Morgunblaðið - 13.05.2021, Side 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
ekki nógu góða veislu, sitja við hliðina á ein-
hverjum sem þú þekkir ekki eða vita ekki
hvaða fólk þetta er. Að hafa áhyggjur af því
að það sé ekki nægur matur og bara alls kon-
ar áhyggjur. Það er svo rosalega mikil eftir-
vænting sem þýðir að það getur orðið rosa-
lega mikið hrap líka. Það á að vera gaman og
þetta er eins og að segja brandara, hann á að
vera fyndinn og það er svo rosalega óþægi-
legt ef hann misheppnast,“ segir Saga kímin.
– Það er rosalega vont að halda partí sem
er ekki skemmtilegt.
„Já, ég er mjög smeyk oft við að halda upp
á afmælið mitt af því ég er svo hrædd um að
það verði ekki nógu skemmtilegt og enginn
muni mæta, að ég muni spila ömurlega tón-
list og þetta verði bara vandræðalegt.“
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Þegar við byrjuðum að semja verkið voru
veislur bara aðalmálið og sumir voru að fara í
þrjár veislur á dag og partí út um allan bæ.
Svo er það bara einhver veruleiki sem við
höfum ekki þekkt núna í að verða ár. Núna er
þetta meira orðið eins og upprifjun á því
hvað veisla er og við erum meira að hugsa
núna að okkur langi til að bæta fólki upp all-
ar veislurnar sem það missti af,“ segir Saga
Garðarsdóttir, leik- og fyndlistarkona með
meiru, sem hafði yfirumsjón með skrifum
handrits sýningarinnar Veisla sem loksins
verður frumsýnd á Stóra sviði Borgarleik-
hússins annað kvöld en átti upphaflega að
frumsýna á Litla sviðinu í mars í fyrra.
Aðrir höfundar handrits eru leikkonurnar
Sigrún Edda Björnsdóttir og Katla Margrét
Þorgeirsdóttir og leikararnir Sigurður Þór
Óskarsson og Halldór Gylfason. Þau leika öll
í verkinu auk Björns Stefánssonar en leik-
stjóri er Bergur Þór Ingólfsson.
„Þetta er náttúrlega algjör stuðsýning,“
segir Saga um Veislu en handritsvinnan
hófst í febrúar í fyrra. Frumsýningu hefur
verið frestað margoft vegna Covid-19 og seg-
ir Saga sýninguna nú farna að daðra við að
vera söngleikur. „Við vorum alltaf að bæta
við fleiri og fleiri lögum af því við höfðum svo
mikinn tíma,“ útskýrir hún.
– Er það kannski jákvæða hliðin á þessari
annars slæmu stöðu vegna farsóttarinnar, að
verkið hefur vaxið og dafnað?
„Já, algjörlega. Það er búið að vera mjög
óvanalegt að sitja á grínefni svona lengi.“
Margir með veislukvíða
– Ég sá kynningarmyndband fyrir Veislu
og fannst ég skynja þar ákveðna ádeilu á
íslenska veislumenningu.
„Já, við erum náttúrlega bara að gera grín
að okkur sjálfum og öllum þessum persónum
sem við þekkjum, fulla millistjórnandanum
og löngu ræðunni og því dæmi öllu.“
Veislur eru af ýmsu tagi og þeirra á meðal
fermingarveislur og ættarmót sem geta orðið
vandræðaleg, eins og spaugað er með í
myndbandinu fyrrnefnda. Saga segir að við
skrif handritsins hafi leikararnir í upphafi
velt fyrir sér hvað þeir tengdu við veislur.
„Það sem var einna áhugaverðast var að
mjög margir voru með einhvern veislukvíða,
kvíða yfir því að hafa ekkert að segja, halda
Eins og börn á jólum
Saga telur fólk almennt vilja að veisluhöld
gangi upp og veislan sé vel heppnuð. „Þetta
er það sama og við þekkjum hjá litlum börn-
um um jólin; það á að vera svo gaman og þess
vegna er mjög stutt í að fólk brotni saman,“
segir Saga. „Þú drekkur einu bolluglasi of
mikið og ert farinn að gráta inni í eldhúsi.“
– Er saga í verkinu?
„Nei, þetta er sketsasýning, byggð upp
eins og sketsaþáttur eins og til dæmis Ára-
mótaskaupið en þemað er veisla. Þetta eru
lítil atriði sem snúast um veislumenningu Ís-
lendinga,“ svarar Saga.
Berndsen og Þórður Gunnar Þorvaldsson
eru meðal þeirra sem sömdu tónlist við sýn-
inguna og segir Saga að uppleggið hafi verið
að búa til algjöra partítónlist. „Svo bættust
mánuðirnir við og við fengum fleiri hug-
myndir þannig að nú myndi ég segja að þetta
væru mjög fjölbreytt lög, allt frá kórlögum
sem við hópurinn sömdum reyndar fyrir kór-
partí og svo erum við líka með diskó, sexí lag,
Disney-lag og það bara hlóðst ofan á þetta,“
segir Saga.
Hún segist að lokum mjög spennt fyrir því
að fá loksins að sýna leikhúsgestum Veislu
en um leið stressuð. „Við erum búin að eiga
sjö skrifaða frumsýningardaga sem hefur öll-
um verið frestað þannig að ég eiginlega þori
ekki að trúa því að þetta sé að fara að ger-
ast!“ segir Saga og hlær við. Best að krossa
fingur.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
„Það á að vera gaman“
- Veisla loksins frumsýnd í Borgarleikhúsinu, rúmu ári eftir að upphaflega átti að frumsýna hana
- „Það er búið að vera mjög óvanalegt að sitja á grínefni svona lengi,“ segir Saga Garðarsdóttir
Stuð? Úr Veislu sem
frumsýnd verður á morg-
un í Borgarleikhúsinu.
Bresku Brit-tónlistarverðlaunin
voru afhent í London í fyrrakvöld
og voru konur áberandi meðal
verðlaunahafa, ólíkt hinum karl-
lægu verðlaunum árið 2020. Dua
Lipa fór þar fremst í flokki og hlaut
verðlaun fyrir bestu plötuna (Fut-
ure Nostalgia) og verðlaun sem
besta tónlistarkonan.
Verðlaun sem besta hljómsveitin
hlaut kvennasveitin Little Mix og er
það í fyrsta sinn í sögu verðlaun-
anna sem hljómsveit eingöngu skip-
uð konum hlýtur þau verðlaun. Í
þakkarræðu sagði ein kvennanna,
Leigh-Anne Pinnock, að það væri
erfitt að vera kona í popptónlist í
heimalandi sínu þar sem karlmenn
réðu ríkjum og mikill skortur væri
á fjölbreytni og jafnrétti kynjanna.
Besta alþjóðlega hljómsveitin var
einnig kvennasveit, tríóið Haim frá
Los Angeles, og Billie Eilish hlaut
verðlaun sem besta alþjóðlega tón-
listarkonan. Poppsöngkonan Griff
hlaut verðlaun sem rísandi stjarna
og Taylor Swift heimsstjörnuverð-
launin. Arlo Parks hlaut svo verð-
laun fyrir að hafa slegið í gegn (e.
breakthrough artist) en hún kemur
fram á Iceland Airwaves í nóv-
ember. Besti tónlistarmaður í
karlaflokki varð J Hus og Weeknd í
flokki karla á alþjóðavísu
Best Dua Lipa fékk Brit-verðlaun fyrir
bestu plötuna, Future Nostalgia.
Konur sigursælar á Brit-verðlaunahátíð
Tónleikar verða haldnir í Hann-
esarholti í dag kl. 15.30 þar sem
flutt verða verk eftir Snorra Sigfús
Birgisson. Laufey Sigurðardóttir
leikur á fiðlu og Snorri sjálfur
ápíanó. Fyrsta verkið á efnisskránni
er Svíta fyrir einleiksfiðlu sem hann
samdi á síðasta ári að beiðni Lauf-
eyjar og er verkið tileinkað henni,
að því er fram kemur í tilkynningu.
Verkið er í fjórum köflum og verður
frumflutt á tónleikunum. Auk svít-
unnar munu Laufey og Snorri leika
tvær þjóðlagaútsetningar fyrir fiðlu
og píanó. Tónleikarnir verða um 45
mínútur að lengd og aðgangseyrir
er 1.000 kr.
Tvíeyki Snorri Sigfús og Laufey.
Verk eftir Snorra leikin í Hannesarholti
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
NÝR LITUR
Arctic White