Fréttablaðið - 02.10.2021, Blaðsíða 54
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir
styrki til félagasamtaka vegna
verkefna á sviði heilbrigðismála
lausa til umsóknar.
Auglýst er eftir umsóknum um styrki
af safnliðum fjárlaga frá íslenskum
félagasamtökum vegna verkefna á
sviði heilbrigðismála.
Ekki eru veittir styrkir til verkefna
sem hljóta styrki á fjárlögum eða
falla undir sjóði ráðuneytisins eða
samninga sem gerðir hafa verið við
ráðuneytið.
Einungis er tekið við rafrænum
umsóknum. Nánari upplýsingar og
leiðbeiningar um umsóknir á raf-
rænum eyðublöðum er að finna á
umsóknarvef Stjórnarráðsins
(http://minarsidur.stjr.is)
Úthlutun fer fram einu sinni á ári og
eru veittir styrkir til verkefna sem
miða að því að veita einstaklingum
eða hópum stuðning, fræðslu og
ráðgjöf. Styrkir eru ekki veittir til
lengri tíma en eins árs í senn.
Umsóknarfrestur er til kl. 16.00
mánudaginn 1. nóvember 2021.
Úthlutað verður eigi síðar en
1. febrúar 2022.
Umsókn sem berst eftir að um-
sóknarfresti lýkur verður ekki tekin
til umfjöllunar.
Styrkir vegna verkefna
á sviði heilbrigðismála.
Auglýst útboð
Íþróttamannvirki – Borg í Grímsnesi, forval
Sveitarfélagið Grímsnes- og Grafningshreppur óskar eftir þátttakendum í forvali til að
taka þátt í lokuðu alútboði vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á íþróttamiðstöðinni á
Borg í Grímsnesi. Farið verður yfir allar umsóknir og hæfi og geta umsækjanda metin út
frá þeim upplýsingum sem þeir leggja fram með umsókn sinni.
Fyrirhuguð er stækkun á núverandi íþróttamiðstöð að Borg í Grímsnesi. Nýbygging skal
vera á tveimur hæðum, annarsvegar íþróttasalur á neðri hæð þar sem hægt verður að
stunda líkamsrækt og hinsvegar skrifstofurými á efri hæð hússins.
Heildarstærð íþróttamiðstöðvar verður um 590 m2.
Verkkaupi hefur sett byggingunni og starfsemi hennar sjálfbærnimarkmið sem mikilvægt
er að fylgja eftir. Lögð er megináhersla á að verkið verði unnið á sem hagkvæmastan
hátt.
Alútboð þetta nær yfir verkfræðihönnun og reisingu hússins.
Verkkaupi mun ráða arkitekt til verksins.
Heiti verkefnisins er: Íþróttamannvirki – Borg í Grímsnesi
Helstu verkþættir eru:
• Verkfræðihönnun húss
• Byggingarleyfisumsókn
• Jarðvinna
• Undirstöður, burðarvirki og ytra byrði
• Frágangur utanhúss,
• Frágangur innanhúss, þ.m.t. íþróttagólfs og uppsetning á föstum búnaði
• Uppsetning og fullnaðarfrágangur allra lagna- og rafkerfa
• Frágangur lóðar
Tengiliður verkkaupa mun afhenda forvalsgögn að ósk umsækjanda í gegnum tölvupóst,
ragnar@gogg.is. Gögnin verða afhent þriðjudaginn 5. október 2021.
Umsókn ásamt umbeðnum gögnum sem talin eru upp í forvalsgögnum skal skila með
tölvupósti fyrir kl. 16:00, þriðjudaginn 19. október 2021.
Ekki er hægt að skila inn umsókn eftir að uppgefinn umsóknarfrestur er útrunninn.GRÍMSNES- OG
GRAFNINGSHREPPUR
Skíðasvæðið í Bláfjöllum. Breytt deiliskipulag.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 28. september 2021 með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipu-
lagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi skíðasvæðisins í Bláfjöllum.
Í breytingunni felst að efri hluta byggingarreits nýrrar stólalyftu Gosa við Suðurgil verði hliðrað
um 60-70m til suðurs. Vegna færslu byggingarreits til suðurs færist rör- og rafdreifikerfi fyrir
snjóframleiðslu samhliða. Neðri hluta byggingarreits nýrrar stólalyftu Drottningar við Kóngsgil
verði hliðrað um 10m til suðurs. Staðsetning hættumatslínu C vegna snjóflóða neðan Suðurgils
verði uppfærð í samræmi við nýja legu línunnar frá Veðurstofu Íslands. Byggingarreit aðstöðu-
húss Ulls verði hliðrað til suðurs um 30 m auk þess sem hann lengist um 15 m til vesturs.
Vegna færslu byggingarreits til suðurs lengist bílastæði til suðurs að nýrri legu byggingarreits.
Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags.
15. september 2021. Nánar er vísað til kynningargagna.
Ofangreind tillaga er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is. Ef óskað er eftir
nánari upplýsingum um tillöguna er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar á
netfangið skipulag@kopavogur.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér tillögurnar. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist skriflega til skipulagsdeildar,
Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00
mánudaginn 15. nóvember 2021.
Skipulagsfulltrúinn í Kópavogi.
kopavogur.is
Auglýsing um breytt deiliskipulag
í Kópavogi.
Innkaupaskrifstofa
Sími 411 1111
ÚTBOÐ
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Þróttur – Laugardal – Æfingavellir – Gervigras
– Jarðvinna og lagnir, útboð nr. 15323
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Styrkumsóknir
vegna náms á skólaárinu 2021-2022.
Stjórn Minnigarsjóðs Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
auglýsir hér með eftir styrkumsóknum vegna náms á skólaárinu
2021-2022.
Styrkirnir eru ætlaðir nemendum í verkfræði- og raunvísindagrein-
um og hafa þeir einkum verið veittir nemendum í framhaldsnámi.
Umsókn og fylgigögnum skal skilað í einu pdf – skjali á póstfangið
MinningHelguogSigurlida@gmail.com. Með umsókn skal skila
ferilskrá, staðfestingu á skólavist og námsárangri, meðmælum og
öðrum gögnum sem umsækjandi telur koma að gagni við mat
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 25. október 2021.
Stefnt er að úthlutun í lok nóvember.
Sjá nánar á vef sjóðsins http://MinningHelguogSigurlida.is/
20 ATVINNUBLAÐIÐ 2. október 2021 LAUGARDAGUR