Morgunblaðið - 13.05.2021, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 13.05.2021, Blaðsíða 36
36 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 É Ó Glide Step Verð: 14.995.- Stærðir: 36 - 41 Arch fit Flex Verð: 13.995.- Stærðir: 36 - 41 Arch Fit Refine Verð: 14.995.- Stærðir: 36 - 41 Glide Step Verð: 14.995.- Stærðir: 36 - 41 SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS SKECHERS withArchFit withMemory Foam withMemory Foam withArchFit Architectural Digest póstar reglulega á fa- cebook-síðu sinni nokk- urra ára gamalli grein um tíu best hönnuðu byggingar í heimi. Harpa, innblásin af ís- lenskri náttúru, er listuð fyrst. Rauðglóandi hraun flæðir úr gígnum. Það breytist í storknað basalt. Umkringt stuðlabergi sem kristallast hefur í munstri glerhjúps. Þetta er andi tón- leikasalarins Eldborgar og með sama hætti er hægt að lýsa söl- unum Norðurljósum, Silfurbergi og Kaldalóni. Í glerhjúpnum baðar sig svo stuðlabergið í litrófi sem mælt var sérstak- lega í heilan sólarhring á sumarsólstöðum á Reykjanesi. Í nýrri markaðsher- ferð Hörpu er sterkur keimur af sumarlitum og munstri glerhjúpsins. Ég gat ekki annað en glott smá því það var ekki nema nokkrum vikum áður sem ég nefndi þessa uppgötvun mína um litróf hjúpsins við aðila sem ég vissi að væri um það bil að kynna hugmyndir sínar að nýrri markaðsherferð. Snertinguna við hönnunarheim Hörpu væri samt spennandi að þróa enn frekar með til dæmis kynningu frá Ólafi Elíassyni sjálfum um upplifun hans á húsinu öllu í tilefni af tíu ára afmæli þess. Það hefur verið fróðlegt og skemmtilegt að lesa og greina hina stuttu en flóknu sögu Hörpu, sem og að hugsa um framtíð hennar. Eins spennandi og arkitektúr hússins er, þá er arkitektúr dagskrár og dagskrár- gerðar enn meira spennandi. Tón- leikahald er jú forsprakki og tilgangur þess. Svo mikla athygli vakti hönn- unin, staðsetningin og tónlistarflóra Íslands að European Concert Hall Organisation fundaði í Hörpu í apríl 2019 þar sem forstjórar og fulltrúar u.þ.b. 20 helstu tónleikahúsa Evrópu sáu fram á mögulegt samstarf í tón- leikhaldi á vettvangi alþjóðlega skap- andi hagkerfisins. Grundvallar- forsenda ECHO er aftur á móti að meðlimir standi fyrir verulegum eigin- viðburðum. Í raun eru því miður engir eiginviðburðir í Hörpu. Heimsókn þessara forstjóra var þar með á röng- um forsendum. Eins og ég nefndi í fyrri grein, Mik- ilvægustu tækifæri Hörpu, eru góð samskipti við alþjóðamarkaðinn, sem og innanhúss, grundvallaratriði í að halda draumnum um bjarta framtíð á lofti. Harpa, Sinfónían og Óperan eru hið fullkomna þríeyki til að stuðla að veldisvexti tónlistarlífsins almennt með því að slá á rétta strengi og mynda sterkan samhljóm í kjarna- starfsemi hússins. Við óskum Hörpu innilega til hamingju með tíu ára af- mælið og horfum til bjartari fram- tíðar tónlistarlífsins, svo hlusti englar guðs í Paradís. Snert hörpu mína Eftir Gunnar Guðjónsson Gunnar Guðjónsson » 10 ára afmæli Hörpu. Staðan og framtíðin. Höfundur er rekstrarstjóri og fv. aðstoðarmaður forstjóra Raab&Böhm Artists. gunnar.gudjonsson@icloud.com Í störfum mínum í og nálægt stjórnmálum hef ég ítrekað glaðst yf- ir því hve góðu fólki Ís- land býr yfir og hvílíku grettistaki fólkið lyfti sem byggði upp landið svo við getum notið alls þess sem hér er. Ég hef líka séð að stjórnmál skipta raunverulegu máli og hvernig á þeim er haldið. Þess vegna hef ég ákveðið að bjóða mig fram í 3.-4. sæti í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík nú í vor. Mér finnst mikilvægt að fólk sem íhugar að styðja mig viti hvar ég stend og í hvaða átt ég tel að stjórn- málin eigi að stefna. Frelsið er höfuðforsenda Ég trúi því einlægt að fólk eigi að vera frjálst til að feta sína eigin leið að hamingjunni. Í mínum huga þýðir það að hið opinbera eigi ekki frekar en aðrir að hafa skoðanir á eða af- skipti af lífi fólks nema rík ástæða sé til. Það krefst umburðarlyndis og virðingar gagnvart ólíkum skoðunum og lífi annarra almennt. Frelsismál; einstaklingsfrelsið, skoðanafrelsi, frelsi í atvinnulífinu, kynfrelsi og tjáningarfrelsi hafa verið mér hug- leikin og verða áfram forsendur og mælikvarði alls sem ég geri. Við eigum að standa með at- hafnasemi og uppbyggingu Okkur hefur alltaf gengið best þeg- ar sköpunarkraftur fólks fær að njóta sín. Ríkið býr ekki til peninga. Það er fólk sem skapar atvinnu og ávinning- inn sem verður til af henni. Það eru hugmyndir fólks og krafturinn sem býr í því sem þoka samfélaginu áfram. Hlutverk stjórnmálanna er að skapa gott umhverfi fyrir samkeppn- ishæft atvinnulíf, nýsköpun og hug- myndir. Öflugt efnahagslíf er mikil- vægasta forsenda þess að við getum gert það sem okkur ber skylda til; tryggja tæki- færi og menntun, hlúa að þeim sem þurfa að- stoð og tryggja þeim sem eldri eru verð- skuldað áhyggjuleysi. Réttarríkið er grunnur að réttlátu samfélagi Stjórnmál eiga að vera yfirveguð, lausna- miðuð og skynsöm. Staðreyndir og heildarhagsmunir eiga að vera í forgrunni þegar við tök- um ákvarðanir. Lýðræðið og réttar- ríkið eru grunnur alls sem við byggj- um á og ég hef raunverulegar áhyggjur af því að tækifæris- mennska, óskhyggja og hrópkeppnir geti dregið niður okkar almennt góða samfélag. Afleiðingarnar eru van- traust, skyndilausnir og hentistefnu- réttlæti sem gagnast engum þegar upp er staðið. Við eigum að vera óhrædd við að taka umræðu um nýjar nálganir, en við eigum að gera það af festu og á grundvelli þess ágæta kerf- is sem við höfum byggt. Þegar kemur að því að standa vörð um frelsið, réttarríkið og athafnasemi fólks hefur engum flokki tekist betur upp en Sjálfstæðisflokknum. Þess vegna hef ég helgað Sjálfstæðis- flokknum krafta mína síðustu ár og mun halda áfram að gera. Stjórnmál skipta máli Eftir Hildi Sverrisdóttur » Það skiptir máli hvernig á stjórn- málum er haldið. Því hef ég ákveðið að bjóða mig fram í 3.-4. sæti í próf- kjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík. Hildur Sverrisdóttir Höfundur er 1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður, aðstoðarmaður ráðherra og frambjóðandi í 3.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Öryggishlutverk Út- lendingastofnunar. Réttur til alþjóðlegrar verndar hér á landi gildir ekki hafi um- sækjandi framið alvar- legan (ópólitískan) glæp áður en honum var veitt viðtaka sem flóttamanni. Sama á við ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta umsækjanda hættulegan öryggi rík- isins. Hér á landi er sérstakri stofn- un, Útlendingastofnun, falið það hlutverk að framfylgja lögum um útlendinga. Kærunefnd útlendinga- mála úrskurðar svo í málum þeirra sem sætta sig ekki við niðurstöður Útlendingastofnunar. Svo er að sjá sem kærunefnd útlendingamála líti á lögin sem viðmið sem ekki þarf endilega að fara eftir. Og ef Rósa Björk Brynjólfsdóttir stofnar að- gerðahóp gegn úrskurðunum, þá gilda orð hennar framar lögum. Hér var manni nýlega veitt hæli af kærunefnd útlendingamála vegna þess að hann er meðlimur í öfga- samtökum! Ég hygg það vera ein- stakt í heiminum. Vonandi mun það ekki hafa slæmar afleiðingar sem þó er rík ástæða til að óttast. Afleiðingar andvaraleysis Út- lendingastofnunar Morðið í Rauðagerði hefur að vonum vakið mikla athygli. Ekkja fórnarlambsins vakti athygli á að sá sem játað hefur verknaðinn búi hér í andstöðu við lög. Mikil er ábyrgð Útlendingastofnunar ef svo er og ég hef enga ástæðu til að efa. Útlendingastofnun hefur haft næg- an tíma til að bera af sér sakir. Fyrir aðeins þremur árum var lettnesk kona myrt með hroðaleg- um hætti hér á landi. Lengi vel fóru málavextir mjög hljótt. Ástæðan var ráðgáta; nú eða þá ekki. Hvað sem öðru líður er dag- ljóst að morðinginn hefði aldrei átt að fá stíga hér til jarðar. Hann var dæmdur of- beldismaður fyrir al- varlega glæpi framda í Evrópu. Þessi erlenda kona varð, eða öllu heldur orðspor hennar, að þola umfjöllun sem var til háborinnar skammar og að ýmsu mjög mis- jöfnu látið liggja um persónu henn- ar. Vonandi slapp fjölskyldan við vitneskju um þetta tal. Útlend- ingastofnun var því miður alveg sleppt við alla gagnrýni eins og nú fer fram vegna morðsins í Rauða- gerði. Og af hverju Samfylkingin áttar sig ekki líkt og margir systur- flokkarnir í Evrópu er óskiljanlegt. Leyndarhyggja kærunefndar útlendingamála Af einhverjum sökum er kæru- nefnd útlendingamála í mun að við- halda leynd um starfsemi sína. Nefndin skal að jafnaði birta úr- skurði sína, eða eftir atvikum út- drætti úr þeim, sem fela í sér efn- islega niðurstöðu á aðgengilegan og skipulegan hátt. Stór hluti úrskurða er samt ekki birtur. Ég spurðist fyrir um þetta hjá nefndinni. Svar formannsins var svohljóðandi: „Með orðunum „að jafnaði“ í 7. mgr. 6. gr. er ljóst að birtingarskyldan er ekki afdráttarlaus og að stofnuninni er með því orðalagi eftirlátið nokk- urt svigrúm til mats á því hvaða úr- skurði skuli birta. Þá er jafnframt ljóst að ekki er kveðið á um að úr- skurðir skuli birtir opinberlega inn- an tiltekins tíma frá uppkvaðningu og því hefur stofnunin svigrúm til að meta hversu fljótt úrskurðir eru birtir.“ Ekki veit ég hvort formað- urinn er löglærður, enda þarf þess ekki. Kærunefndin veit í öllu falli, að því er virðist, ekkert hvað „að jafnaði“ þýðir á íslensku. Viðbót- arrökin voru m.a. þessi: „Við gerð verklagsreglnanna [sem eru gerðar án lagaheimildar eða heimildar ráð- herra] var litið til þess að Rauði kross Íslands fer með hags- munagæslu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd. Þeir starfsmenn Rauða krossins sem sinna þessu starfi hafa því aðgang að um 99% af efnisúrskurðum á þessu sviði, en örfáir kærendur hafa falið öðrum lögmönnum að sjá um hagsmuna- gæslu gagnvart kærunefndinni. Markmið opinberrar birtingar um fyrirsjáanleika og réttaröryggi eru því mjög vel tryggð að þessu leyti með þeim aðgangi sem starfsmenn Rauða krossins hafa að úrskurðum kærunefndar.“ – Svo mörg voru þau orð. Kærunefnd útlendinga- mála lítur sem sé svo á að reglur sem gilda um birtingu dóma, lög um persónuvernd og reglur um birtingu ýmissa úrskurða stjórn- valda og m.a.s. skýr fyrirmæli út- lendingalaga séu ekki bindandi og að úrskurðir Útlendingastofnunar þurfi ekki sæta opinberri birtingu, almenning varði þetta engu. – Væri ekki tilvalið að fá heimild Alþingis, nú eða a.m.k. ráðherra fyrir þessu ráðslagi? Eftir Einar S. Hálfdánarson »Kærunefnd útlend- ingamála er í mun að viðhalda leynd um starf- semi sína án heimildar ráðherra. Af hverju Samfylkingin áttar sig ekki er óskiljanlegt. Einar S. Hálfdánarson Höfundur er hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi. Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.