Morgunblaðið - 13.05.2021, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
efninu sem þarna var á ferð, því að
það spannaði svo vítt svið úr sam-
félagsgreinunum. „Lestur nær nefni-
lega til allra námsgreina, og þannig
þjálfumst við í lestri með því að lesa
sem mest,“ segir Ingólfur og bætir
við að skólarnir geti látið nemendur
sína nálgast efnið.
Jökull bætir við að innihald og fjöl-
breytileiki greinanna sé lykilatriði í
litabókunum. Jökull rifjar upp að
þegar hann og fjölskylda hans fluttu
heim frá Svíþjóð með einn strák sem
aldrei hafði gengið í íslenskan skóla
hafi Litabækurnar leikið lykilhlut-
verk í að kveikja áhuga hans á lestri,
og um leið að hjálpa honum að ná
jafnöldrum sínum í skólanum. „Hann
hafði sérstakan áhuga á greininni um
esperanto, þar sem honum þótti svo
undravert að hægt væri að búa til
heilt tungumál úr engu,“ rifjar Jökull
upp með glampa í augunum. „Þetta
sló algjörlega í gegn, og við tókum
þessu fegins hendi, því við höfðum
reynt allt áður.“
Ekki talað niður til neins
Jökull bætir við að Litabækurnar
hafi reynst mörgum vel, þá jafnvel
fullorðnum Íslendingum sem hafi ís-
lensku sem sitt annað tungumál.
„Það er mjög einkennandi fyrir allt
námsefnið á Skólavefnum að það er
aldurslaust, það er ekki talað niður til
neins.“ Ingólfur bætir við að í náms-
efninu sé hentug blanda af erfiðu efni
og auðveldu til þess að hjálpa nem-
endum að ná árangri.
Eitt af því nýjasta á vefnum er
verkefnið „Lærum íslensku,“ en það
er hugsað sem kennsluefni fyrir
pólskumælandi nemendur á öllum
aldri sem vilja læra íslensku. Ing-
ólfur segir að verkefnið hafi verið tvö
ár í vinnslu og Jökull bætir við að
þeir hafi fengið góð viðbrögð og um
leið þarfar ábendingar um hvernig
megi gera efnið enn betra.
Auk íslensku er einnig boðið upp á
efni í svo til öllum greinum og er
hægt að prenta það út. Jökull segir
að færst hafi í vöxt að foreldrar vilji
prenta út efni til að börnin eyði ekki
jafnmiklum tíma í tölvum og öðrum
snjalltækjum, en auk þess geta þau
þá farið á vefinn og leyst þar verk-
efni, m.a. til þess að læra íslenska
landafræði, jökla og ár, eða um
heimsálfurnar.
Þá er einnig mikið af stærð-
fræðiefni að finna á vefnum, en nú
eru rúmlega 900 myndbönd þar sem
grunnhugtök í algebru og reikningi
eru útskýrð á íslensku, og farið vel og
greinilega í hvert einasta skref í út-
reikningum. Ingólfur segir að stærð-
fræðiefnið hafi nýst mörgum vel í
námi, jafnvel framhaldsskólanemum.
Víkur nú sögu að vefnum framhalds-
skoli.is, en þar hefur verið hægt er að
fá alls kyns námsgögn fyrir fram-
haldsskólanema, líkt og Skólavef-
urinn hefur gert fyrir grunn-
skólanema.
Héldu í áskrift eftir útskrift
Þar eru Íslendingasögurnar í
miklu fyrirrúmi, en efnið þar hefur
verið unnið í samráði við dr. Baldur
Hafstað, sem er sérfræðingur í Egils
sögu Skallagrímssonar, og kenndi
Ingólfi á sínum tíma í Kennarahá-
skólanum. Hefur Baldur unnið þar
sérstakar orðskýringar við Íslend-
ingasögurnar og jafnvel myndbönd
þar sem helstu meginstef sagnanna
eru rædd. „Við höfum lent í því að
fullorðið fólk hafi viljað halda áfram
með áskriftina til að lesa sögurnar
áfram eftir að barnið þeirra var út-
skrifað úr menntaskóla,“ segir Ing-
ólfur og brosir.
Þá hafi Baldur lagt til að taka upp
Íslendingasögur sem ekki hafi al-
mennt séð verið kenndar við íslenska
framhaldsskóla, Króka-Refs sögu og
Finnboga sögu ramma, og hefðu ein-
hverjir skólar tekið þær til kennslu í
kjölfarið.
Þeir Ingólfur og Jökull taka þó
fram að nú standi til að sameina vef-
ina, meðal annars vegna þess að
mörg heimili séu með krakka á bæði
grunn- og framhaldsskólaaldri, sem
þeir hafi viljað koma til móts við í
gegnum tíðina. „Við reynum að halda
verðinu á einstaklingsáskriftum í al-
gjöru lágmarki,“ segir Ingólfur. Þá
sé efni elstu bekkja grunnskóla og
yngri bekkja framhaldsskólanna sí-
fellt samþættara og því verði það til
mikilla bóta að sameina vefina tvo.
Ljóst er að gríðarmikið efni hefur
safnast saman á vefjunum tveimur á
þeim tuttugu árum tæpu sem liðin
eru frá því Ingólfur og Jökull fóru af
stað með Skólavefinn, og þeir hyggj-
ast halda því starfi áfram. „Við eigum
nefnilega frábæra kennara hér á
landi, vel menntaða og færa. En þá
vantar oft kennslugögn við hæfi, og
þar reynum við að koma til að-
stoðar,“ segir Ingólfur og Jökull tek-
ur undir. „Góð námsgögn geta nefni-
lega gert gæfumuninn til þess að
halda áhuga nemenda á náminu.“
Góð námsgögn geri gæfumun
- Skólavefurinn fagnar tuttugu ára afmæli sínu síðar á árinu - „Litabækurnar“ eru sérstaklega
hugsaðar til þess að auka áhuga nemenda á lestri - Fjölbreytt úrval námsgagna í flestum greinum
Morgunblaðið/Eggert
Skólavefurinn Þeir Jökull Sigurðsson (t.v.) og Ingólfur B. Kristjánsson hafa haldið úti Skólavefnum um árabil.
VIÐTAL
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
„Hugmyndin vaknaði þegar ég var
skólastjóri hjá litlum skóla á lands-
byggðinni og sá að þörf var á efni
sem þessu,“ segir Ingólfur B. Krist-
jánsson, ritstjóri Skólavefjarins. Vef-
urinn skolavefurinn.is mun fagna
tuttugu ára afmæli sínu í haust, en
þar má nú nálgast fjöldann allan af
námsgögnum og öðrum hjálpar-
tækjum fyrir kennara, nemendur og
foreldra á grunnskólastigi.
Vefurinn hefur notið sífellt meiri
vinsælda á sínum tuttugu árum, og
segir Jökull Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri vefjarins, að nær allir
grunnskólar landsins séu nú með
áskrift eða hafi nýtt sér efni frá hon-
um, auk þess sem sífellt fleiri ein-
staklingar kaupi sér áskrift.
Ingólfur segir að sérstök áhersla
hafi verið lögð á lestraraðstoð og les-
skilning, enda hafi henni hrakað gríð-
arlega að undanförnu. „Þess vegna
fórum við af stað til að finna leiðir til
að bæta það, enda er það graf-
alvarlegt til lengri tíma ef læsi fer að
hraka,“ segir Ingólfur, en hann á um
tuttugu ára kennsluferil að baki, sem
spannaði nær allar námsgreinar.
Ingólfur og Jökull eru sérstaklega
stoltir af „Litabókunum“ svonefndu,
en það eru lestrarkennslubækur,
sem skipt er í nokkur stig eftir bæði
lengd og þyngd textans. „Við höfum
unnið með kennurum og reynt að
greina hvar þörfin sé mest á efni,“
segir Ingólfur.
Lestur nær til allra námsgreina
Textarnir spanna alls kyns áhuga-
svið, allt frá landafræði til norrænnar
goðafræði, stærðfræði og jafnvel
popptónlistar 20. aldar. „Við erum að
reyna að tryggja að börnin lesi text-
ann og fái skilning á honum,“ en allt
efni á vefnum er einnig lesið upp. Þá
er skilningi fylgt eftir með spurn-
ingum úr efninu.
Ingólfur segir að það hafi tekið
smátíma fyrir skólana að átta sig á
Hárlínan hentar öllum
gerðum hárs, hún er
sérstaklega hönnað til
auka viðgerðarhæfni
hársins ásamt því að
styrkja og þétta hárið.
Án
allra auka
efna
Útsölustaðir: Lyfjaver, Heimkaup.is & Hagkaup
Einfaldlega það
besta frá náttúrunni
NÝTT FRÁ NEW NORDIC
Fyrir um áratug ákváðu þeir Ing-
ólfur og Jökull að færa út kvíarnar
með rafbókasíðunni lestu.is og
hljóðbókasíðunni hlusta.is. „Það
var svo mikil þörf á rafbókasíðu á
sínum tíma að við ákváðum að gera
þetta, því við höfðum svo mikið af
rafbókum tiltækt,“ segir Ingólfur.
Efnið á vefjunum tveimur er fjöl-
breytt og fæst hvergi annars stað-
ar. „Við veljum bara bækur sem við
höfum áhuga á og trúum að aðrir
hafi áhuga á,“ segir Ingólfur, en
þar má finna bæði skáldsögur og
fræðibókmenntir á ensku eða ís-
lensku. „Og svo erum við með Matt-
hías Johannessen,“ segir Ingólfur.
Matthías er landsþekkt skáld og
fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðs-
ins, en eftir hann liggja fjölmargar
ljóðabækur, skáldverk og síðast en
ekki síst viðtalsbækur sem nutu
mikilla vinsælda á sínum tíma.
Rúmlega fjörutíu bækur eftir Matt-
hías er að finna á vefjunum tveim-
ur, bæði í raf- og hljóðbókaformi.
Þá er þar einnig að finna nýtt efni
eftir Matthías. Þar á meðal má
nefna ljóðabókina Andlit fölra
skugga, sem kom út á þessu ári og
er hvergi fáanleg annars staðar.
Jökull segir að síðurnar tvær séu
nokkurs konar hliðarverkefni, en
lestu.is var á sínum tíma fyrsta raf-
bókasíða landsins. „Þetta var gert
af ákveðinni hugsjón,“ segir Jökull,
og bætir við að rafbækur séu nú
aftur að ryðja sér til rúms eftir að
hafa vikið fyrir hljóðbókum. Raf-
bækurnar eru gjaldgengar í bæði
Kindle-forriti og í ePub-formati,
sem önnur tæki notist flest við.
Á hlusta.is er sömuleiðis efni sem
ekki finnst annars staðar. Ingólfur
nefnir þar ævisögu Jóns Óskars at-
ómskálds, sem lýsi vel tíðarand-
anum á millistríðsárunum.
Einungis efni sem
við höfum trú á
Morgunblaðið/Gunnar V. Andrésson
Nýtt efni Áður óútgefið efni eftir
Matthías Johannessen er að finna á
vefjunum lestu.is og hlusta.is.