Fréttablaðið - 02.10.2021, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 02.10.2021, Blaðsíða 24
sér maður betur og betur hversu margt sem við erum að gera í heim­ inum í dag skiptir engu máli. Við í vestrænum heimi erum sjúklega sjálfhverf,“ segir hún ákveðin. Játaði sig sigraða Þótt Eva Dís hafi minnkað við sig vinnuna í dag þá gerði hún það alls ekki strax. Hún hélt áfram að vinna í markmiðalistanum sínum og bauð sig meðal annars fram í stjórn verk­ fræðistofunnar sem hún starfar fyrir og tók þar sæti. „Þetta var í mínum huga algjörlega lógískt – bara áfram gakk!“ „Adrenalínið dugði í smástund en svo játaði ég mig hreinlega sigraða í febrúar síðastliðnum og fór í sex mánaða veikindaleyfi. Minn fókus hafði verið að reyna að koma börn­ unum í gegnum þetta og þegar mér fannst þeir orðnir góðir fór ég að slaka aðeins á og eins og samkvæmt uppskrift þá hafði ég tæmt mín batt­ erí.“ Talið berst að söknuðinum sem eðlilega hellist yfir við makamissi og ekki síst þegar fólk er búið að vera par frá því á unglingsárunum. „Ég hafði séð fyrir mér að ég myndi sakna hans mest í ákveðn­ um aðstæðum, en svo saknar maður sterkast í aðstæðum sem eru varla sérstakar. Þegar maður er bara heima og allir að gera sitt. Maður fattar hversu miklu þessir litlu hlutir, sem maður er svo van­ þakklátur fyrir, skipta. Hversdags­ leikinn í sinni smæstu mynd, að skipuleggja vikuna og skipta með sér verkefnum.“ Nýtt samband Eva Dís sótti sér fljótt faglega aðstoð, bæði í gegnum sálfræðing, prest á Landspítala og í jafningjastuðning og segir allt hafa hjálpað sér. Í stuðn­ ingshópi hjá Sorgarmiðstöðinni kynntist Eva Dís Gísla og hófu þau ástarsamband fyrir ári síðan. Hann hafði misst eiginkonu sína og tengd­ ust þau strax sterkum böndum. „Ég fann sterkt þegar ég hóf þetta samband ári eftir að Stefán lést, að Eva Dís upp- lifir að nú að tveimur árum liðnum geti hún horft fram á veginn, sárar tilfinningar hafi mildast. samfélagið hugsaði að það væri allt í lagi með mig og þá saknaði ég hans ekki lengur. En mig langaði að öskra á torgum: „Ég sakna hans!“ segir Eva Dís og finnst sem óskráðar reglur gildi í samfélaginu um hvenær sé viðeigandi að hefja samband á ný. „Það er ótrúlega dýrmætt að eiga þessa sömu reynslu að baki og ein­ mitt þess vegna held ég að hlutirnir hafi gerst tiltölulega hratt. Það getur verið erfitt fyrir nýjan maka að finna sér stað þar sem fyrrverandi maki hefur fallið frá. Þetta er allt annað en skilnaður. Nýi makinn þinn saknar enn og elskar þann sem er látinn. Þetta eru flóknar til­ finningar.“ Eva Dís segist hafa verið forvitin um sorgina sem hún hafði svo oft heyrt að væri misjöfn á milli ein­ staklinga og aðstæðna. „Við Ína Ólöf Sigurðardóttir, vinkona mín og framkvæmdastjóri Sorgarmið­ stöðvar, vorum einhvern tíma að ræða þessi mál og ég sagði að það þyrfti einfaldlega að gera sjónvarps­ þætti um þetta. Ekkert dramarugl, heldur um það hvernig fólk heldur áfram og vinnur í hlutunum.“ Eftirlifendur þjakaðir af samviskubiti Hugmyndin varð eins og fyrr segir að veruleika, þökk sé Reyni Lyngdal, Frey Eyjólfssyni, Republik Film og Símanum, og segir Eva Dís rauða þráðinn hafa verið að finna viðmæl­ endur sem þær vissu að hefðu unnið vel í sínum málum, væru tilbúnir að tala hreinskilnislega og jafnvel stinga á tabú. „Ég held að þeir sem lenda í svona áföllum séu oft svo þjakaðir af sam­ viskubiti. Það er samviskubitið yfir að gráta ekki nóg, yfir að brosa, yfir að eignast annað barn eða nýjan maka. Það er eins og okkur sé kennt að við eigum ekki að finna gleðina aftur. Samt eigum við að halda áfram. Þetta verður tilfinningalegur hrærigrautur.“ Eva Dís segist í dag forgangsraða á annan hátt en áður. „Ég vel sam­ veruna með strákunum fram yfir annað í dag. Það er líka hluti af eftir­ sjánni, að ég valdi oft vinnuna fram yfir okkur. Eftirsjáin er að hafa ekki valið samveru með honum og strák­ unum og ætla ég að læra af því.“ Velur í dag öðruvísi Eftirsjá er oft áberandi við slíkan missi og er Eva Dís þar ekki undan­ skilin. „Ég hefði viljað ræða mögu­ leikann á að hann myndi deyja og vera betur undirbúin. Eftirsjáin snýst aðallega um mína forgangs­ röðun. Í dag vel ég öðruvísi. Ég leyfi mér að vera meira á staðnum, sem er ákveðin núvitund. Og svo er það líka þessi klisja: Ég hefði viljað segja honum oftar hvað mér fannst hann frábær. Í hverju mér fannst hann góður, en ég held að við séum oft duglegri að segja maka okkar hvað okkur finnst þeir ekki góðir í. Ég sakna messenger­skilaboðanna um hvað á að vera í matinn sem er leiðinlegasta spurning dagsins.“ Eva Dís segir hreinskilni einkenna nýja sambandið. „Þó við séum búin að vera stutt saman er þroski sam­ bandsins mikill og reynslan skilar sér í öll okkar samskipti. Það er dýr­ mætt að hafa bæði farið í gegnum þetta, líka fyrir börnin okkar. Ég get sagt honum að ég sakni Stebba. Það er ekki sjálfgefið að geta rætt slíkt við nýjan maka. Okkur þykir líka vænt um maka hvors annars, það er skrítin tilfinning að þykja vænt um einhvern sem maður hitti aldrei.“ Tilfinningarnar mildast Nú eru tvö ár frá því að Stefán féll frá og segist Eva Dís finna að hún sé að lenda og hún sjái nú að það verði í lagi með þau. Þau geti farið að fókusa aftur á lífið fram undan. „Tilf inningarnar mildast og maður getur hugsað til erfiðra aðstæðna án þess að það sé óbæri­ lega vont.“ Eva Dís hefur sannarlega unnið vel úr sárri reynslu og tekið það besta út úr henni eins og hún var strax staðráðin í að gera. „Mér fannst strax himinninn blárri og fjöllin grænni, litirnir sterkari. Ég fór stundum í bíltúr því mér fannst sólsetrið svo fallegt. Áður fyrr hefði ég ælt yfir slíkri væmni. Ég upplifði svo mikið þakk­ læti. Að horfa á börnin mín vaxa og átta mig á því að það er ég sem fæ að njóta þess. Ég ákvað strax að ég ætlaði að láta þetta ef la mig, ef la strákana mína. Auðvitað hefði ég viljað að þetta hefði ekki gerst en ég sjálf er betri manneskja af því þetta gerðist. Alltaf að syrgja Þó ég sé brosandi glöð er ég alltaf að syrgja. Ég hugsaði lengi hvenær ég myndi hætta að vakna með hann sem fyrstu hugsun eða sofna með hann sem síðustu, en það er enn þannig og núna vil ég ekki að það hverfi. Þannig tekur maður ástvini áfram með sér í gegnum allt lífið. Ég mun alltaf sakna hans. Við stórar stundir í lífi sona okkar græt ég bæði af gleði og af sorg yfir því að hann skuli ekki vera hér. Manneskjan sem grét aldrei er meyr og klökk yfir minnstu hlutum og mér finnst það allt í lagi. Það er bara styrk­ leikamerki að tengjast tilfinningum sínum, frekar en veikleikamerki. n Auðvitað hefði ég viljað að þetta hefði ekki gerst en ég sjálf er betri manneskja af því þetta gerðist. Maður fattar hversu miklu þessir litlu hlutir, sem maður er svo van- þakklátur fyrir, skipta.  24 Helgin 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.