Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Íslendingur sem er búsettur erlend- is fór á fjarnámskeið í siglinga- fræðum við Tækniskólann og aflaði sér skemmtibátaréttinda. Að nám- skeiðinu loknu fékk hann alþjóðlegt skírteini á íslensku, ensku og frönsku fyrir stjórnendur skemmti- báta í samræmi við 40. ICC-ályktun Starfshóps efnahagsnefndar Sam- einuðu þjóðanna fyrir Evrópu (UNECE) um flutning á skipgeng- um vatnaleiðum. Ísland ekki staðfest ályktunina Maðurinn sá svo athugasemd á síðu um siglingar um að svo virtist sem Ísland hefði ekki staðfest eða innleitt umrædda ályktun. Hann kannaði það og sá að Ísland er ekki nefnt á heimasíðu UNECE þar sem talin eru upp lönd sem hafa sam- þykkt innleiðingu 40. ályktunarinnar eða eru að vinna að því. Hjá mann- inum vöknuðu efasemdir um gildi al- þjóðlega skemmtibátaskírteinisins frá Samgöngustofu. Hann taldi einn- ig að námskrá námskeiðsins sem hann sat hafi ekki uppfyllt kröfur Samgöngustofu né heldur kröfur sem gerðar eru í Viðauka 1 við ICC- ályktun 40. Morgunblaðið sendi Samgöngu- stofu spurningar um málið, m.a. hvort stofnunin gefi út alþjóðleg skemmtibátaskírteini án þess að þau hafi stoð í umræddri ályktun. Þá var Samgöngustofa spurð hvort vitað væri um íslenska handhafa slíks skírteinis sem höfðu lent í vandræð- um erlendis. Svohljóðandi svar kom frá Samgöngustofu í gær: Réttindi í útgáfulandinu „Skemmtibátaskírteini, eins og það sem útgefið er af Samgöngu- stofu, veitir handhafa þess heimild til að gegna stöðu skipstjóra á skemmtibátum sem skráðir eru í því ríki sem gefur skírteinið út. Heimild til þess að gegna stöðu skipstjóra á skemmtibátum sem ekki eru á skrá þess ríkis sem gefur skírteinið út, er ætíð háð samþykki stjórnvalds í því ríki þar sem því er framvísað. Ísland hefur ekki gerst formlegur aðili að ályktun UNECE ICC nr. 40 en þær kröfur sem gerðar eru til að fá útgef- ið skemmtibátaskírteini frá Sam- göngustofu samkvæmt íslenskum lögum taka mið af kröfum hennar. Að mati Samgöngustofu eru kröf- urnar þannig sambærilegar og gerð- ar væru ef Ísland væri aðili að álykt- uninni. Véfengt í einu tilviki Íslendingar hafa framvísað ís- lenskum skemmtibátaskírteinum hjá bátaleigum í hinum ýmsu Evr- ópuríkjum allt frá 2008 þegar fyrstu skírteinin voru gefin út. Aðeins er vitað um eitt tilfelli þar sem stjórn- völd annars ríkis hafi með beinum hætti gert athugasemd við íslensk skemmtibátaskírteini. Það mál var leyst með staðfestingu frá Sam- göngustofu um að handhafar ís- lenskra skemmtibátaskírteina hafi uppfyllt sambærilegar kröfur og þær sem gerðar eru til að fá útgefið ICC skírteini. Í ljósi þess að íslensk skemmtibátaskírteini hafa verið tek- in gild hefur aðild Íslands að ályktun 40 ekki verið í sérstökum forgangi. Þess má geta að allnokkur Evr- ópuríki hafa ekki gerst aðilar að ályktuninni, en sem dæmi má nefna Danmörku og Svíþjóð. Nám í samræmi við kröfur Varðandi innihald náms hefur Samgöngustofa yfirfarið námskrá og þær kröfur sem gerðar til skemmtibátanáms á Íslandi til sam- anburðar við kröfur ályktunar nr. 40. Niðurstaðan er sú að Samgöngu- stofa telur inntak náms til skemmti- bátaréttinda í samræmi við kröfur ályktunarinnar.“ Alþjóðlegt skírteini með takmarkað gildi - Ísland er ekki aðili að ályktun um skemmtibátaskírteini Morgunblaðið/Sigurður Bogi Smábátar Íslensk skemmtibátaskírteini hafa yfirleitt verið tekin gild erlendis, þótt Ísland sé ekki formlegur aðili að ályktun 40. Garðabær hefur fengið leyfi Um- hverfisstofnunar til að leggja göngustíg um Garðahraun (efra), en Garðahraun, Vífilsstaðahraun og Maríuhellar eru friðlýst sem fólkvangur. Leyfið er veitt með skilyrðum, meðal annars skal forð- ast óþarfa rask og stærð framkvæmdasvæðis skal haldið í lágmarki. Ráðgert er að koma fyr- ir áningarstað við stíginn. Nýi stígurinn á að liggja frá nú- verandi stíg milli Molduhrauns og Flata að Bæjargarði við Garðfit, sunnan við íþróttasvæðið í Ás- garði, og tengist núverandi stígum í hrauninu. Á næstunni stendur til að fara í útboð vegna gerðar stígs- ins og þá kemur í ljós hver kostn- aður verður. Síðar í ár hefjast framkvæmdir; stígurinn verður lagður og ljósastaurar settir niður. Á næsta ári er gert ráð fyrir að stígurinn verði malbikaður, skv. upplýsingum frá Garðabæ. Stígstæðið verður fjögurra metra breitt, stígurinn þriggja metra breiður og beggja vegna við hann verður 50 sentimetra öxl. Miðað er við að hann verði sem næst núverandi landhæð og jarð- rask tengt framkvæmdinni tak- markast við stígstæðið eftir því sem við verður komið. Við fram- kvæmdirnar verður burðarhæft efni úr stígstæðinu nýtt í gerð stígsins og fláa. Það efni sem ekki nýtist verður flutt af svæðinu. Mosanum haldið til haga Mosi verður fjarlægður úr stíg- stæðinu áður en framkvæmdir hefjast og haldið til haga. Að fram- kvæmdum loknum verður honum dreift yfir fláafleyga og skeringar. Steinar og hraunmolar úr stíg- stæðinu verða einnig settir til hlið- ar og dreift yfir fláa. aij@mbl.is Fyrirhugaðir stígar í Garðahrauni í Garðabæ Lo ft m yn d ir eh f.Nýir útivistarstígar Núverandi stígar Áningarstaður Ásgarður M O L D U - H R A U N G a r ð a h r a u n F L A T I R GARÐABÆR HAFNARFJÖRÐUR Ha fna rfja rða rve gu r Nýr göngustígur um Garðahraun Ráðherra skal leggja fram frum- varp um að svokallaðar ástands- skýrslur fylgi öllum seldum fast- eignum. Alþingi samþykkti þingsályktun Pírata þessa efnis í vikunni. Samkvæmt ályktuninni eiga skýrslurnar að innihalda greinar- góðar upplýsingar um ástand fast- eignarinnar og verða unnar af óháðu matsfólki með víðtæka þekk- ingu á mannvirkjagerð. Fram- kvæmd matsins og innihald ástandsskýrslna á einnig að verða samræmt, til að stuðla betur að áreiðanleika, trausti og sátt í fast- eignaviðskiptum. Ályktunin felur jafnframt í sér skýrar reglur um ábyrgð vegna galla sem ekki koma fram í ástandsskýrslum. Vilja frumvarp um ástandsskýrslur N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið Raðaðu saman þínum skáp Framleitt í eik nat, hvítaðri eik og svertuð eik Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is GRAND CRU TAKE MATARSTELL Ný viðbót úr Grand Cru línunni Hannað með utandyra notkun í huga Efni: Melamín Litur: Dökkgrár Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2020 komu í hlut Böðvars Guðmundssonar, rithöfundar, ljóðskálds, leikskálds og fv. kennara. Böðvari voru veitt verðlaun- in fyrir framlag sitt til að stuðla að blómlegri menning- ar- og félagsstarfsemi í Jónshúsi, en í september 2020 var hálf öld liðin frá því Jónshús varð miðstöð félags- og menningarstarfsemi Íslendinga í Kaupmannahöfn. Á vef Alþingis segir að Böðvar hafi lagt ríkulegan skerf af mörkum til félags- og menningarlífs Íslendinga í Kaupmannahöfn um langt árabil. Böðvar Guðmundsson Böðvar fékk verðlaun Jóns Sigurðssonar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.