Morgunblaðið - 20.05.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: 11-18 virka daga
og 11-15 laugardaga
www.spennandi-fashion.is
LURDES BERGADA FRÁ BARCELONA
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Flott sumarföt, fyrir flottar konur
Skipholti 29b • S. 551 4422
TRAUST
Í 80 ÁR
Léttar
yfir-
hafnir
fyrir vorið
og sumarið
Skoðið
laxdal.is
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
KVARTBUXUR
Str. 36-52
Fleiri litir
6.900,- stk.
SUMARFERÐIR
Suðurland og Skaftafellssýslur
21.–23. júlí og 4.–6. ágúst
Fossar, fjöll, fjörur og jöklar
Áhugaverðustu staðirnir skoðaðir
Litlir hópar og lúxus, mikið fótarými
Takmarkað sætaframboð
Njótum í hægferð með leiðsögn
Tvær nætur / þrír dagar
Upplýsingar: Facebook Íslandssýn
Íslandssýn/Arctic Geo-Travel
s. 788-6800 info@agtravel.is
Þingmenn Samfylkingarinnar, Við-
reisnar og Miðflokksins í utanríkis-
málanefnd Alþingis lögðu fram bókun
á fundi nefndarinnar í gær þar sem
segir að þingmenn utanríkismála-
nefndar fordæmi hvers kyns árásir á
óbreytta borgara í átökum undan-
farna daga á svæðum Ísraels og Pal-
estínumanna.
„Þingmennirnir leggja áherslu á að
alþjóðalög og mannréttindi séu virt í
hvívetna og að öryggi almennings
verði tryggt. Ólíðandi er að loftárás-
um sé beitt gegn saklausum borgum
þar sem fjöldi barna hefur látið lífið í
verstu stríðsátökum á svæðinu síðan
2014. Að sama skapi harmar meiri-
hlutinn að eldflaugaárásum sé beint
gegn óbreyttum borgurum. Alþjóða-
samfélagið verður að gefa skýr skila-
boð um að leggja eigi niður vopn strax
og að friðsamlegar lausnir í deilunni
milli Ísraels og Palestínu séu eina
lausnin,“ segir m.a.
Áheyrnarfulltrúi Pírata í nefndinni
styður ályktunina.
Þingflokkur Framsóknarflokksins
sendi einnig frá sér ályktun í gær þar
sem segir að þingflokkurinn fordæmi
harðlega árásir ísraelska hersins á
Palestínumenn á Gaza-ströndinni.
„Fórnarlömbin eru helst íbúar Pal-
estínu, óbreyttir borgarar, konur og
börn. Árásir ísraelska hersins eru
gróft brot á alþjóðasamningum, al-
þjóðalögum og glæpur gegn mannúð.
Fyrir tíu árum samþykkti Alþingi við-
urkenningu á sjálfstæði og fullveldi
Palestínu og rétt til eigin ríkis. Átök-
um verður að linna til að vinna megi
að tveggja ríkja lausn á svæðinu,“
segir síðan.
Fordæma hvers kyns
árásir á óbreytta borgara
Áform um að
tengja Keflavík-
urflugvöll með
hraðlest við mið-
borg Reykjavík-
ur eru komin í
biðstöðu. Aðal-
fundur Fluglest-
arinnar ehf. var
haldinn síðastlið-
inn þriðjudag en
engar ákvarð-
anir hafa verið teknar um framhald
verkefnisins að sögn Runólfs
Ágústssonar verkefnastjóra.
„Menn eru að velta fyrir sér
framhaldinu. Við trúum því að tím-
inn vinni með þessu verkefni en
hvenær rétti tíminn kemur er ann-
að mál,“ segir hann. Að sögn Run-
ólfs hefur hugmyndin síður en svo
verið slegin út af borðinu. Menn séu
meðal annars að velta fyrir sér
tengingum fluglestarinnar og borg-
arlínunnar og ýmsum atriðum sem
skoða þarf í því sambandi. Auk þess
hafi ferðaþjónustan verið í lág-
marki að undanförnu vegna veiru-
faraldursins. „Menn vilja líka sjá
hver þróunin þar verður og taka
síðan málið áfram þegar þessir
lykilþættir liggja betur fyrir,“ segir
hann. omfr@mbl.is
Fluglestin á bið-
stöð en áformin
enn uppi
Runólfur
Ágústsson