Morgunblaðið - 13.05.2021, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 13.05.2021, Blaðsíða 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 ekki nógu góða veislu, sitja við hliðina á ein- hverjum sem þú þekkir ekki eða vita ekki hvaða fólk þetta er. Að hafa áhyggjur af því að það sé ekki nægur matur og bara alls kon- ar áhyggjur. Það er svo rosalega mikil eftir- vænting sem þýðir að það getur orðið rosa- lega mikið hrap líka. Það á að vera gaman og þetta er eins og að segja brandara, hann á að vera fyndinn og það er svo rosalega óþægi- legt ef hann misheppnast,“ segir Saga kímin. – Það er rosalega vont að halda partí sem er ekki skemmtilegt. „Já, ég er mjög smeyk oft við að halda upp á afmælið mitt af því ég er svo hrædd um að það verði ekki nógu skemmtilegt og enginn muni mæta, að ég muni spila ömurlega tón- list og þetta verði bara vandræðalegt.“ Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Þegar við byrjuðum að semja verkið voru veislur bara aðalmálið og sumir voru að fara í þrjár veislur á dag og partí út um allan bæ. Svo er það bara einhver veruleiki sem við höfum ekki þekkt núna í að verða ár. Núna er þetta meira orðið eins og upprifjun á því hvað veisla er og við erum meira að hugsa núna að okkur langi til að bæta fólki upp all- ar veislurnar sem það missti af,“ segir Saga Garðarsdóttir, leik- og fyndlistarkona með meiru, sem hafði yfirumsjón með skrifum handrits sýningarinnar Veisla sem loksins verður frumsýnd á Stóra sviði Borgarleik- hússins annað kvöld en átti upphaflega að frumsýna á Litla sviðinu í mars í fyrra. Aðrir höfundar handrits eru leikkonurnar Sigrún Edda Björnsdóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir og leikararnir Sigurður Þór Óskarsson og Halldór Gylfason. Þau leika öll í verkinu auk Björns Stefánssonar en leik- stjóri er Bergur Þór Ingólfsson. „Þetta er náttúrlega algjör stuðsýning,“ segir Saga um Veislu en handritsvinnan hófst í febrúar í fyrra. Frumsýningu hefur verið frestað margoft vegna Covid-19 og seg- ir Saga sýninguna nú farna að daðra við að vera söngleikur. „Við vorum alltaf að bæta við fleiri og fleiri lögum af því við höfðum svo mikinn tíma,“ útskýrir hún. – Er það kannski jákvæða hliðin á þessari annars slæmu stöðu vegna farsóttarinnar, að verkið hefur vaxið og dafnað? „Já, algjörlega. Það er búið að vera mjög óvanalegt að sitja á grínefni svona lengi.“ Margir með veislukvíða – Ég sá kynningarmyndband fyrir Veislu og fannst ég skynja þar ákveðna ádeilu á íslenska veislumenningu. „Já, við erum náttúrlega bara að gera grín að okkur sjálfum og öllum þessum persónum sem við þekkjum, fulla millistjórnandanum og löngu ræðunni og því dæmi öllu.“ Veislur eru af ýmsu tagi og þeirra á meðal fermingarveislur og ættarmót sem geta orðið vandræðaleg, eins og spaugað er með í myndbandinu fyrrnefnda. Saga segir að við skrif handritsins hafi leikararnir í upphafi velt fyrir sér hvað þeir tengdu við veislur. „Það sem var einna áhugaverðast var að mjög margir voru með einhvern veislukvíða, kvíða yfir því að hafa ekkert að segja, halda Eins og börn á jólum Saga telur fólk almennt vilja að veisluhöld gangi upp og veislan sé vel heppnuð. „Þetta er það sama og við þekkjum hjá litlum börn- um um jólin; það á að vera svo gaman og þess vegna er mjög stutt í að fólk brotni saman,“ segir Saga. „Þú drekkur einu bolluglasi of mikið og ert farinn að gráta inni í eldhúsi.“ – Er saga í verkinu? „Nei, þetta er sketsasýning, byggð upp eins og sketsaþáttur eins og til dæmis Ára- mótaskaupið en þemað er veisla. Þetta eru lítil atriði sem snúast um veislumenningu Ís- lendinga,“ svarar Saga. Berndsen og Þórður Gunnar Þorvaldsson eru meðal þeirra sem sömdu tónlist við sýn- inguna og segir Saga að uppleggið hafi verið að búa til algjöra partítónlist. „Svo bættust mánuðirnir við og við fengum fleiri hug- myndir þannig að nú myndi ég segja að þetta væru mjög fjölbreytt lög, allt frá kórlögum sem við hópurinn sömdum reyndar fyrir kór- partí og svo erum við líka með diskó, sexí lag, Disney-lag og það bara hlóðst ofan á þetta,“ segir Saga. Hún segist að lokum mjög spennt fyrir því að fá loksins að sýna leikhúsgestum Veislu en um leið stressuð. „Við erum búin að eiga sjö skrifaða frumsýningardaga sem hefur öll- um verið frestað þannig að ég eiginlega þori ekki að trúa því að þetta sé að fara að ger- ast!“ segir Saga og hlær við. Best að krossa fingur. Ljósmynd/Grímur Bjarnason „Það á að vera gaman“ - Veisla loksins frumsýnd í Borgarleikhúsinu, rúmu ári eftir að upphaflega átti að frumsýna hana - „Það er búið að vera mjög óvanalegt að sitja á grínefni svona lengi,“ segir Saga Garðarsdóttir Stuð? Úr Veislu sem frumsýnd verður á morg- un í Borgarleikhúsinu. Bresku Brit-tónlistarverðlaunin voru afhent í London í fyrrakvöld og voru konur áberandi meðal verðlaunahafa, ólíkt hinum karl- lægu verðlaunum árið 2020. Dua Lipa fór þar fremst í flokki og hlaut verðlaun fyrir bestu plötuna (Fut- ure Nostalgia) og verðlaun sem besta tónlistarkonan. Verðlaun sem besta hljómsveitin hlaut kvennasveitin Little Mix og er það í fyrsta sinn í sögu verðlaun- anna sem hljómsveit eingöngu skip- uð konum hlýtur þau verðlaun. Í þakkarræðu sagði ein kvennanna, Leigh-Anne Pinnock, að það væri erfitt að vera kona í popptónlist í heimalandi sínu þar sem karlmenn réðu ríkjum og mikill skortur væri á fjölbreytni og jafnrétti kynjanna. Besta alþjóðlega hljómsveitin var einnig kvennasveit, tríóið Haim frá Los Angeles, og Billie Eilish hlaut verðlaun sem besta alþjóðlega tón- listarkonan. Poppsöngkonan Griff hlaut verðlaun sem rísandi stjarna og Taylor Swift heimsstjörnuverð- launin. Arlo Parks hlaut svo verð- laun fyrir að hafa slegið í gegn (e. breakthrough artist) en hún kemur fram á Iceland Airwaves í nóv- ember. Besti tónlistarmaður í karlaflokki varð J Hus og Weeknd í flokki karla á alþjóðavísu Best Dua Lipa fékk Brit-verðlaun fyrir bestu plötuna, Future Nostalgia. Konur sigursælar á Brit-verðlaunahátíð Tónleikar verða haldnir í Hann- esarholti í dag kl. 15.30 þar sem flutt verða verk eftir Snorra Sigfús Birgisson. Laufey Sigurðardóttir leikur á fiðlu og Snorri sjálfur ápíanó. Fyrsta verkið á efnisskránni er Svíta fyrir einleiksfiðlu sem hann samdi á síðasta ári að beiðni Lauf- eyjar og er verkið tileinkað henni, að því er fram kemur í tilkynningu. Verkið er í fjórum köflum og verður frumflutt á tónleikunum. Auk svít- unnar munu Laufey og Snorri leika tvær þjóðlagaútsetningar fyrir fiðlu og píanó. Tónleikarnir verða um 45 mínútur að lengd og aðgangseyrir er 1.000 kr. Tvíeyki Snorri Sigfús og Laufey. Verk eftir Snorra leikin í Hannesarholti KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS NÝR LITUR Arctic White
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.