Morgunblaðið - 20.05.2021, Side 34

Morgunblaðið - 20.05.2021, Side 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 Selmen Verð: 14.995.- Stærðir: 36 - 41 Trego Verð: 16.995.- Stærðir: 36 - 41 / 2 litir Trego Verð: 17.995.- Stærðir: 36 - 41 Trego Verð: 17.995.- Stærðir: 36 - 41 SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS SKECHERS withMemory Foam withMemory Foam ith mory oam withMemory Foam Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. LÁTTU ÞÉR LÍÐA VEL Vönduð og falleg sjúkrarúm fyrir heimili og stofnanir. Örugg, fjölhæf og notendavæn fyrir allar þínar þarfir. Verkfræðingafélag Íslands er aðili að Evr- ópusamtökum félaga verkfræðinga og tækni- fræðinga, FEANI (Fé- dération Européenne d’Associations Nation- ales d’Ingénieurs). Inn- an samtakanna eru 350 félög frá 33 löndum og félagsmenn þeirra eru rúmlega sex milljónir. Samtökin geta nýtt slagkraft sinn til að vinna að mik- ilvægum úrlausnarefnum sem blasa við á hverjum tíma. Í dag er meg- inviðfangsefnið sjálfbær þróun þar sem vísindi, tækni og verkfræði eru í lykilhlutverkum. FEANI vinnur að stefnumótun varðandi heimsmark- mið Sameinuðu þjóðanna þar sem horft er til þess hlutverks sem verk- fræðingar og félög þeirra gegna í að ná þessum markmiðum á heimsvísu. Verkfræði og tækni mikilvæg Heimsmarkmið Sameinuðu þjóð- anna um sjálfbæra þróun er flokkur 17 markmiða og 169 undirmarkmiða sem samþykkt voru árið 2015. Þau eru leiðarvísir að sjálf- bærari heimi árið 2030 og hafa öll aðildarríki Sameinuðu þjóðanna innleitt þau, Ísland þar með talið. Heimsmark- miðin eru samtvinnuð og mynda jafnvægi milli þriggja stoða sjálf- bærrar þróunar; efna- hags-, félags- og um- hverfislegrar. Meginþemun eru fimm; mannkynið, jörðin, hag- sæld, friður og sam- starf. Mönnum hefur sífellt orðið ljósara mikilvægi tækni og verkfræði í tengslum við heimsmarkmiðin. Skýr- asta dæmið um þetta er að árið 2019 ákvað UNESCO að 4. mars ár hvert yrði alþjóðlegur dagur verkfræði og sjálfbærrar þróunar (e. World Eng- ineering Day). Með þessari ákvörðun var vakin athygli á mikilvægu fram- lagi verkfræðinnar og verkfræðinga til sjálfbærrar þróunar til að takast á við þær miklu áskoranir sem mann- kynið stendur frammi fyrir. Megináhersla á fimm markmið FEANI telur að tækni og verk- fræði skipti sköpum í eftirfarandi fjórum heimsmarkmiðum; hreint vatn og hreinlætisaðstaða, sjálfbær orka, nýsköpun og uppbygging og sjálfbærar borgir og samfélög. – Þetta eru risavaxin verkefni sem fela í sér mikil tækifæri. Þróun nýrra lausna og núverandi tækni og aðferða hefur í gegnum tíð- ina verið kjarninn í viðfangsefnum verkfræðinga. Það verður sífellt mik- ilvægara að líta til þátta og sjónar- miða sem teljast ekki verkfræðileg í grunninn. Verkfræðingar verði því að víkka út hæfni sína og breyta sjón- arhorninu frá tækni- og verkfræði- legri sérþekkingu í átt að heildrænni sýn á sjálfbærni. Við stefnumótun FEANI er ekki eingöngu litið til framlags og þekk- ingar einstaklinganna innan verk- fræðinnar, einnig er fjallað um aðild- arfélög samtakanna og hvaða hlutverki þau eigi að gegna varðandi heimsmarkmiðin. Nýliðun í tækni- greinum, ímynd verkfræðinnar og virk þátttaka í pólitískri umræðu og ákvarðanatöku eru verkefni sem blasa við félögum verkfræðinga alls staðar í heiminum. Helstu viðfangsefni Hjá FEANI hafa verið skilgreind viðfangsefni sem aðildarfélögin eru hvött til að sinna af krafti. Öll eiga þau samhljóm í verkefnum sem Verkfræðingafélag Íslands vinnur að nú þegar. Margt má af þessari upp- talningu læra: - Auka sýnileika og bæta almenna þekkingu á viðfangsefnum og mik- ilvægi verkfræðistéttarinnar. - Gera framlag verkfræðinga við að bæta lífskjör þjóðarinnar sýnilegt. - Auka áhuga, sérstaklega barna og unglinga, á náttúruvísindum, tækni og verkfræði. - Styðja við skólakerfið og kennara- stéttina með það að markmiði að auka áhuga á vísindum og tækni. - Þróa og efla samstarf við hags- munaaðila sem vinna að sömu mark- miðum og félög verkfræðinga. - Hvetja til umræðu, jafnvel um erf- ið málefni, með það að markmiði að draga fram kosti og galla og stuðla þannig að upplýstri ákvarðanatöku. - Vera vettvangur þar sem vakin er athygli á framúrskarandi verkefnum á sviði sjálfbærni. Heimsmarkmiðin hafa verið til stöðugrar umfjöllunar hjá Verkfræð- ingafélagi Íslands frá því þau komu fyrst fram og félagið vill leggja sitt af mörkum til að markmiðin náist. Fé- lagið er stærsta og öflugasta félag tæknimenntaðra á Íslandi með um 5.000 félagsmenn. Starfsemi Verk- fræðingafélagsins er mikilvæg, ekki aðeins félagsmönnum, heldur einnig íslensku samfélagi sem farvegur og skynsöm rödd tækniframfara sem framtíðarlífsgæði okkar byggjast á. Eftir Svönu Helen Björnsdóttur » Verkfræðingar verða að víkka út hæfni sína og breyta sjónar- horninu frá tækni- og verkfræðilegri sérþekk- ingu í átt að heildrænni sýn á sjálfbærni. Svana Helen Björnsdóttir Höfundur er formaður Verkfræðingafélags Íslands. Verkfræðin og sjálfbær þróun Kaupfélag Skagfirð- inga styrkti matar- úthlutanir Fjöl- skylduhjálpar Íslands allan nóvember og des- ember 2020 og febrúar og mars 2021 að ver- mæti hátt í 100 miljónir króna. Stuðningurinn var ótrúlegur og hver matarúthlutun gríðar- lega vegleg til þeirra fjölmörgu hópa sem eiga um sárt að binda. Matarúthlutanir fara fram á tveimur starfsstöðvum FÍ og var met slegið í af- kastagetu sjálfboðaliða. Við störfum í Reykjavík í Iðufelli 14 í Breiðholti og í Reykjanesbæ á Baldurs- götu 14. Við vorum með 20 úthlut- unardaga í hverjum mánuði á þessu fjögra mánaða tímabili. Kaupfélag Skagfirðinga sá alfarið um að koma öll- um matvælum til okkar í Iðufellið í Reykjavík og Baldursgötu í Reykja- nesbæ. Þakklæti í hjarta Mörgum skjólstæðingum okkar vöknaði um augu þegar réttir voru fram 6 til 8 haldapokar af matvælum við hverja afgreiðslu. Um var að ræða fyrsta flokks gæðamatvæli og næring- arrík frá Kaupfélagi Skagfirðinga og fyrirtækjum tengdum því. Matargjaf- irnar innihéldu 4 til 5 veglegar máltíðir af lúxusvörum. Þannig fengu 2.400 heimili aðstoð í hverjum mánuði með hjálp Kaupfélags Skagfirðinga. Við af- greiddum 2.400 heimili í hverjum mán- uði og að baki þessum heimilum voru hátt í 6.600 einstaklingar. Þessa fjóra mánuði af- greiddum við matar- aðstoð til 9.600 heimila. Hvert heimili gat sótt um aðstoð einu sinni í mán- uði. Aukningin var 100% og allir mánuðir orðnir eins og desember- mánuður. Við höfum get- að starfað allt Covid-19- tímabilið og enginn hefur smitast í okkar hópi. Það er mikil þörf á mataraðstoð til heim- ilanna í landinu. Til að anna þessu starfi þurfum við mikinn mannafla, einstaklinga á öllum aldri. Við erum svo heppin að hafa hátt í 50 sjálfboða- liða sem sumir hverjir hafa verið með okkur sl. 18 ár af mikilli hugsjón. Þessa nefndu mánuði hefur álagið verið gríð- arlega mikið. Opið er á báðum starfs- stöðvum alla virka daga vikunnar frá kl. 13 til 17/18 og símsvörun á öllum tímum og alla daga ársins. Við tökum á móti notuðum fatnaði alla virka daga á báðum starfsstöðvum. Ómetanlegur stuðn- ingur Kaupfélags Skagfirðinga Eftir Ásgerði Jónu Flosadóttur »Hátt í 100 milljón kr. stuðningur Kaupfé- lags Skagfirðinga í formi matvæla verður seint fullþakkaður. Ásgerður Jóna Flosadóttir Höfundur er formaður Fjöl- skylduhjálpar Íslands, MBA í við- skiptafræði og stjórnun og BA í stjórnmála- og fjölmiðlafræði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.