Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Listar Framsóknar fyrir komandi al-
þingiskosningar í Reykjavíkur-
kjördæmunum voru kynntir í gær-
kvöldi.
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, mun sem
fyrr leiða lista flokksins í Reykjavík-
urkjördæmi suður. Ásmundur Einar
Daðason, félags- og barnamála-
ráðherra, mun leiða lista flokksins í
Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann
leiddi áður lista flokksins í Norð-
vesturkjördæmi en tilkynnti í vetur
að hann hygðist færa sig um set og
sækjast eftir að leiða lista í Reykja-
vík.
Í síðustu nokkrum alþingiskosn-
ingum hafa Reykjavíkurkjördæmin
ekki verið sterkt vígi fyrir Framsókn
og þótti ákvörðun Ásmundar djörf.
Í öðru sæti á eftir Ásmundi er
Brynja Dan, 35 ára frumkvöðull og
framkvæmdastjóri, ásamt því að telj-
ast til áhrifavalda. Er Brynja með
rúmlega sextán þúsund fylgjendur á
samfélagsmiðlinum Instagram.
Í öðru sæti á listanum í Reykjavík
suður er Aðalsteinn Haukur Sverr-
isson, framkvæmdastjóri og formað-
ur Framsóknarfélags Reykjavíkur.
Sigrún Elsa Smáradóttir, fyrrver-
andi borgarfulltrúi fyrir Reykjavík-
urlistann, er í þriðja sæti í Reykja-
vík suður og er Ólafur Hrafn
Steinarsson, formaður Rafíþrótta-
sambands Íslands, í áttunda sæti
sama kjördæmis.
Önnur kunnugleg nöfn á listum
Framsóknar eru Þórunn Svein-
björnsdóttir, fráfarandi formaður
Landssambands eldri borgara, í
þriðja sæti nyrðra og Helena Ólafs-
dóttir, knattspyrnuþjálfari og þátta-
stjórnandi, í því tíunda syðra.
Í heiðurssætum listanna eru Sig-
rún Magnúsdóttir, fyrrverandi ráð-
herra og borgarfulltrúi, og Jón Sig-
urðsson, fyrrverandi formaður
Framsóknar.
Ráðherrar leiða
- Listar Framsóknarflokks í Reykja-
víkurkjördæmunum kynntir í gær
Ásmundur Einar
Daðason
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
2
0
0
0
—
2
0
2
0
Eldhúsinnréttingar
Tímabundin opnunartími
vegna Covid–19
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Bátasmiðjan Rafnar ehf. hefur sam-
ið um smíði báta eftir hönnun Öss-
urar Kristinssonar, ÖK Hull, í
Bandaríkjunum, Hollandi og Tyrk-
landi. Nú þegar eru Rafnar-bátar
smíðaðir í Grikklandi og Englandi
auk Íslands.
Rafnar skrifaði nýlega undir
samninga við tyrkneska fyrirtækið
Aquamarine um framleiðslu, mark-
aðssetningu og sölu Rafnar-báta fyr-
ir almennan markað. Aquamarine er
í Izmir í Tyrklandi og hefst smíði
fyrsta Rafnar 1100-bátsins á næstu
vikum. Í bátasmiðjunni munu starfa
27 manns til að byrja með. Stefnt er
að því að þeim fjölgi eftir því sem
framleiðslan eykst.
Daníel Freyr Hjartarson, verk-
fræðingur og framkvæmdastjóri
þróunar hjá Rafnar Maritime, segir
að verið sé að stilla upp tækjum og
búnaði í 6.000 fermetra bátasmiðju í
Izmir sem mun smíða Rafnar-báta.
Búið er að senda smíðamót til Tyrk-
lands sem bátarnir eru steyptir í. Ís-
lenskir starfsmenn Rafnar fara út til
Tyrklands á næstunni til að fylgjast
með gangsetningu framleiðslunnar.
Daníel Freyr segir þetta mjög
spennandi verkefni enda opni það
tengingar inn á gríðarstórt markaðs-
svæði.
Lystibátar í Hollandi
Rafnar samdi í síðustu viku við
hollenska fyrirtækið Xtenders um
smíði á bátum fyrir lúxuseinkabáta-
markaðinn. Xtenders sérhæfir sig í
smíði léttabáta fyrir stórar lysti-
snekkjur. Hingað til hafa þeir smíð-
að báta frá 5,2 metra löngum upp í 16
metra langa. Að jafnaði eru um 15
bátar í smíðum í einu.
Gerben Boomsma, framkvæmda-
stjóri Xtenders, lýsti ánægju sinni
með samstarfssamninginn við Rafn-
ar, samkvæmt tilkynningu frá Rafn-
ar ehf. Hann sagði samninginn gera
þeim kleift að hefja framleiðslu og
sölu Rafnar-báta og að byggja Rafn-
ar-vörumerkið upp á þeirra mark-
aðssvæði fyrir lystisnekkjur. Hann
sagði að þeir hjá Xtenders hlökkuðu
til samstarfsins við Rafnar og litu
björtum augum til framtíðarinnar.
Byrjun í Bandaríkjunum
Smíði á fyrsta Rafnar 1500-bátn-
um, sem er 15 metra langur, er að
hefjast í Bandaríkjunum í samvinnu
við Failead-bátasmiðjuna. Bátur af
þeirri gerð kostar á bilinu 300 til 350
milljónir króna eftir því hvernig
hann er útbúinn. Bandarískir hönn-
uðir hafa verið ráðnir til að vinna
með Rafnar og Fairlead við útfærslu
og útbúnað bátsins og ísetningu véla
og tækja. Viðskiptavinir Fairlead
eru einkum opinberar stofnanir sem
sinna eftirliti, löggæslu og landhelg-
isgæslu.
Ljósmynd/Rafnar ehf.
Rafnar 1100 Pro 2 Össur Kristinsson hannaði skrokklag Rafnar-bátanna, ÖK Hull, sem gefur þeim einstaka
sjóhæfni og gerir bátana sparneytnari en aðra báta. Bátarnir eru smíðaðir í nokkrum stærðum og gerðum.
Rafnar-bátar eru nú
smíðaðir í sex löndum
- Framleiðsla hefst í Tyrklandi, Hollandi og Bandaríkjunum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra og Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra skipa efstu
sætin á framboðslistum Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
í Reykjavíkurkjördæmunum í þing-
kosningunum í haust.
Niðurstöður forvals VG í Reykja-
vík lágu fyrir í gær en valið var í
fjögur efstu sæti á framboðslist-
unum.
Katrín fékk 784 atkvæði í 1. sæti
og Svandís 714 atkvæði í 1. sæti.
Steinunn Þóra Árnadóttir fékk 487
atkvæði í 1.-2. sæti, Orri Páll Jó-
hannsson 459 atkvæði í 1.-2. sæti,
Eva Dögg Davíðsdóttir 529 atkvæði
í 1.-3. sæti, Daníel E. Arnarson 516
atkvæði í 1.-3. sæti, Brynhildur
Björnsdóttir 693 atkvæði í 1.-4. sæti
og René Biasone 545 atkvæði í 1.-4.
sæti.
Katrín og Svandís í efstu
sætum í forvali í Reykjavík
Katrín
Jakobsdóttir
Svandís
Svavarsdóttir
Tvö kórónuveirusmit greindust
innanlands í fyrradag og voru báð-
ir hinna smituðu utan sóttkvíar. Að
sögn Þórólfs Guðnasonar sótt-
varnalæknis höfðu þeir fundið fyrir
einkennum tveimur til þremur dög-
um áður en þeir greindust en mætt
til vinnu fyrir því. Voru allir starfs-
menn fyrirtækisins því skimaðir.
Síðar um daginn staðfesti versl-
unarkeðjan H&M að smit hefði
komið upp í verslun hennar á
Hafnartorgi í Reykjavík. Við-
skiptavinir höfðu þá veitt því at-
hygli að versluninni var lokað fyrri
hluta dags.
Bólusetningar þvert á aldurs-
hópa munu að öllum líkindum hefj-
ast á höfuðborgarsvæðinu í næstu
viku, að sögn sóttvarnalæknis, og
mun fólk 16 ára og eldra þá fá boð
í bólusetningu af handahófi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
H&M Verslunin staðfesti að smit hefði komið upp á Hafnartorgi.
Tveir greindust
utan sóttkvíar
- Smit á meðal starfsmanna H&M