Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 49

Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 49
DÆGRADVÖL 49 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 arfsmannafatnaður rir hótel og veitingahús Hótelrúmföt Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði og öðru líni fyrir hótel Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | kristin@run.is | www.eddaehf.is Eigum allt fyrir: • Þjóninn • Kokkinn • Gestamóttökuna • Þernuna • Hótelstjórnandann Gleðilegt sumar þannig að ég er alltaf eitthvað að stússa og svo er líka stutt á golf- völlinn í Öndverðarnesi.“ Fjölskylda Eiginkona Sigurðar er Ingibjörg J. Eiríksdóttir, f. 6.5. 1962, hjúkr- unarfræðingur. Þau búa í Bakka- hverfi í Breiðholti. Foreldrar Ingi- bjargar voru hjónin Eiríkur Ásgeirsson, f. 7.11. 1933, d. 15.3. 2014, vélvirki, og Guðný Þorvalds- dóttir, f. 24.1. 1929, d. 20.1. 2010, húsmóðir. Þau bjuggu í Reykjavík. Börn Sigurðar og Ingibjargar eru: 1) Hildur Björk, f. 11.6. 1986 í Kaupmannahöfn, hjúkrunarfræð- ingur, býr í Reykjavík. Sambýlis- maður: Vilmar Freyr Sævarsson, f. 17.9. 1981, lögfræðingur. Börn þeirra eru Aron Mikael, f. 26.1. 2011; Aníta Eir, f. 28.11. 2014; Andrea Vigdís, f. 27.2. 2020; 2) Anna Guðný, f. 24.12. 1991, við- skiptafræðingur, býr í Hafnarfirði. Sambýlismaður: Theodór Ingi Pálmason, f. 26.4. 1987, löggiltur endurskoðandi. Dóttir Theodórs er Ásdís Inga, f. 2010; 3) Eyrún Inga, f. 4.5. 1999, nemi í hagfræði við HÍ, býr í Reykjavík. Unnusti: Adam Bæhrenz Björgvinsson, f. 13.4. 1998, nemi. Systkini Sigurðar: Hjálmur Sigurjón Sigurðsson, f. 17.8. 1949, d. 2.3. 2006, viðskiptafræðingur, bjó í Reyjavík; Steinunn Sigurð- ardóttir, f. 3.4. 1951, hjúkrunar- fræðingur, fv. hjúkrunarforstjóri, býr á Akranesi; Ragnar Sigurðs- son, f: 4.10. 1954, prófessor í stærðfræði við HÍ; Reynir Sigurðs- son, f. 23.8. 1963, rafmagnsverk- fræðingur, framkvæmdastjóri Borealis Alliance, býr í Reykjavík. Foreldrar Sigurðar: Hjónin Sig- urður Sigurjónsson, f. 22.10. 1925, d. 10.9. 2011, rafvirkjameistari og starfaði hjá Teiknistofu Sambands- ins og síðar Nýju Teiknistofunni, og Guðbjörg Hjálmsdóttir, f. 19.6. 1927, húsmóðir ásamt því að vinna ýmis verslunarstörf. Þau bjuggu lengstum í Teigagerði 12 í Reykja- vík. Guðbjörg býr nú í Árskógum 10 í Reykjavík. Sigurður Sigurðsson Guðbjörg Ólafsdóttir húsfreyja á Sleggjulæk í Stafholtstungum Guðmundur Kristjánsson bóndi á Sleggjulæk Steinunn Guðmundsdóttir húsfreyja á Hofsstöðum Hjálmur Þorsteinsson bóndi á Hofsstöðum í Stafholtstungum Guðbjörg Hjálmsdóttir húsmóðir í Reykjavík Elín Jónsdóttir húsfreyja í Örnólfsdal Þorsteinn Hjálmsson bóndi í Örnólfsdal í Þverárhlíð Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja í Eyvindarholti undir Eyjafjöllum Ólafur Ólafsson bóndi í Eyvindarholti Ragnhildur Ólafsdóttir húsfreyja í Miðskála og Reykjavík Sigurjón Sigurðsson bóndi í Mið-Skála undir Eyjafjöllum, síðar verkamaður í Reykjavík Guðrún Auðunsdóttir húsfreyja á Núpi Sigurður Ólafsson bóndi á Núpi undir Eyjafjöllum Úr frændgarði Sigurðar Sigurðssonar Sigurður Sigurjónsson rafvirkjameistari í Reykjavík „ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ HANN HAFI EKKI KOMIST AÐ NIÐURSTÖÐU.“ „ÞÚ GETUR UNNIÐ ÞÉR INN 100 ÞÚSUND EF ÞÚ VINNUR HVÍLDARLAUST Í 168 KLUKKUSTUNDIR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera enn jafnskotin í hvort öðru eftir öll árin saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KOMINN TÍMI Á MIÐNÆTURSNARL! KLUKKAN ER NÍU UM MORGUN HEI, ÞAÐ ER MIÐ- NÆTTI EINHVERS STAÐAR GÓÐUR PUNKTUR! HERLÆKNIRINNOKKAR FINNST EKKI! KANN EINHVER HÉR SKYNDIHJÁLP? ÉG HEFOFT ÁÐUR KYSST Á BÁGTIÐ! Móðir mín átti bókina „Vestanum haf, – ljóð, leikrit, sögur og ritgerðir eftir Íslendinga í Vest- urheimi“, útgefin 1930. Þessi bók hefur alltaf verið mér kær og þess vegna greip ég hana þegar ég leit yf- ir bókaskápinn. Sigurbjörn Jóhanns- son frá Fótskinni orti ferðbúinn til Vesturheims: Fyrr ég aldrei fann, hvað hörð fátækt orkað getur. Hún frá minni móðurjörð mig í útlegð setur. Eftir hálfrar aldar töf, ónýtt starf og mæði, leita eg mér nú loks að gröf langt frá ættar svæði. Kristinn Stefánsson orti 58 ára: Dags þó hvörfin sjái’ ég senn, samt mér þykir gaman: Karl og drengur í mér enn eiga leika saman. Jón Runólfsson kallar þetta erindi „Aumingja Stjönu“: Aumingja Stjana, aumka ég hana, að eiga ’ann svo veilan og vælinn. Alvaldur kæri, áttu’ ekki snæri að hengja helvítis þrælinn. „Sá ráðríki“ er yfirskrift þessarar vísu Káins: Af langri reynslu lært ég þetta hef: að láta drottin ráða meðan ég sef. En þegar ég vaki þá vil ég sjálfur ráða og þykist geta ráðið fyrir báða. Káinn orti „Minni mjólkurmanna 1883“, 15 erindi. Faðir minn hafði mjög gaman af einu þeirra og kenndi mér ungum um leið og hann spurði mig hvernig ég skildi botn- inn; hvort Káinn óskaði mjólkur- mönnum mjólkurleysis eða ekki: Vorri kæru fósturfoldu þeir fagran minnisvarða reisi. Bresti þá aldrei neitt af neinu nema skort á mjólkurleysi. Einar Sigfússon yrkir „Á efsta degi 19.4. 21“: Predikun siða sumum ei ferst, segja um hvað gildi á efsta degi. Sagt er að fólkið syrgi oft mest syndirnar er það drýgði eigi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Gluggað í vesturheimsk skáld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.