Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 51
frumort ljóð og bænir frá náms- og
starfstíma sem guðfræðingur og
prestur.
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar er Ragnheiður
Kristín Hall f. 18.8. 1955, skrif-
stofumaður og fv. læknaritari, starf-
aði á skrifstofu SVN í Neskaupstað
þar til síðla árs 2020. Þau hafa búið í
Neðstaleiti í Reykjavík frá hausti
2020. Foreldrar Ragnheiðar voru
hjónin Árni Þórir Hall, f. 19.3. 1922, d.
21.1. 1981, verslunarmaður, og Katrín
Lárusdóttir Hall f. Hjaltested, f. 21.5.
1920, d. 22.11. 2008, ljósmóðir.
Börn Sigurðar og Ragnheiðar: 1)
Ragnar Árni, lögfræðingur í Seðla-
banka Íslands, f. 30.4. 1980. Maki:
Hrafnhildur Ýr Bernharðsdóttir
Scudder, f. 6.7. 1983, sérfræðingur í
Seðlabanka Íslands. Börn þeirra eru
Valur Kári Eiðsson, (stjúpsonur
Ragnars), f. 15.5. 2007, Jóhanna
Katrín, f. 1.2. 2015, og Ingveldur
Katla, f. 9.3. 2021; 2) Þóra Kristín
hárgreiðslukona og mag. juris, f. 18.4.
1988. Maki: Davíð Gunnarsson, f.
28.7. 1982, prentsmiður. Barn þeirra
er óskírður Davíðsson, f. 18.4. 2021; 3)
Katrín Halldóra, leik- og söngkona, f.
4.7. 1989. Maki: Hallgrímur Jón Hall-
grímsson, f. 20.6. 1976, garðyrkju-
fræðingur og tónlistarmaður. Sonur
þeirra er Stígur, f. 5.7. 2020, og stjúp-
sonur Katrínar Halldóru er Óðinn Ív-
ar Hallgrímsson, f. 24.7. 1998.
Systur Sigurðar: Sigurborg, f. 5.11.
1956, Kristrún f. 9.2 .1959, og Jó-
hanna Kristín, f. 3.2. 1961, d. 11.4.
2008.
Foreldrar Sigurðar Rúnars voru
hjónin Ragnar Ágúst Sigurðsson, f.
30.1. 1930, d. 29.4. 1988, loftskeyta-
maður, hafnarstjóri og sparisjóðs-
stjóri í Neskaupstað, og Kristín Sess-
elja Antonsdóttir Lundberg, f. 31.1.
1930, d. 14.3. 2017, talsímakona og
síðar bankastarfsmaður hjá Spari-
sjóði Norðfjarðar.
Sigurður Rúnar
Ragnarsson
Jóhanna Sigríður Stefánsdóttir
húsfreyja í Sandvík í Norðfjarðarhr.
Eyjólfur Eyjólfsson
bóndi í Sandvík
Sigurborg Eyjólfsdóttir
húsfreyja í Neskaupstað
Anton Lundberg Waage
verkstjóri í Neskaupstað
Kristín Sesselja Lundberg
talsímakona og
bankastarfsmaður hjá
Sparisjóði Norðfjarðar
Hjörtfríður Kristín
Haraldsdóttir
húsfreyja í Stóra-
Laugardal í Tálknafirði
Óli HansenWaage
sjómaður frá Noregi
Jóhanna Petrína Jóhannsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Helgi Flóventsson
sjómaður á Húsavík
Kristrún Helgadóttir
húsfreyja í Neskaupstað
Björgvin Sigurður Hinriksson
útgerðarmaður í Neskaupstað
Jóhanna Ingibjörg Björnsdóttir
húsfreyja á Tröllanesi
Hinrik Þorsteinsson
útvegsbóndi á Tröllanesi í Norðfirði
Úr frændgarði Sigurðar Rúnars Ragnarssonar
Ragnar Ágúst Sigurðsson
hafnarstjóri og sparisjóðsstjóri
í Neskaupstað
DÆGRADVÖL 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Spil í úrvali
Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is
Snakes
and ladders
BINGO
WHAT AM I ?
POOP
HOOP Game
Tuble O Game
21x31 cm
MAGIC SET
Yfir 150 töfrabrögð
Ísbrjótur Ice Pick
Wooden
Tumbling
Tower
SEA BATTLE
Fiskaspilið
TANGLER GAME
Spil - ZAPPER
Ekki fá stuð
Körfuboltagrind
125x68x35cm
2 boltar+pumpa
LUDO
„HANN ER EKKI VIÐ. GET ÉG TEKIÐ
SKILABOÐ?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að játa ást sína aftur
og aftur.
ÉG ER TÖFRAANDI. ÉG MUN
VEITA ÞÉR ÞRJÁRÓSKIR
ÓKEI, NÍU
EFTIR!
VERÐI SVO!
KRAKKINN
ER KLÁR
ÞÚ ERT BÚINN AÐ FÁ KIRSUBERJABÖKU Í
EFTIRRÉTT ÞRJÁ DAGA Í RÖÐ! VILTU
EKKI BREYTA TIL?
JÚ!
ÉG VIL FÁ HANA
FJÓRA DAGA Í RÖÐ!
ÉG HÉLT ÞAÐ!
HUNDA-
ÞJÁLFUN
„ÉG ER LÍKA MEÐ GOTT ÚRVAL FYRIR
ÖRVHENTA.“
ÉGÓSKA ÞESS AÐ ÞÚ SÉRT
LÉLEGUR Í STÆRÐFRÆÐI
Á laugardag orti Anna DóraGunnarsdóttir á Boðnarmiði:
Við biðjum öll um birtu og yl
og bíðum eftir því
að sólin gróðri geri skil
og græði allt á ný.
Hallmundur Guðmundsson sagði
á þriðjudag „áfram blánar hold“ og
kvað:
Heldur þjáður hrolli ég,
horfi út í bláinn.
Sækir enn um sama veg,
- segir veðurspáin.
Hallmundur Kristinsson segir að
ákveðið tilefni sé ekki gefið upp
fyrir þessari vísu, en það hljóti að
vera hægt að finna eitthvert:
Oft var til útlanda sendinefnd send.
Sífellt fjölgaði ræðunum.
En helvíti finnst mér nú handahófs-
kennd
hnattræn skipting á gæðunum.
Á föstudag mátti lesa á forsíðu
Fréttablaðsins: „Geta lengt líf of
feitra Íslendinga um sex þúsund ár
með offituaðgerðum“. Sigurlín
Hermannsdóttir orti:
Ef losnum við leiðinda spikið
þá lengjast kann ævin svo mikið
en sannleikur hrár
er að sex þúsund ár
finnst mér nú fara yfir strikið.
„Mótbyr vex,“ sagði Ármann
Þorgrímsson á sunnudag:
Andófinu illa veld
ellisár og móður
áralagi ekki held
er að þyngjast róður.
Og á laugardag tók Hallmundur
Guðmundsson úr vísnabingnum sín-
um:
Áðan þá greyið hann Grjóni
gekkst við stórfelldu tjóni,
þegar Dómhildur datt
svo dæmalaust bratt,
í það með Óla Jóni.
Jóhanna Álfheiður Steingríms-
dóttir orti „Að kveldi“:
Í hringiðu og hraða glaums
hrævareldar skína,
nú á land hins ljósa draums
legg ég byrði mína.
Ég get ekki stillt mig um að setja
hér stökur eftir Steingrím Bald-
vinsson í Nesi, föður Jóhönnu:
Allt, sem þjóðin átti og naut,
allt sem hana dreymir,
allt, sem hún þráði og aldrei hlaut,
alþýðustakan geymir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ræðunum fjölgar og
greyið hann Grjóni