kannanir benda til þess að kristilegu flokkarnir njóti nú um 27% fylgis, en Græningjar hafa verið að nálgast þá jafnt og þétt. Þeir njóta nú um 23% fylgis í könnunum, og útnefndi flokkurinn því í fyrsta sinn kanslaraefni í vik- unni, hina fertugu Önnulenu Baer- bock. Gekk sú útnefning snurðu- laust fyrir sig miðað við baráttuna milli Söders og Laschets. Laschet hreppir hnossið - Söder dregur framboð sitt til baka - Laschet mun óvinsælli meðal almennings - Kallar eftir einingu kristilegu flokkanna - CDU/CSU með nauma forystu AFP Kanslaraefni Laschet var kátur eftir að útnefningin var í höfn. Lögfræðingar stjórnarandstæð- ingsins Alexeis Navalní sögðu í gær að ástand hans væri ekki gott, og að hann fengi enga lækn- isaðstoð í fang- elsissjúkrahús- inu þar sem Navalní dvelur nú. Sagði Olga Mikhailova, annar lögfræðinga Navalnís, að hann ætti í erfiðleikum með að setjast upp og starfsfólk sjúkrahússins væri ekki vanda sínum vaxið, þar sem það hefði varla náð að setja upp æða- legg. Krefjast lögfræðingarnir þess að Navalní verði fluttur á sjúkrahús í Moskvuborg. Segja Navalní ekki undir læknishendi Alexei Navalní RÚSSLAND Tilkynnt var í gær að Idriss Déby Itno, sem ríkt hefur sem forseti Tsjad undanfarna þrjá áratugi, hefði látist af sárum sínum eftir orr- ustu við upp- reisnarmenn í norðurhluta landsins um helgina. Ákvað herinn í kjölfar andlátsins að leysa upp þing landsins og setti á útgöngubann. Sonur Débys, hers- höfðinginn Mahamat Idriss, var í gær settur yfir herforingjaráð sem mun stjórna landinu, en herinn hét því í gær að lýðræðislegar kosn- ingar myndu fara fram eftir 18 mánuði. Hafa uppreisnarmenn þeg- ar hafnað útnefningu Mahamats, og hyggjast þeir steypa honum af stóli. Déby hafði nýlega hlotið endur- kjör sem forseti með um 80% gildra atkvæða, en stjórnarandstaðan sniðgekk kosningarnar að mestu. Déby var herforingi áður en hann rændi völdum í desember 1990 og mun hann hafa stýrt aðgerðum hersins sjálfur um helgina þegar hann særðist til ólífis. Forseti féll í orrustu og þingið leyst upp Idriss Déby Itno TSJAD Lyfjastofnun Evrópu, EMA, lýsti því yfir í gær að hún hefði fundið „möguleg tengsl“ á milli bóluefnis Johnson & Johnson gegn kórónu- veirunni og sjaldgæfs kvilla sem or- sakað getur blóðtappa. Sagði stofn- unin þó að kostir þess að nota bóluefnið væru meiri en áhættan sem fylgdi því að smitast af kórónu- veirunni. Byggðist álit stofnunarinnar á könnun þess á átta tilfellum í Banda- ríkjunum, þar af var eitt banvænt, en þar hafa tæplega 7 milljónir manna fengið efnið. Bóluefni John- son & Johnson er annað bóluefnið gegn kórónuveirunni sem tengt er mögulegri blóðtappamyndun á eftir bóluefni AstraZeneca, en bæði efnin treysta á svonefndar adenóveirur til þess að örva mótefnasvar líkamans. Emer Cooke, forstjóri EMA, lagði áherslu á það að fjöldi tilfella væri agnarsmár, en að engu að síður væri mikilvægt að bæði læknar og sjúk- lingar vissu af áhættuþáttunum, svo að þeir gætu fylgst með og gripið inn í ef þeir yrðu varir við aukaverk- anir af völdum efnisins. Í öllum tilfellunum átta var um fólk að ræða undir sextugu og var meirihluti þeirra konur. Þá lýsti aukaverkunin sér í mikilli fækkun svonefndra blóðkorna, sem stuðla að storknun blóðs. Cooke sagði að stofnunin væri einnig að kanna hvort svipaðar aukaverkanir mætti finna í rúss- neska bóluefninu Spútník 5, en það treystir einnig á adenóveirur. Hann tók þó fram að engin tilfelli blóð- tappa hefðu komið upp við notkun þess til þessa. Möguleg tengsl við blóðtappa - EMA segir kostina meiri en áhættuna AFP Bólusetning EMA segir kosti bólu- efnisins vega þyngra en áhættuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.