Morgunblaðið - 13.05.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
SVIÐSLJÓS
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF)
hafa gefið út Vegvísi um viðspyrnu
ferðaþjónustu til 2025, sem kynntur
verður á næstu dögum. Í vegvísinum
eru dregnar saman helstu áherslur
SAF um starfsumhverfi atvinnu-
greinarinnar og tillögur að aðgerð-
um stjórnvalda, sem samtökin telja
nauðsynlegar til að flýta viðspyrnu
hennar, styðja við endurreisn ís-
lensks efnahagslífs og takmarka nei-
kvæð og langvarandi samfélagsleg
áhrif heimsfaraldursins hér á landi.
Segja má að þar birtist á sinn hátt
innlegg Samtaka ferðaþjónustunnar
til þjóðmálaumræðu í aðdraganda al-
þingiskosninga, þar sem fyrirsjáan-
legt er að efnahagsleg endurreisn
eftir ládeyðu og atvinnuleysi plág-
unnar verði efst á baugi hjá öllum
framboðum. Mætti sennilega kalla
vegvísinn kosningastefnuskrá ferða-
þjónustunnar, sem setji málefni
hennar á dagskrá.
Efnahagsviðreisnin
og ferðaþjónustan
Stjórnvöld hafa raunar ekki dreg-
ið dul á það að hinar kostnaðarsömu
efnahagsaðgerðir til þess að lina kór-
ónukreppuna kalli á snarpa viðreisn í
efnahagslífinu, bæði hvað varðar at-
vinnulíf og ríkisfjármál. Þar mun
ferðaþjónustan gegna lykilhlutverki,
eins og Bjarni Benediktsson fjár-
málaráðherra hefur talað mjög af-
dráttarlaust um, hún ein sé líkleg til
þess að reisa sig af þeim krafti sem
þarf til þess að snarauka verðmæta-
sköpun og færa björg í bú.
Þetta kemur raunar einnig skýrt
fram í fjármálaáætlun ríkisstjórnar-
innar fyrir 2022-2026, þar sem sagt
er berum orðum að öflug endurreisn
íslensks efnahagslífs eftir kórónuvei-
rufaraldurinn velti á hraðri við-
spyrnu ferðaþjónustunnar.
Af þeim ástæðum blasir við að það
hversu hratt verðmætasköpun
ferðaþjónustu fyrir samfélagið getur
vaxið veltur ákaflega á því hvernig
rekstrarumhverfi og samkeppnis-
hæfni ferðaþjónustu verður háttað á
endurreisnartímabilinu næstu fjög-
ur ár, en það er nákvæmlega það,
sem SAF horfa til með vegvísinum.
Árangursmælaborð
til að sjá hvernig miðar
Í tengslum við fyrrgreindan veg-
vísi hafa SAF birt sérstakt árang-
ursmælaborð sem sýnir ýmis mæl-
anleg markmið tengd viðspyrnunni
og framtíðarsýn ferðaþjónustunnar
um hvað þurfi að gerast fram til árs-
ins 2025 til þess að ná tilsettum
markmiðum.
Viðspyrnan helst í hendur við
framgang markmiða stefnuramma
um ferðaþjónustu til 2030, sem var
mótaður í samvinnu Samtaka ferða-
þjónustunnar og stjórnvalda haustið
2019. Aðalmarkmið stefnurammans
eru að íslensk ferðaþjónusta verði
„leiðandi í sjálfbærri þróun, hún sé
arðsöm og samkeppnishæf atvinnu-
grein sem starfi í sátt við land og
þjóð. Þá skuli stefnt að því að ferða-
þjónusta stuðli að bættum lífskjör-
um og hagsæld á Íslandi og að hún sé
þekkt fyrir sjálfbæra þróun, gæði og
einstaka upplifun.“
Þetta eru að sönnu metnaðarfull
markmið, en þegar litið er til þeirra
mælanlegu, tölulegu markmiða, sem
ferðaþjónustunni eru sett, má sjá að
þau eru vel raunhæf. Jafnvel hófsöm,
eins og sjá má af því að miðað er við
að 2025 verði neysla ferðamanna á
Íslandi loks meiri en 2019.
Í mælaborðinu er þó alls ekki að-
eins horft til hinna efnahagslegu
þátta, þó þeir séu að sönnu veiga-
miklir. Þar er einnig litið til afstöðu
og ánægju heimamanna, hvernig
ferðamönnum líði með upplifunina
hér á landi og eins til umhverfis-
þátta, enda skiptir miklu máli að sú
gullgæs laskist ekki í meðförunum.
Til mikils að vinna
Engum blöðum er um það að fletta
að viðspyrnan veltur mjög á ákvörð-
unum stjórnvalda um starfsumhverfi
ferðaþjónustu og það er ástæða
þessarar vinnu SAF í aðdraganda
kosninga. Ákvarðanir núverandi rík-
isstjórnar á næstu mánuðum og
fyrstu ákvarðanir nýrrar ríkisstjórn-
ar í haust munu skipta sköpum um
það hvort hraðri viðspyrnu og nauð-
synlegri verðmætasköpun verður
náð í ferðaþjónustu á næstu árum og
þar af leiðandi efnahagslífinu í heild.
Það varðar samfélagið allt, en í ný-
legri skýrslu KPMG um þróun
starfsumhverfis ferðaþjónustunnar
kemur fram að eftir því sem við-
spyrna ferðaþjónustu dregst á lang-
inn eykst samfélagslegur kostnaður.
Hröð viðspyrna ferðaþjónustunnar
er því ekki aðeins grundvöllur nauð-
synlegrar aukningar í verðmæta-
sköpun, til að vinna upp tap kórónu-
kreppunnar, heldur einnig
grundvöllur þess að komið verði í
veg fyrir enn frekari samfélagslegan
kostnað af völdum hennar. Þar er til
mikils að vinna og allt undir.
Ferðaþjónustan kynnir mælaborð
- Samtök ferðaþjónustunnar kynna Viðspyrnuna – vegvísi til 2025 - Sérstakt árangursmælaborð um
hvernig miðar - Háleit markmið en vel raunhæf - Eins konar kosningastefnuskrá ferðaþjónustunnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Heitt Eldgosið í Geldingadölum hefur verið ferðaþjónustunni mikil lyftistöng og svo gæti orðið næstu misseri og ár.
Rekstrarumhverfi fyrirtækja, þar sem horft er til bættrar sam-
keppnishæfni, minni sértækrar gjaldtöku, einföldunar regluverks og til-
litssemi Seðlabanka við útflutningsgreinar. Markaðssetning ferða-
þjónustu erlendis, m.a. til vetrarferðamennsku. Úrvinnsla
skuldavanda með frestun opinberra gjalda, Beinu brautinni og fjár-
festingarsjóði. Eftirlit með erlendri og ólöglegri starfsemi. Árangurs-
ríkari stjórnsýsla ferðamála með uppskiptingu atvinnuvegaráðu-
neytis og öflugri Ferðamálastofu. Gagnaöflun, úrvinnsla og
rannsóknir, hjá Hagstofu og víðar. Fágætis-, heilsu- og hvata-
ferðaþjónusta örvuð með markaðssetningu, endurgreiðslukerfi vsk.
og opnari vinnumarkaði. Efling atvinnutækifæra á landsbyggðinni
með hvötum og atvinnuþróun. Fræðsla og hæfni auki gæði og verð-
mætasköpun. Uppbygging áfangastaða með skipulegri og sam-
ræmdari hætti, þar sem ýtt er undir frumkvæði sveitarfélaga. Efling
innanlandsmarkaðar með framlengdri ferðagjöf, tryggari sam-
göngum og álagsdreifingu á vetrum.
Ellefu meginþættir viðspyrnu
VEGVÍSIR UM VIÐSPYRNU – VIDSPYRNAN.IS
arfsmannafatnaður
rir hótel og veitingahús
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | www.eddaehf.is
Hótelrúmföt kristin@run.is | Starfsmannafatnaður thorhildur@run.is
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Hótelstjórnandann
Hótelrúmföt
Sérhæfum okkur í sölu á rúmfatnaði
og öðru líni fyrir hótel
Ferðumst
innanlands
í sumar
Aðalsafnaðarfundur
Garðasóknar 2021
Aðalsafnaðarfundur Garðasóknar
verður haldinn í safnaðarheimili Vídalínskirkju,
fimmtudaginn 20. maí kl. 17.00
Á dagskrá eru venjuleg aðalsafnaðarfundarstörf.
Safnaðarmeðlimir eru hvattir til að sækja fundinn.
Farið verður eftir gildandi fjöldatakmörkunum vegna Covid-19
og því mega að hámarki 150 fullorðnir einstaklingar sitja
fundinn (börn fædd 2015 eða síðar eru undanskilin).
Fundarfólk er hvatt til að virða 2 metra nálægðartakmörkun
milli ótengdra aðila.
Sóknarnefnd Garðasóknar.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG PÍPARA?