Morgunblaðið - 13.05.2021, Blaðsíða 64
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
Sumar
HENDERSON 3JA SÆTA SÓFI
Polyrattan. L218 cm. 129.900 kr. Nú 103.920 kr.
LOKA HÆK
130x82,5x48 cm
hlið . . . . .
20% AF SUMARVÖRUM
SÉRTILBOÐ
LÝKUR 17. MAÍ
ILVA.IS/TILBOÐ
20%
ORTO TUNGUSÓFI
Legubekkur + 2ja sæta. Solo grænt velúr áklæði. L292 x D164 cm.
279.900 kr. Nú 222.900 kr.
HYDRA GARÐSETT Borð + 2 stólar.
Borð L62 x H75 cm. 46.700 kr. Nú 37.36
CLENNIE ELDSTÆÐI
Ø30 x H80 cm. 18.995 kr.
Nú 15.196 kr.
og málmur. L92 x H78 cm.
57.900 kr. Nú 46.320 kr.
Landnámssetrið í Borgarnesi heldur
upp á 15 ára afmæli sitt í dag, upp-
stigningardag, og verður opnað kl.
14 og boðið upp á vöfflur, kaffi og
heitt súkkulaði til kl. 16. Þá verður
frumsýning á Söguloftinu og nefnist
sú Refillinn – tilurð og saga Bayeux-
refilsins, í flutningi Reynis Tómasar
Geirssonar. Eiginkona Reynis, Stein-
unn Jóna Sveinsdóttir, þýddi skáld-
söguna Dverginn frá Normandí eftir
Lars-Henrik Olsen sem segir af því hvernig hinn frægi
Bayeux-refill var saumaður í léreft að öllum líkindum í
Kent á Englandi um 1076. Refillinn er ein mesta þjóðar-
gersemi Frakka. Steinunn lést áður en henni tókst að
ljúka útgáfu bókarinnar og lofaði Reynir henni að hann
myndi ljúka verkinu sem hann og gerði. Hann mun ekki
segja frá efni bókarinnar í sýningunni heldur frá tilurð
refilsins og saumaaðferðinni sem er frá tímum víkinga,
eins og segir í tilkynningu, og hvernig hann hefur varð-
veist í gegnum aldirnar. Hann mun einnig rekja söguna
sem myndirnar á reflinum túlka.
Afmæliskaffi og frumsýning
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 133. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
KA er á toppi Pepsi Max-deildar karla í knattspyrnu eft-
ir sannfærandi sigur á nýliðum Leiknis úr Reykjavík,
3:0, en leikur liðanna fór fram á Dalvíkurvelli í gær.
Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði tvö marka Akur-
eyrarliðsins úr vítaspyrnum og er nú markahæstur í
deildinni með fjögur mörk. » 54
KA-menn á toppi deildarinnar
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Merki um að flugferðum sé að fjölga
á ný eftir að hafa verið í lágmarki
vegna kórónuveirufaraldursins í
rúmt ár auka mörgum bjartsýni og
þar á meðal Arndísi Birgisdóttur.
Hún útskrifaðist sem flugmaður fyrir
um ári og hefur ekki enn fengið starf
í faginu, en haldið sér við sem flug-
kennari. „Ég hef sótt um störf heima
og erlendis en það eru margir í sömu
sporum og því mikil samkeppni um
flugmannsstöður,“ segir hún.
Undanfarin sex ár hefur Arndís
unnið við umönnun á Mörk hjúkr-
unarheimili við Suðurlandsbraut og
eftir að hún fékk réttindi sem flug-
kennari hefur hún jafnframt unnið
hjá flugskólanum ifly á Reykjavík-
urflugvelli. Hún segir að flugnámið
hafi verið krefjandi og erfitt en hún
hafi ákveðið að samtvinna einkaflug-
mannsnám og atvinnuflugmannsnám
og því tekið 180 flugtíma. „Stefnan
hefur lengi verið að verða flugmaður
að atvinnu og því kom ekki annað til
greina en að taka alla þá tíma sem
þurfti til að fá réttindin,“ segir hún.
Flug og ferðalög
Flugið hefur alla tíð heillað Arndísi
og hún var ekki gömul þegar hún
varð staðráðin í því að verða flug-
maður. „Pabbi er með einkaflug-
mannspróf og átti vél áður en ég
fæddist, en það hafði engin áhrif á
mig heldur fyrst og fremst frelsið
sem fylgir því að fljúga. Annar bróðir
minn er með einkaflugmannspróf og
hinn hefur flogið með mér. Kannski
ég kenni honum bara!“
Það er ekki aðeins flugið sem togar
í Arndísi heldur ekki síður áfanga-
staðirnir. „Mér finnst mjög gaman að
ferðast og koma á áður ókunna
staði,“ segir hún. „Þeir sem vinna í
fluginu fá tækifæri til þess að fara
víða og það hafði mikið að segja um
að ég ákvað að verða flugmaður.“
Arndís segir flugið fjölbreytt í allri
sinni mynd og margbreytilegt eftir
veðri og vindum. Margar flugleiðir
séu heillandi og erfitt að gera upp á
milli. „Mér finnst einna skemmtileg-
ast að fljúga til Ísafjarðar og Akur-
eyrar, því náttúrufegurðin er mikil
og flugvallarstæðin öðruvísi en ann-
ars staðar. Það hefur líka verið gam-
an að fljúga yfir eldgosið í Geldinga-
dölum og nóg verið að gera á þeirri
leið.“ Hún hefur ekki enn fengið
tækifæri til þess að fljúga sjálf til út-
landa en á sér marga uppáhaldsstaði
sem ferðamaður. Erfitt sé að gera
upp á milli þeirra en Ítalía, Frakk-
land og Alparnir komi
fyrst upp í hugann.
„Stórbrotin náttúran
hefur hrifið mig einna
mest.“
Vonbrigðin hafa
verið mikil að hafa
hvorki fengið starf í
fluginu né önnur tæki-
færi til þess að ferðast.
„Það virðist samt vera
að birta til og ég verð
að vera þolinmóð,“
segir Arndís bjartsýn.
Samt sem áður taki
það á taugarnar að
sækja alls staðar um
og fá hvergi jákvætt
svar. „Þetta er auðvitað leiðinlegt en
svona er það bara. Ég get ekki annað
en haldið áfram að vona það besta og
að úr rætist fyrr eða síðar, en þar til
það gerist held ég áfram sem flug-
kennari.“
Bjartsýnn flugkennari
- Arndís Birgisdóttir segir mikið frelsi fylgja fluginu
Feðginin Birgir Gunnsteinsson og Arndís.
Á flugi Eldgosið á Reykjanesskaga heillar Arndísi Birgisdóttur.