Morgunblaðið - 21.04.2021, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 21.04.2021, Qupperneq 35
UMRÆÐAN 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 Austurveri, Háaleitisbraut 68, sími 568 4240, astund.is Góður svefn er nauðsynlegur fyrir heilsu og velferð allra. Það á ekki síst við um börn sem eru að vaxa og þroskast. Truflun á svefni getur haft al- varleg skammtíma- og langtímaáhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu. Orsakir svefn- raskana hjá börnum geta verið marg- víslegar. Svefnraskanir geta tengst undirliggjandi langvinnum sjúk- dómum og við vissa sjúkdóma er mælt með að skima fyrir kæfisvefni og öndunarerfiðleikum í svefni þar sem rannsóknir hafa sýnt fram á mikla nauðsyn þess. Einnig getur andlitsfall, vandamál í nefholi og koki stuðlað að kæfisvefni hjá börn- um og slíkt þarf ætíð að meta ef grunur um kæfisvefn er til staðar. Vöðvaslappleiki sem á sér stað við vissa vöðva- og taugasjúkdóma get- ur haft áhrif á öndunarvöðvana og leitt til þess að öndun í svefni verð- ur ekki nægjanlega góð en til að meta slíkt þarf að mæla bæði önd- unarhreyfingar í svefni, súrefn- isupptöku og hvernig líkaminn los- ar sig við koltvísýring. Svefnvandamál sem þessi er oft erfitt og jafnvel ómögulegt að greina án viðeigandi rannsókna og í dag eru notuð ákveðin mælitæki og búnaður til að greina kæfisvefn og öndunarerfiðleika í svefni hjá börn- um. Slík tæki eru bæði til notkunar í heimahúsum, sem er mjög hent- ugt að bjóða upp á þar sem flestir sofa betur heima hjá sér og því auðveldara að fá fram tæknilega góða rannsókn. Hins vegar er slík rannsókn ekki alltaf nægjanleg því eins og er er vissan búnað eingöngu hægt að nota svo vel sé inni á sjúkrahúsi. Þar af leið- andi eru umfangsmeiri rannsóknir frekar gerðar inniliggjandi í eina til tvær nætur. Svefnrannsóknir eru vaxandi grein innan læknisfræðinnar og skjólstæðingahópurinn stækkar stöðugt. Mikilvægt er að á Ís- landi séu rannsóknir af sömu gæðum og er- lendis. Góður tækja- búnaður, þekking á notkun búnaðar og túlkun niðurstaðna er alger for- senda fyrir framþróun á þessu svið. Gera má ráð fyrir að innan tveggja ára verði um 100 svefnrannsóknir gerðar hjá börnum árlega á Barna- spítala Hringsins. Einkenni eins og einbeitingarskortur, þreyta, lyst- arleysi og ýmiss konar vanlíðan geta komið til vegna svefnraskana. Einnig getur alvarlegur svefnvandi leitt til vandamála tengdra hjarta- og æðakerfi og einkenni ýmissa undirliggjandi sjúkdóma geta auk- ist við skertan svefn. Þannig er góður svefn mikilvægur áhrifavald- ur hvað varðar lífsgæði og heilsu. Það er því mikið gleðiefni og fram- faraskref að fá nýjan og betri tækjabúnað til svefnrannsókna á Barnaspítala Hringsins sem mun nýtast öllum þeim börnum sem þurfa á slíkum rannsóknum að halda. Kæfisvefn barna Eftir Önnu Björk Eðvarðsdóttur » Truflun á svefni get- ur haft alvarleg skammtíma- og lang- tímaáhrif á bæði lík- amlega og andlega heilsu. Anna Björk Eðvarðsdóttir Höfundur er formaður Hringsins. Umræða um svifryk og uppruna þess, hreinsun gatna, um- ferðarstýringu og fleiri áhrifavalda hefur verið fyrirferðarmikil síðustu vikur. Það er af hinu góða, málið snertir okkur öll. Göt- ur eru þrifnar til að viðhalda loftgæðum í umhverfinu. Slíkt hreinlæti bætir bæði ásýnd og líðan íbúa. Sumum er gott hreinlæti lífs- spursmál. Þannig áætlar Umhverf- isstofnun Evrópu að á Íslandi látist 60 manns á ári af völdum svifryks. Það eru nokkuð fleiri dauðsföll en t.d. vegna brjóstakrabbameins. Þessi vandi er því mjög áþreifan- legur þótt hann fari lágt. Aðrir eru hæfari til að fjalla um uppruna svifryksins. Mér finnst hins vegar rétt að víkja fremur að því hvað er gert og hvað er hægt að gera til að draga úr þessari mengun. Hreinsitækni ehf. er framkvæmdaaðli, verktaki fyrir ríki og sveitarfélög við þrif á götum og stígum. Eðli máls samkvæmt fylgj- umst við því býsna vel með ástandi vega, loftgæðum og þróun í verk- lagi og tækni. Sé litið til höfuðborgarsvæðisins er ljóst að hægt er að vinna með ýmsar breytur til að hámarka ár- angur. Besta leiðin til að þrífa götur er almennt talin vera sópun – þvottur – sópun. Grófefnið er fjarlægt í fyrstu umferð, þvotturinn skolar fínefni, sem situr eftir, út í veg- kant, seinna sópið á að fjarlægja það sem eftir situr. Misjafnt er á milli sveitarfélaga hvaða aðferðum er beitt. Sums staðar eru götur þrifnar eftir þessari aðferð, annars staðar ekki. Gæði götuþrifanna eru því misjöfn. Fleiri leiðir má nefna. Þannig hef- ur verið úðað ryk- bindiefnum til að binda óreinindi á göt- um. Að okkar mati er betra að fjarlægja óhreinindi en að binda þau niður. Annar bún- aður er til, svo sem sérstakar svifryksugur. Þær byggja á þeirri forsendu að gatnakerfið sé í grunninn vel þrifið (viðhaldsþrif). Auðvitað er nokkuð misjafnt hvernig er staðið að þrifum í borg- um í löndum í kringum okkur. Sé litið til borga eins og Óslóar sýna gögn að allar götur hennar eru þrifnar a.m.k. á tveggja vikna fresti. Slík tíðni þýðir auðvitað að hægt er að fara hraðar yfir og beita meira aðferðum eins og götu- þvotti. Frágangur samgöngumannvirkja skiptir líka máli. Frágangur veg- axla, svæði sem hægt væri nýta undir hjólastíga o.fl. Áhöld eru um hvort gerð götu sé í raun lokið með því einu að setja bundið slitlag á akreinar. Hægt væri að minnka svifryk með því að rykbinda einnig 1-2 metra út fyrir skilgreinda ak- braut og um leið yrðu þrif auðveld- ari. Engar samhæfðar reglur eru til fyrir umgengni um framkvæmda- svæði. Þannig er mikil umferð mal- arflutningarbíla til og frá bygg- ingasvæðum. Í langfæstum tilvikum eru settar kvaðir um þrifnað á dekkjum, þannig að ryk og drulla frá byggingasvæðum ber- ist síður út í gatnakerfi höfuðborg- arsvæðisins. Bylting hefur orðið í getu til að mæla umhverfisáhrif. Þannig eru í boðið ódýrar lausnir sem mæla bæði svifryk og lofttegundir sem rekja má til útblásturs frá bíl- vélum. Hægt er að fá þennan bún- að þannig að hann geti nýtt veð- urspár og reynslu til að spá fyrir um loftgæði næstu daga. Þennan búnað mætti því nota sem lið í að ástandsstýra þrifum gatna. Á þann hátt yrðu þrifin markvissari og ár- angursríkari. Þá myndu slíkar að- ferðir draga úr svifryki og á sama tíma næðist betri nýting á þá fjár- muni sem varið er til þessara mála. Þá myndu markvissar aðferðir væntanlega geta bætt heilsu þeirra sem eru viðkvæmir fyrir lélegum loftgæðum. Hámarkshraði ökutækja er ein breyta sem getur haft áhrif. Áhrif breytingar á hámarkshraða koma fram í rykmyndun, útblæstri og ferðatíma svo eitthvað sé nefnt. Þessi leið hefur því meiri jákvæð áhrif eftir því sem gatnakerfið er óhreinna. Að framansögðu má sjá að möguleikar til að tempra magn ryks í kringum umferðaræðar eru talsverðir. Bestur árangur næst með samspili þessara þátta. Sem stjórnandi í sérhæfðu hreingern- ingafyrirtæki hef ég mest dálæti á lausnum sem innifela aukið hrein- læti. Margar leiðir til að draga úr svifryki Eftir Björgvin Jón Bjarnason »Möguleikar til að tempra magn ryks í kringum umferðaræðar eru talsverðir. Björgvin Jón Bjarnason Björgvin Jón Bjarnason er fram- kvæmdastjóri Hreinsitækni ehf. Víða í heims- bókmenntunum er var- að við óhóflegri auð- söfnun. Í Nýja testamentinu hvetur Kristur til þess að safna andlegum auði fremur en veraldlegum sem mölur og ryð kann vel að eyða. Og auðvitað geta þjófar komist yfir hann á ýmsan hátt og talið sig hafa meira gagn af en eig- andinn. Það er ótrúlegt hversu sumir eiga auðvelt með að komast yfir veraldleg verðmæti á skömmum tíma sem kann að nema ævistriti þúsunda. Meira að segja höfum við á Íslandi séð dæmi slíks. Í Þýskalandi hefur á undanförnum misserum verið gefinn gaumur að auðmanninum Adolf Hitler. Hann var í byrjun síðustu aldar fátækur listamaður sem margir töldu vera mjög misskilinn. Svo kom fyrri heimsstyrjöldin og hann sem fleiri kom stórskaðaður úr þeim voða. Sennilegt er að mótlæti hans í lífinu hafi eflt hann sem af- burðaræðumann sem því miður varð ofstæk- inu að bráð. Nas- istaflokkur hans náði strax að festa rætur um miðjan 3ja áratuginn en flestir Þjóðverjar voru eðlilega tortryggnir. Hitler og félagar fóru mikinn en starfsemi Nasistaflokksins reynd- ist mjög dýr þar sem meiru var eytt en aflað. Miklar skuldir hlóðust upp. Var svo komið í árslok 1932 að Nasistaflokkurinn var nánast gjald- þrota. Þann 4. janúar 1933 fór fram í Köln mikilvægur fundur forystumanna Nasistaflokksins við þýska herráðið en forseti þess, Kurt von Schleicher, gegndi þá um nokkra hríð kanslara- embættinu. Var hann sá hinsti á tíma Weimarlýðveldisins. Á þessum fundi voru auk þess fulltrúar stóriðjunnar þýsku með Kruppveldið í fararbroddi með ýmsum öðrum sem sáu bjarta framtíð með Hitler sem kanslara. Ákveðið var á þessum fundi að und- irbúa stjórnarskipti sem urðu undir lok janúarmánuð eins og kunnugt er. Hófu Hitler og félagar hans þá þegar undirbúning að hervæðingu Þýska- lands sem endaði með miklum hörm- ungum fyrir nánast alla heimsbyggð- ina. Auðmaðurinn Adolf Hitler Með valdatöku nasista vænkaðist fjárhagur Nasistaflokksins og for- ingja hans. Adolf verður fljótlega með auðugustu mönnum Þýskalands og er enginn eftirbátur helstu kapít- alistanna í stóriðjunni. Sem rík- iskanslari fékk hann í árslaun 1934 sem svaraði 60.000 ríkismörkum (RM). Gengi þess var milli 1,50 til 1,8 miðað við íslenskar krónur á árunum fyrir stríð. Má til samanburðar geta þess að tímakaup verkamanna í Reykjavík nam um 1 krónu og kannski ögn meir. En ýmsar þóknanir fékk hann sem námu hærri fjárhæðum. Fyrir bók sína Mein Kampf fékk hann himin- háar þóknanir. Þessi umdeilda bók varð allt í einu skyldulesning um gjörvallt Þýskaland og síðar Aust- urríki sem og önnur hernumin lönd. Öll þýsk nýgift hjón fengu Mein Kampf í brúðkaupsgjöf sem greidd var af þýska ríkinu. Árið 1933 hafði Hitler 1,2 milljónir RM í þénustu af Mein Kampf en alls er talið er að hann hafi þénað 7,8 milljónir RM á bókinni. Öll heimili voru skyldug að kaupa eintak þrátt fyrir að mjög margir og jafnvel meirihluti þjóð- arinnar vildu minnst af Hitler vita. Þá lét þýska póststjórnin prenta í all- mörg ár frímerki með vangamynd (prófíl) af Hitler í tuga milljóna upp- lagi. Hefur komið í ljós að hann hafi persónulega fengið allmargar millj- ónir RM sem þóknun fyrir. Hefur tal- an 50 milljónir RM verið nefnd í þessu sambandi. Þá er talið að Hitler hafi fengið umtalsverðar þóknanir frá iðjuhöld- um og atvinnurekendum enda þykir það vera mikil móðgun að launa ekki þeim stjórnmálamönnum sem hafa greitt götu viðkomandi og sýnt hags- munum þeirra skilning. Hitler og Nasistaflokkur hans var allsráðandi í nánast öllu samfélagi Þýskalands og gátu gert það sem þá lysti. Hitler taldi þannig aldrei fram til skatts eft- ir að hann varð kanslari. Þá kostaði þýska ríkið sveitasetur hans í Berchtesgaden sem hefur ver- ið nefnt Arnarhreiðrið. Einnig greiddi ríkið bifreiðar hans, persónu- lega járnbrautarlest og þrjár flug- vélar sem hann hafði til einkaafnota. Óhætt er að segja að einræðisherr- ann hafi fjarri því verið á flæðiskeri staddur. Undir lok stríðsins verður þessi auðmaður gjörsamlega bjargarlaus í neðanjarðarbyrginu í Berlín. Allur auður hans og herir komu honum að engu gagni. Og hann tekur líf sitt í örvæntingu þegar fyrir er séð að stríðið er gjörsamlega tapað. Þess má geta að himinhá fjárhæð var á sparisjóðsreikningi hans í Bay- ern. Líklegt er að hún hafi horfið sem annað í móðu sögunnar. Auðurinn er allt í einu einskis virði. Mættu allir auðmenn hafa í huga að betra er að koma auðnum þangað sem mikil þörf er fyrir í samfélögum heims en að láta hann gufa upp og verða engum að gagni. Eftir Guðjón Jensson »Með valdatöku nas- ista vænkaðist fjár- hagur Nasistaflokksins og foringja hans. Guðjón Jensson Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari í Mosfellsbæ. arnartangi43@gmail.com Gömul saga og ný

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.