Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 34

Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 Barna- stígvél í miklu úrvali Nýverið var birtur ársreikningur Hafn- arfjarðarbæjar fyrir árið 2020. Í öllum meginatriðum er rekstrarniðurstaða bæjarins mjög já- kvæð og hefur fjár- hagsstaða bæj- arfélagsins ekki verið traustari í áratugi. Agi í fjármálum auk aðhalds og festu í stjórnun bæj- arins skilar þessum góða árangri. Rekstrarafkoma var jákvæð um 2,3 milljarða króna fyrir A- og B- hluta á árinu 2020. Fyrir A-hluta var afkoman jákvæð um 1,6 millj- arða króna. Það sem mestu máli skiptir fyrir framtíðarrekstur Hafnarfjarðar er að skuldaviðmið bæjarsjóðs hélt áfram að lækka. Skuldaviðmiðið svokallaða er sam- ræmdur mælikvarði sem settur var upp af ríkinu til að bera sam- an og meta fjárhagslegt heilbrigði sveitarfélaga, ef svo mætti að orði komast. Heilbrigðari skuldastaða Skuldaviðmið Hafnarfjarð- arbæjar hefur verið að lækka jafnt og þétt síðastliðinn áratug og var 101% í árslok 2020. Þessa já- kvæðu þróun má sjá á súluritinu. Þess má geta að fari skuldaviðmið sveitarfélags yfir 150% kallar það á afskipti og aðhald frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðu- neytinu, samkvæmt reglugerð um fjár- hagsleg viðmið og eft- irlit með fjármálum sveitarfélaga. Því lægra sem skulda- viðmiðið er hjá sveit- arfélagi, því meira er afgangs til fram- kvæmda og til að mæta sveiflum í hag- kerfinu. Hafnarfjörður hefur, líkt og öll önnur sveitarfélög landsins, þurft að glíma við óvænt áföll og óvissu í rekstrinum vegna afleiðinga Co- vid-19-faraldursins. Við því var brugðist, meðal annars með því að selja 15% hlut bæjarins í HS Veit- um. Sú sala var bæði mjög vel heppnuð og tímasett. Afraksturinn styrkir fjárhagslega stöðu Hafn- arfjarðarbæjar verulega og má í raun segja að hann verji bæinn að fullu fyrir högginu af heimsfar- aldrinum. Þess vegna getur bæj- arfélagið haldið áfram að greiða niður lán og byggja upp innviði og viðhaldið háu þjónustustigi við íbúa. Bjart fram undan Á síðasta ári og fyrstu mánuði þessa árs hefur eftirspurn eftir lóðum aukist mjög í nýjum hverf- um bæjarins. Uppbygging þar er nú í fullum gangi og tilbúnar íbúð- ir seljast hratt. Kröftug lóðaút- hlutun mun skila sér í fjölda nýrra íbúða á næstu mánuðum og miss- erum og vonandi draga úr þeirri spennu sem er á fasteignamark- aðinum í Hafnarfirði sem og í ná- grannasveitarfélögunum. Í fram- haldinu mun bæjarbúum fjölga umtalsvert og nýtast þá enn betur þær miklu fjárfestingar sem sveit- arfélagið hefur þegar lagt í, til dæmis í uppbyggingu leik- og grunnskóla. Auk lóðaúthlutana í nýjum hverfum er einnig verið að þétta byggð og fjölga þar með val- möguleikum til búsetu í bænum. Uppbyggingin mun skila sér í enn traustari fjárhagsstöðu sveitarfé- lagsins og gera okkur betur kleift að sækja fram á komandi árum. Þótt enn sjái ekki fyrir endann á efnahagslegum afleiðingum heimsfaraldursins þá skiptir miklu máli að geta snúið vörn í sókn. Það getum við og það munum við gera í Hafnarfirði. Eftir Rósu Guðbjartsdóttur » Í öllum meginatrið- um er rekstrarnið- urstaða bæjarins mjög jákvæð og hefur fjár- hagsstaða bæjarfélags- ins ekki verið traustari í áratugi. Rósa Guðbjartsdóttir Höfundur er bæjarstjóri Hafnar- fjarðar. Uppgangur í Hafnarfirði Vigdís Häsler, nýr framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, kveður sér hljóðs í Morgunblaðinu 9. apríl sl. með grein- inni Keðjuábyrgð neytandans. Þar fær- ir nýi framkvæmda- stjórinn fram gömul rök bænda fyrir óbreyttu landbúnaðarkerfi í stað þess að velta upp mögulegri nýrri land- búnaðarstefnu sem bæti stöðu bænda og neytenda. Hér eru helstu fullyrðingar Vig- dísar feitletraðar og viðbrögð und- ir. 1. Tollar eru lagðir á fleiri vöru- flokka en eingöngu innfluttar landbúnaðarvörur. Flestar vörur aðrar en landbún- aðarvörur eru tolllausar inn til Ís- lands. Evrópulöndin leggja al- mennt ekki tolla á matvæli sín á milli en það gera þó EES-löndin Ísland, Noregur og Sviss. Hér hefur landbúnaðarráðu- neytið meira að segja haft rangt við gagnvart neytendum með því að bjóða upp þá takmörkuðu toll- kvóta sem EES-samstarfið gerir ráð fyrir, til að hækka mat- vælaverð til neytenda í þágu bænda og vinnslustöðva. Noregur leggur á svipaða matartolla og við, en Sviss minna. Samt er innbyggð fjarlægðarvernd fólgin í staðsetn- ingu og stærð landsins miðað við fólksfjölda. Matartollar hækka verð á kjöti og mjólkurafurðum um nálægt 35% að jafnaði. Það gerir um 120.000 kr. á mann á ári. Fátæka neytendur munar um það og það kemur niður á heilsu fólks. 2. Það hlýtur að vera eðlileg krafa landsmanna að innfluttar vörur séu af sömu gæðum og inn- lend framleiðsla … Fyrir utan eðlilegt matvælaeft- irlit eiga landsmenn rétt á að velja sínar neysluvörur sjálfir. Neyt- endur treysta íslenskum bændum og bændur ættu að sama skapi að treysta vali íslenskra neytenda í stað þess að reyna að fá stjórn- völd til að stýra því með of- urtollum. 3. [Með því að flytja inn mat- væli er verið] að styðja við lága staðla í umhverfismálum, hrein- læti, dýravelferð … Er betra að veifa röngu tré en engu? Okkar landbúnaður er ábyrgur fyrir rúmlega 70% af los- un gróðurhúsalofttegunda þegar landnotkun er meðtalin eins og má kynna sér á vefjum votlendissjóðs, Umhverfisstofnunar, umhverfis- ráðuneytisins og víðar. Ekkert bendir til þess að dýravelferð sé betur sinnt hér en í nágrannalönd- unum nema síður sé. 4. … landbúnaður […] skiptir sköpum fyrir samfélagið í tengslum við lýðheilsu, menn- ingu, efnahag og byggðaþróun Það sem skiptir sköpum er að við séum öflug í aðgerðum okkar til að bæta þessa þætti með bestu aðferðum, ekki endilega (úreltum) landbúnaðaraðferðum. Það er margt í boði og rétt að verja kröftunum í það sem vænlegast er. Við stöndum öll frammi fyrir áskor- unum, ekki bara bændur. Landbún- aðurinn þarf að breyt- ast mikið. Hann er mjög mengandi og kostar almenning mik- ið. Við þurfum að draga úr losun gróð- urhúsalofttegunda og verja því fé sem varið er til lands- byggðarinnar vel. Matvælafram- leiðsla þarf að aðlagast breyti- legum smekk og eftirspurn. Það er kominn ljósleiðari víða um land. Störf eru mörg óháð staðsetningu. Fiskeldi er vaxandi atvinnugrein. Ferðaþjónusta fer vaxandi víða um land þegar Covid verður að baki. Það þarf að losa landbún- aðinn úr núverandi viðjum. 5. … það á að skipta neytand- ann máli hvernig matvæli eru framleidd og hvernig þeim er dreift … Auðvitað skiptir uppruni mat- væla máli. Það að neyta innfluttra matvæla er ekki endilega slæmt fyrir umhverfið eða samfélagið. Þannig er kolefnisspor kjöts sem framleitt er hér yfirleitt hærra en af sambærilegu innfluttu kjöti af því að við þurfum að flytja svo inn fóður og önnur aðföng. Við þurf- um að endurheimta votlendi. Veg- anfæða verður æ vinsælli og fleira mætti telja. Betri landbúnaður Við styrkjum okkar landbúnað í grófum dráttum um þrisvar sinn- um meira en að meðaltali í Evr- ópu og um fimm sinnum meira en gert er í BNA eins og fólk getur kynnt sér meðal annars hjá OECD, sjá hlekk hér neðar. Við eigum að halda áfram að styðja landbúnaðinn verulega en uppfæra aðferðirnar. Við eigum að lækka matarverð um 120.000 kr. á mann á ári, með því að fella niður tollverndina gagnvart Evrópu. Taka um leið upp fastar grunn- greiðslur til bænda óháð búgrein. Látum svo markaðinn að öðru leyti um að stýra þróuninni yfir í framlegðarmeiri afurðir. Fá má góðar fyrirmyndir fyrir þessu í Evrópu. Vonandi skoðar nýr fram- kvæmdastjóri Bændasamtakanna, Vigdís Häsler, aðrar leiðir út úr vanda landbúnaðarins en bara að krefja neytendur og skattgreið- endur um meiri stuðning við gamla, úrelta, óumhverfisvæna kerfið. Það er löngu tímabært að móta nútímalega landbúnaðar- stefnu. Sjá https://betrilandbunadur.wor- dpress.com/ Keðjuábyrgð Bændasamtakanna Eftir Guðjón Sigurbjartsson Guðjón Sigurbjartsson » Við eigum að halda áfram að styðja landbúnaðinn verulega en uppfæra þarf aðferð- irnar. Höfundur er viðskiptafræðingur í stjórn Neytendasamtakanna. Eitt vorið, þegar ég átti heima í Zürich, fór fram mikil rannsókn á götum sem þóttu óeðlilega mikið slitnar. Vegsnið voru mæld um alla borgina. Alls staðar var mikið slit miðað við fyrri ár. Rannsókn á stein- efnum og bindiefnum malbiks leiddi í ljós að gæðin voru í lagi. Næsta vor stað- festu mælingar áfram óeðlilega mikið slit. Það var ráðgáta, þar til kom í ljós að ástæðan var augljós: Nagladekkin. Svissarar bönnuðu strax nagla- dekk í öllu Sviss. Einföld lausn, sem virkaði strax. Sama ættum við að gera. Við getum það alveg eins og Sviss með alla sína fjallvegi í Ölp- unum. Minnisstætt frá vetrinum á eftir eru sjónvarpsskot sem sýndu skíðatúrista naglhreinsa bíla sína á landamærunum. Í Sviss greiðir almenningur ekki fyrir sérþarfir annarra með sköttum og því var auðvelt að banna nagladekkin. Það kost- ar að malbika og í Sviss eru vegir malbik- aðir á margra ára fresti og ekki annað hvert ár, eins og sums staðar. Bannið hafði ekkert að gera með svifryk. Í Sviss er ekki svifryk, því vegir eru hannaðir með réttum halla fyrir regnvatnið að renna í niðurföllin. Rigningar sjá að mestu um þvott- inn, en þess á milli eru götur spúl- aðar og bununni beint í niðurföllin. Hjá okkur rennur regnvatnið eft- ir hjólförum í malbikinu og nær ekki í niðurföllin. Þetta getur hver og einn skoðað við keyrslu um bæ- inn í rigningu. Þannig skemmir vatnið götur borgarinnar um leið og umferðin hefur myndað hjólför. Stórir trukkar og strætó skemma mest og þyrla upp mestu svifryki. Svifrykið hjá okkur er aðallega vegna þess að götur eru lítið eða ekki þvegnar. Við erum laus við rykið á meðan vegir eru blautir, en svo gýs það upp um leið og þornar. Það þarf ekki mikil vísindi til að sanna að með lækkun hámarks- hraða úr 50 í 30 km/klst minnkar svifryk. Það réttlætir samt ekki lækkun hraðans, sé dæmið skoðað til enda. Lækkunin er það vitlaus- asta sem ég hefi séð koma frá borg- arskipulaginu að mörgu öðru ólöst- uðu; nú seinast tugmiljarða láni í þeim tilgangi að halda borginni grænni. Hvað verður það næst? Áætlað er að umferðartafir kosti 15 milljarða á ári. Þær munu snar- aukast við lækkun hraðans og fara stigvaxandi ár frá ári. Það verður komið algjört kaos löngu áður en borgarlínan (sem öllu átti að redda) verður tekin í notkun. Kostnaður borgarlínu var áætlaður að stærð- argráðu 100 milljarðar, en gæti orð- ið tvöfalt meiri, ef að líkum lætur. Framtíð komandi kynslóða Reykjavíkur er ekki björt með þetta allt í arf og það á sama tíma og fyrirtæki flýja borgina. Eftir Sigurð Oddsson » Lækkunin er það vit- lausasta sem ég hefi séð frá borgarskipulag- inu að mörgu öðru ólöst- uðu; nú seinast tugmillj- arða láni til að halda borginni grænni. Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur og eldri borgari. Svifryk og umferðarhraði Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.