Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 + + + = 19.990 kr. A L LT ÓTA K M A R K A Ð Fjölskyldupakkinn: Rúmur helmingur starfsmanna Landspítalans, eða 56,8%, var í hlutastarfi við spítalann á seinasta ári en hlutastörfin ná frá 10% og upp í 99% starfshlutfall. Hlutfall hluta- starfsmanna hefur verið svipað sein- ustu árin en alls störfuðu 6.390 starfsmenn á Landspítalanum í 4.378 stöðugildum á árinu 2020. Þetta kemur fram í svari Svandís- ar Svavarsdóttur heilbrigðisráð- herra við fyrirspurn Óla Björns Kárasonar alþingismanns um rekst- ur Landspítalans 2010-2020. Fram kemur að heildarframlög ríkisins til Landspítalans á fjárlög- um voru 16 milljörðum kr. hærri á seinasta ári en á árinu 2010 reiknað á föstu verðlagi. Framlögin voru 75.749 milljónir kr. á síðasta ári og höfðu þá hækkað um 2% á milli ára. Reiknað á föstu verðlagi voru fram- lögin um 59,7 milljarðar á árinu 2010. Einnig óskaði þingmaðurinn m.a. upplýsinga um hversu stór hluti starfsmanna spítalans sem eru í fullu starfi fengi einnig launagreiðslur frá öðrum opinberum stofnunum sem fjármagnaðar voru af ríkinu. Í svarinu kemur fram að nær fjórð- ungur starfsmanna Landspítalans í fullu starfi fékk einnig greiðslur frá öðrum opinberum stofnunum á um- liðnum áratug. Hlutfall þeirra var 23,5% í fyrra og 24,6% á árinu 2019. Þessi hópur starfsmanna fékk tæp- lega 303 milljónir kr. samtals í laun hjá öðrum stofnunum en Landspít- alanum í fyrra og var hlutfall þeirra launagreiðslna 4,9% af þeim launum sem þeir fengu á spítalanum. Hlutfall launagjalda af rekstrar- kostnaði Landspítalans var 73,3% í fyrra, 73,7% árið 2015 og 70,9% árið 2010. Frá 2008 hefur starfsmönnum fjölgað um 20% og stöðugildum um 14%. Frá 2010 hefur launakostnaður hækkað umtalsvert reiknað á föstu verðlagi. Hann var rúmir 49 millj- arðar á núvirði 2010 en ríflega 61,5 milljarðar í fyrra. Bent er á í svarinu að árið 2010 sé ekki raunsætt við- miðunarár því þá voru fjárveitingar til spítalans lækkaðar umtalsvert í kjölfar efnahagshrunsins og stöðu- gildum fækkað. Á þessu tímabili hafi einnig mannfjöldinn vaxið, eldri ald- urshópar stækkað auk þess sem spítalinn hafi tekið við fjölmörgum nýjum verkefnum. omfr@mbl.is 56,7% í hlutastarfi á Landspítala - Heildarframlög til spítalans í fyrra voru 16 milljörðum hærri en árið 2010 Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn Launakostnaðurinn var um 61,5 milljarðar á seinasta ári. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikill hugur er í nýjum eigendum trjáplöntustöðvarinnar Kvista í Reykholti í Bláskógabyggð. Þeir hafa pantað nýtt gróðurhús sem ger- ir þeim kleift að rækta tvöfalt fleiri trjáplöntur. Ein af stærri trjáplöntustöðvum landsins, Kvistar í Reykholti, var til sölu í nokkurn tíma. Hólmfríður Geirsdóttir og Steinar Ástráður Jen- sen hafa verið að draga saman seglin og vildu hætta í ræktun á trjáplöntun sem þau hafa stundað í tuttugu ár. Þau einbeita sér nú að ræktun jarð- arberja í annarri stöð sem þau eiga. „Við skógarbændur höfum verið að líta í kringum okkur eftir mögu- leikum til að koma á úrvinnslu á trjá- viði. Það hefur ekki gengið eftir, enn sem komið er. Við sjáum hins vegar tækifæri til að hér megi koma upp slíkri vinnslu, samhliða rekstri trjá- plöntuframleiðslunnar,“ segir María E. Ingvadóttir, fyrrverandi formað- ur Félags skógareigenda á Suður- landi, en hún er formaður stjórnar Kvistabæjar sem er nýtt nafn stöðv- arinnar. Mátti ekki hætta María segir að þetta sé mikil fjár- festing og þótt skógarbændur kunni að rækta skóg hafi þurft annað fólk til að annast uppeldið. Þau hafi því byrjað á því að ráða ræktunarstjóra, Aldísi Björk Sigurðardóttur. Hún komi úr fjölskyldu skógarbænda og hafi þau komið með þeim í verkefnið. Einnig er Hólmfríður Geirsdóttir hluthafi í félaginu og leiðbeinir nýj- um eigendum og starfsfólki. Eig- endur eru átta einstaklingar sem all- ir tengjast skógrækt með ein- hverjum hætti. Þeir stofnuðu nýtt félag um kaupin. Áform eru um stóraukna skóg- rækt í landinu á vegum ríkisins, áhugafélaga og almennings. Ástæð- an er ekki síst sú að skógrækt er góð leið til að binda kolefni og með því er hægt að taka þátt í að fullnægja skuldbindingum Íslands í loftslags- málum. „Við treystum orðum ríkisstjórn- arinnar og verðum einnig vör við áhuga frá fyrirtækjum sem vilja kol- efnisjafna starfsemi sína. Kvistabær er önnur stærsta trjáplöntustöð landsins og ef henni hefði verið lokað eða tekin undir aðra starfsemi hefði komið upp alvarleg staða. Við sáum að það gekk ekki,“ segir María. Nýja félagið er að taka fyrstu skrefin. Farið er að sjást í pínulítil tré í gróðurhúsunum og verið er að þjálfa starfsfólk. Framleiðslan tvöfaldast Næsta skref er að stækka stöðina. Pantað hefur verið nýtt 1.800 fer- metra gróðurhús og við það tvöfald- ast framleiðslugetan. Tvær upp- skerur eru á ári og segir Hólmfríður að hægt verði að framleiða 2,5 til 3 milljónir plantna á ári. Kvistabær einbeitir sér að vinsæl- ustu trjátegundunum sem eru birki, sitkagreni, stafafura og alaskaösp. Eigendur stöðvarinnar hafa áhuga á að auka fjölbreytnina og bjóða upp á fleiri tegundir sem reynst hafa vel á Suðurlandi. Það verður vonandi hægt með auknu plássi. „Tré verður ekki til á einum mán- uði, það er nýtt líf sem þroskast með hverjum degi sem líður og er ekki hægt setja upp í hillu til geymslu,“ segir Aldís og bendir á að það taki ár að rækta skógarplöntu. Hún og Hólmfríður mæla með að ræktendur geri áætlanir nokkur ár fram í tím- ann og semji um afhendingu ákveð- ins magns á hverju ári. Annars geti þeir ekki gengið að plöntunum vís- um. Aldís tekur fram að ekki verði smásala í Kvistabæ næstu misserin heldur verði miðað við sölu sam- kvæmt föstum samningum. Tré verður ekki til á mánuði - Áhugafólk um skógrækt kaupir stóra trjáplöntustöð í Reykholti í Bláskógabyggð og eflir starfið - Framleiðslan verður tvöfölduð og fjölbreytni aukin - Liður í að mæta auknum áhuga á skógrækt María E. Ingvadóttir er við- skiptafræðingur og skógar- bóndi á Akurbrekku, skógrækt- arbýli á Rangárvöllum. Hún var þekkt sem formaður Hvatar, fé- lags sjálfstæðiskvenna í Reykja- vík á sínum tíma og varaþing- maður fyrir flokkinn, auk þess sem hún gegndi ýmsum störf- um í atvinnulífinu. Áhuginn á skógrækt kviknaði á miðjum aldri, eins og hjá mörgum. Í hennar tilviki eftir starf sem viðskiptafulltrúi í sendiráði Íslands í Moskvu. Mik- il mengun var í borginni og ekki mikið hugsað þar um náttúru- vernd. „Ég áttaði mig á hvað skiptir mestu máli; að græða landið og fegra með skógi.“ Úr félagsmál- um í skógrækt SKÓGARBÓNDI Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Kvistabær Stjórnendur í aspauppeldi, Aldís Björk Sigurðardóttir, Hólmfríður Geirsdóttir og María E. Ingvadóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.