Morgunblaðið - 13.05.2021, Blaðsíða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
544 5151tímapantanir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Sérhæfð þjónusta fyrir
Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna
aðgerðir ríkisstjórnarinnar
ALLIR VINNA sem felur í sér
endurgreiðslu á VSK
af vinnulið einkabifreiða
Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun
og förum með bifreiðina í skoðun
Þjónustuaðilar IB Selfossi
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Harpa er bæði heimavöllur og
heimssvið. Við viljum gera íslenskri
tónlist hátt undir höfði og jafnframt
fá hingað erlent listafólk og hljóm-
sveitir sem eru á heimsmælikvarða,“
segir Svanhildur Konráðsdóttir for-
stjóri Hörpu, en í dag eru liðin 10 ár
frá vígslu tónlistar- og ráðstefnu-
hússins.
Það sá það auðvitað enginn fyrir
að vígsluafmælið yrði í miðjum
heimsfaraldri. Hvernig verður
haldið upp á þessi tímamót?
„Við byrjuðum strax árið 2019 að
undirbúa afmælishaldið og velta
fyrir okkur hvernig væri best við
hæfi að halda upp á þennan áfanga.
Það komu fram alls kyns skemmti-
legar hugmyndir sem komnar voru í
góðan farveg snemma árs 2020
þegar kófið skall á. Auðvitað gerðum
við okkur enga grein fyrir því,
frekar en nokkur annar, að það væri
fræðilegur möguleiki að við yrðum
enn að glíma við miklar takmarkanir
þegar kæmi að vígsluafmælinu. Við
höfum í þessu, eins og í öllu öðru,
þurft að endurskoða plönin mjög
reglulega,“ segir Svanhildur og
tekur fram að draumurinn hafi verið
að geta haft opið hús á vígsludeg-
inum með tilheyrandi lífi og fjöri.
Harpa er hjartað
„Við sáum hins vegar að það væru
ekki forsendur til þess að vera með
þá viðburði sem við hefðum helst
viljað á sjálfum vígsludeginum, þrátt
fyrir að allt gangi nú svo vel í sótt-
vörnum og bólusetningum. Við
minnumst því þessara tímamóta
með öðrum hætti, s.s. með yndislegu
afmælislagi sem 10 ára börn hafa
samið fyrir Hörpu og frumflutt er í
kvöld af kornungum músíköntum í
sjónvarpsþætti um afmælið á RÚV.
Okkar fókus verður í staðinn allur
settur á galopið hús á Menningar-
nótt,“ segir Svanhildur og bendir á
að Menningarnótt sé einn af þremur
afmælisdögum Hörpu. „Sá fyrsti er
4. maí þegar Sinfóníuhljómsveit
Íslands hélt opnunartónleika sína í
húsinu, síðan er það 13. maí þegar
Harpa var formlega vígð og loks er
það Menningarnótt þegar gler-
hjúpur Ólafs Elíassonar var vígður
með fyrstu ljósaverkunum,“ segir
Svanhildur og bendir á að í tilefni
vígsluafmælisins hafi Ólafur Elías-
son gefið Hörpu 12 ný ljósaverk á
glerhjúpinn.
„Allt árið 2021 birtist nýtt guð-
dómlega fallegt verk fyrsta hvers
mánaðar,“ segir Svanhildur og tekur
fram að ljósaverkin séu einn tíu
afmælispakka sem ætlunin er að
opna á afmælisárinu.
„Það er of snemmt að ljóstra upp
um innihald allra pakkanna, en ég
get þó nefnt að við erum að skipu-
leggja mjög spennandi verkefni í
samstarfi við við önnur tónlistarhús í
Evrópu í gegnum samtökin ECHO.
Við stefnum þannig að tónleikaröð
með ungum stjörnum sem hefst í
samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur
í haust. Annar afmælispakki felst í
þeim breytingum sem nú standa yfir
á húsnæði Hörpu á jarðhæðinni og
víðar um húsið. Við hlökkum til að
frumsýna þær breytingar á Menn-
ingarnótt þegar dyrnar verða loks
opnaðar upp á gátt, eftir að hafa frá
október aðeins verið opnaðar í
tengslum við viðburðarhald,“ segir
Svanhildur og vísar þar til þess að
þá muni tveir nýir veitingastaðir
verða opnaðir í húsinu, verslun og
upplifunarrými fyrir börn og fjöl-
skyldur. „Við erum að færa miðasöl-
una og búum til skemmtilega mót-
töku með gestastofu á nýjum stað.
Það er að koma inn ný stór verslun,
þannig að gestir fá að sjá ný rými
opnast á jarðhæðinni. Opnaður verð-
ur nýr inngangur við suðvestur-
hornið sem tengist Reykjastræti
sem tengir Hörpu yfir á Hafnartorg.
Allt eru þetta breytingar sem stuðla
að því að gera svæðið að frábærri
miðstöð menningar, upplifunar og
þjónustu þar sem Harpa er hjartað.
Við erum þannig að fara inn í næstu
tíu árin alveg í nýju samhengi við
miðborgina sem er mjög jákvætt.
Harpa er mikill segull ein og sér, en
samspilið við starfsemina sem er að
byggjast upp í kring fela í sér mörg
skemmtileg tækifæri,“ segir Svan-
hildur. Hún rifjar upp að í könnun
sem gerð var skömmu áður en kófið
brast á hafi komið fram að yfir 90%
höfuðborgarbúa höfðu sótt Hörpu
heim síðustu tólf mánuði áður en
könnunin var gerð.
Upplifun fyrir börn
„Þar kom einnig fram að viðhorf
svarenda gagnvart Hörpu var mjög
jákvætt og ljóst að húsið nýtur mik-
illar velvildar. Við viljum teygja okk-
ur enn lengra til hópa sem ekki hafa
verið fastagestir hingað til og einnig
viljum við leggja aukna áherslu á að
Harpa sé opið og fjölskylduvænt
hús. Frá haustinu 2018 höfum við
haft það að markmiði að leggja
aukna áherslu á þjónustu við börn
og fjölskyldur og viljum gera enn
betur í þeim efnum. Við erum að
vinna með frábærum samstarfs-
aðilum að hugmyndum um sérstakt
rými fyrir fræðslu og upplifun fyrir
börn sem tengist tónlist. Það yrði
einstakur staður í borginni þótt víð-
ar væri leitað. Það verður reyndar
ekki tilbúið á Menningarnótt, en
vonandi fljótlega í haust. Þarna mun
Maxímús Músíkus eiga heima og þar
gefst tækifæri til að kynnast undra-
heimi hljóðfæranna. Við erum að
vinna þetta verkefni með frábærum
samstarfsaðilum, s.s. Sinfóníu-
hljómsveit Íslands, aðstandendum
Maxa, Vísindasmiðjunni, Gagarín og
hönnunarhópnum Þykjó.“
Telur þú að Harpa hafi staðið und-
ir þeim væntingum sem gerðar voru
til hússins þegar það var vígt?
„Ég held að Harpa hafi staðið
undir væntingum að því leytinu til að
hún hefur gjörbreytt landslaginu og
öllum möguleikum, ekki síst fyrir
íslenskt tónlistarfólk. Auk þess sem
tilkoma svona húss, sem er á heims-
mælikvarða hvað varðar aðstöðu,
þjónustu og tækni og er listaverk í
sjálfu sér, hefur gert það mögulegt
að fá hingað alþjóðlega listamenn og
hljómsveitir ásamt alþjóðlegum mik-
ilvægum viðburðum á öllum sviðum
sem hefðu annars ekki komið til
Íslands. Ég held að þetta sé gríðar-
lega mikilvægt. Þannig er Harpa í
senn heimavöllur og heimssvið. Í því
samhengi má nefna viðburði San
Francisco-ballettsins, Budapest
Festival Orchestra og Berlínarfíl-
harmóníunnar, einleikara, stór-
söngvara og stjórnenda að ógleymd-
um öllum stjörnunum úr heimi
hryntónlistar sem komið hafa fram í
Hörpu á síðustu árum.
Borgartorg undir þaki
Það er ekkert launungarmál að
reksturinn hefur verið þungur alveg
frá upphafi. Allt sem því hefur fylgt
hefur gert það að verkum að húsið
hefur kannski ekki alltaf náð að upp-
fylla hlutverk sitt með eigin dag-
skrá. Það hafa ekki verið fjármunir
til að sinna því eins og metnaður
fólks hefur staðið til. Vegna þess
hvað fjárhagsstaðan hefur á köflum
verið erfið hafa möguleikarnir á því
að taka inn í húsið alls kyns ókeypis
viðburði og starfsemi einnig verið
takmarkaðri en maður hefði viljað.
En það breytir samt ekki því að í
þessu húsi eru haldnir 1.200-1.400
viðburðir á ári, bæði stórir og smáir
af öllum tegundum. Ég held að
Harpa hafi uppfyllt þær væntingar
mjög vel að verða samkomustaður
og félagsheimili þjóðarinnar. Þetta
er einstakt hús að því leytinu til að
þetta er eins og hálfgert borgartorg
undir þaki. Hér eru í opnum rýmum
haldnir matarmarkaðir, skákmót,
björgunardagurinn og bókamessa
sem og borgarhátíðir sem draga að
sér tugþúsundir gesta. Svona við-
burðir eru almennt ekki haldnir í
húsum af þessu tagi. Harpa sem fjöl-
nota hús hefur reynst mjög vel að
mínu mati,“ segir Svanhildur og tek-
ur fram að krúnudjásn Hörpu sé
auðvitað Eldborg. „Með sínum ein-
staka og fallega hljómburði sem hef-
ur reynst frábærlega vel og á sinn
þátt í því hversu fallega Sinfóníu-
hljómsveitin hefur vaxið og dafnað á
umliðnum árum.“
Í viðtali við mig sem birtist hér á
síðum blaðsins haustið 2019 sagðir
þú að finna þyrfti raunhæfan rekstr-
argrundvöll Hörpu til framtíðar og
tókst fram að þú vonaðir að allir sem
að húsinu koma væru sammála um
kominn væri tími til að leiðrétta og
endurskoða rekstrarmódel Hörpu.
Hvernig hefur þessu miðað fram?
„Samtal okkar og samstarf við
eigendur Hörpu, ríki og Reykjavík-
urborg, hefur verið einstaklega gott.
Þegar kófið skall á vorum við komin
ágætlega á veg með að skoða lausnir
og leiðir í því að gera reksturinn og
starfsemina þannig að það styðji
betur við hlutverk Hörpu. Það er
mín sannfæring að markmiðið með
Hörpu sé að skapa verðmæti alla
daga og í víðasta skilningi. Þá erum
við að tala um menningarleg, efna-
hagsleg og samfélagsleg verðmæti.
Harpa er að þjóna samfélaginu með
öllum þessum mismunandi við-
burðum. Þegar kófið skall á gjör-
breyttust allar forsendur og við-
fangsefnið varð annað. Eins og aðrir
í sambærilegri starfsemi höfum við
verið að róa ákveðinn lífróður. En
eigendurnir hafa staðið mjög vel
með okkur í gegnum þetta og fyrir
það erum við þakklát. Þannig kom á
síðasta ári inn hlutafjáraukning til
þess að standa straum af mjög brýn-
um umbótaverkefnum í viðhaldi á
húsnæðinu þar sem lýsing er t.a.m.
uppfærð og orkunýting bætt. Auk
þess sem okkur var gert kleift að
ráðast í fyrrnefndar breytingar. Við
erum núna að horfa fram á bjartari
tíð og vonandi að komast hraðar út
úr þessu erfiða ástandi en nokkur
þorði að vona. Við finnum það dag-
lega hvað hjólin eru farin að snúast
hraðar, skynjum aukna bjartsýni og
aukið þor viðburðahaldara sem hafa
endurtekið þurft að fresta við-
burðum. Nú er fólk farið að treysta
því betur að það sé ákveðinn fyrir-
sjáanleiki og hægt sé að fara af stað
af krafti síðsumars.“
Hvernig verður staða Hörpu eftir
önnur 10 ár þegar húsið fagnar 20
ára vígsluafmæli sínu?
„Ef þetta síðasta ár hefur kennt
okkur eitthvað þá er það að það er
gjörsamlega gagnslaust að reyna að
spá í það hvað morgundagurinn ber í
skauti sér. Ég held að þessi heims-
faraldur hafi kennt okkur ótrúlega
margt, s.s. sveigjanleika, æðruleysi
og að finna jákvæð tækifæri í hverju
sem á dynur og starfsfólk Hörpu
hefur staðið sig frábærlega í því. Ég
er líka sannfærð um að eftir kófið
munum við enn betur kunna að meta
menningu, listir og samverustundir.
Við finnum svo sterkt næringuna
sem felst í því að koma saman, gleðj-
ast saman og upplifa saman, sem er
auðvitað kjarninn í allri starfsemi
Hörpu, hvort sem það er á tón-
leikum, fræðslustund eða viðskipta-
ráðstefnu. Í þessu felast svo mikil
verðmæti og ég held að Harpa, eins
og önnur samkomuhús, muni njóta
góðs af og eflast til framtíðar,“ segir
Svanhildur.
Morgunblaðið/Eggert
„Félagsheimili þjóðarinnar“
- „Harpa er bæði heimavöllur og heimssvið,“ segir Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri Hörpu
- 10 ár eru í dag liðin frá vígslu tónlistar- og ráðstefnuhússins - Fagnað verður á Menningarnótt
Bjartsýn Svanhildur Konráðsdóttir (þriðja frá hægri í fremstu
röð) ásamt hluta þeirra starfsmanna sem starfa í Hörpu.