Morgunblaðið - 13.05.2021, Side 14
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Afhjúpun Ari Hallgrímsson, fráfarandi forseti Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð, og Ísabella Ronja
Benediktsdóttir skólastjórnarfulltrúi. Milli þeirra er listakonan Ólöf Nordal. Ofar er Steinn Jóhannsson, rektor MH.
Verkinu er komið fyrir á stað sem átti að vera gróðurreitur framandi jurta, en fær nú ekki síðra hlutverk.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
L
istaverkið mun skapa
skemmtilega stemningu
og andrúm hér, segir
Steinn Jóhannsson, rekt-
or Menntaskólans við Hamrahlíð í
Reykjavík. Þar var í sl. viku af-
hjúpað listaverkið Auga, sem er í
senn skúlptúr og vatnsbrunnur eft-
ir listamanninn Ólöfu Nordal. Verk-
inu var komið fyrir við vesturgang
skólahússins, sem var reist nokkru
fyrir 1970. Ætlun og hugmynd
Skarphéðins Jóhannssonar, arki-
tekts hússins, var að á þeim stað
skyldu ræktaðar innijurtir. Af því
varð ekki, en nú þykir fólki í skól-
anum sem umræddum vistarverum
hafi verið fundið hlutverk við hæfi.
Brunnurinn er samspil
vatns og ljóss
Gerð og uppsetning listaverks-
ins góða á sér langan aðdraganda.
Árið 2006 var Ólöf Nordal valin til
að útbúa listaverk, þá jafnhliða
stækkun skólabyggingarinnar.
„Verkefninu var ýtt úr vör og
listamaðurinn hóf vinnu sína, sem
síðan lenti í biðstöð vegna kreppu
og breyttrar forgangsröðunar í
stjórnkerfinu. En loksins gekk
þetta upp og við erum ánægð með
útkomuna. Góðir hlutir gerast
hægt, er stundum sagt. Satt að
segja er nauðsynlegt að í opinber-
um byggingum eins og skólum séu
listaverk sem auðga andann og
gleðja augað,“ segir Steinn.
Í vatnsbrunninn geta nem-
endur, starfsfólk og aðrir komist í
svalandi heilnæma lind. „Verkið er
samspil vatns og ljóss,“ segir
Steinn. Hann bætir við að fram hafi
komið sú hugmynd að inntöku ný-
nema í skólann verði þannig háttað
að þeir bergi af vatni úr brunninum
góða. Slík athöfn geti verið tákn-
ræn á ýmsa lund.
„Nemendafélagið hefur annast
inntökuathafnir þegar nýir nem-
endur koma í skólann. Nú felum við
stjórn þess að útfæra þessa hug-
mynd.“
Efniviður vísinda og lista
Ólöf Nordal á að baki langan
feril í listinni og er höfundur
margra þekktra verka. Þá var hún
á sínum tíma nemandi í MH og árið
1981 samdi faðir hennar, Jón Nor-
dal tónskáld, tónverkið Heilræða-
vísa við þekkta þjóðvísu. Við af-
hjúpun listaverksins söng Kór
Menntaskólans við Hamrahlíð svo
Smávinir fagrir, lag Jóns Nordal
við þekkt ljóð listaskáldsins Jón-
asar Hallgrímssonar.
Í ávarpi sem Ólöf Nordal flutti
við afhjúpun Auga vitnaði hún í
Gylfaginningu Snorra Sturlusonar,
sem er eitt grundvallarrita nor-
rænnar goðafræði. Þar er sagt frá
tilurð fjötursins Gleipnis sem var
gerður úr sex byggingarefnum,
sem öll eru falin í Auga.
„Ekkert þeirra er í raun til
sem skilgreint efni, hvorki áþreif-
anlega né óáþreifanlega, heldur er
þetta það sem liggur á milli hlut-
anna og sem við kunnum ekki
ennþá að sjá og greina. Þetta er
efniviðurinn sem vísindi og listir
nýta til að finna nýjar lendur og
hulda heima. Óðinn þurfti að fórna
auga sínu fyrir vísindin úr Mímis-
brunni því fyrir speki og mannvit,
þarf að færa fórnir,“ sagði Ólöf.
Listakonan gerði einnig að um-
talsefni að myndverkið væri í
gryfju sem ætluð hefði verið undir
innijurtir, sem fyrr segir. „Frátek-
inn reitur til að rækta. En úr því
varð ekki og því hefur rýmið staðið
autt í meira en hálfa öld. Ég ákvað
að taka upp þráðinn þar sem arki-
tektinn skildi við og rækta í
gróðurreitnum æsku landsins með
nægu tæru vatni og dagsljósa-
birtu.“
Auga afhjúpað
Lind! Langþráð listaverk í lærdómssetri. Samspil
vatns og ljóss í Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Fórnir fyrir mannvit og speki, segir listakonan Ólöf
Nordal. Listaverk nauðsyn í opinberum byggingum.
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
Sláttutraktorar
40 ár
á Íslandi