Fréttablaðið - 02.10.2021, Blaðsíða 96
frettabladid.is 550 5000RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf.DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is
Margrétar
Kristmannsdóttur
n Bakþankar
Á meðan heimsfaraldurinn var
í hámarki var ekki farið í nein
ferðalög til útlanda. En þegar rofaði
til – tvöföld bólusetning í húsi og
smittölur taldar viðunandi – var
bókuð ferð til Kaupmannahafnar
til fundar við einkadótturina. Þegar
sest var upp í flugvél eftir 1½ árs bið
var ekki laust við að tilhlökkunin
væri flughræðslunni yfirsterkari.
Það vann þó einnig gegn óttanum
við flugið að ekkert tiltökumál
þykir að vera komin með áfengi í
glas eldsnemma morguns, svo lengi
sem setið er um borð í flugvél.
Við tóku yndislegir dagar í Kaup-
mannahöfn, en þar sem dóttirin
var í vinnu gafst nægur tími til að
ganga miðborgina þvers og kruss á
eigin forsendum. Þegar höfuðborg
Danmerkur var heimsótt hér fyrr á
árum var ekki farið mikið út fyrir
Strikið. Gatan var gengin upp og
niður og sífellt fjölgaði pokunum
sem eiginmaðurinn þurfti að bera. Í
dag er þó tími innkaupa í útlöndum
einungis brot af því sem áður var,
en dögunum varið í að gera vel við
sig í mat og drykk og skoða áhuga-
verða hluti.
Þó voru hliðargötur í mið-
borginni þræddar enda urmull af
skrítnum verslunum þar og áhuga-
verðar antíkbúðir. Síðasta daginn
stoppaði ég við lítinn búðarglugga
en hélt göngu áfram með hraði
enda gat ekki verið komið svona
illa fyrir mér! Ég snéri þó fljótlega
við og kaupin fóru fram. Á þeirri
stundu var ljóst að ég var bæði
orðin mamma mín og amma! Á
yngri árum var nefnilega eitt það
ljótasta sem til var á heimilum
þessarar tveggja kvenna – að mínu
mati – allt í einu vandlega pakkað
ofan í ferðatöskuna mína. Meira
miðaldra gerist maður varla – en að
eiga forláta postulínsstyttu frá Bing
& Gröndahl. n
Að verða mamma
sín og amma
VEITINGASTAÐURINN
Á matseðli í september
Verslun opin 11-20 – IKEA.is
IKEA Bakarí, Sænska matarhornið og IKEA Bistro opið 11-20
1.195,- 995,-
Lambaskanki
með kartöflumús,
grænum baunum
og rauðkáli
Ýsa í orly
með frönskum
og hrásalati
Láttu pappírinn
fjúka
Pappírslaus viðskipti
með Wise Capture