Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 56
56 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021
Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is
Opið virka daga: 12.00-18:00 Laugardagar 11:00-15:00
Vertu í
þægilegum
BRALETTE
að horfa á
EUROVISION
í kvöld
Áfram DAÐI og
GAGNAMAGNIÐ!
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Snemma í morgun fóru átta úr ís-
lenska Eurovision-hópnum í Rotter-
dam í skimun fyrir kórónuveirunni,
þar á meðal Daði og Gagnamagnið.
Niðurstöður úr skimuninni bárust
rétt í þessu og í ljós kom að einn
meðlimur Gagnamagnsins reyndist
smitaður. Nánari upplýsingar verða
veittar síðar.“
Svo hljómaði tilkynning sem barst
fjölmiðlum í gærmorgun um stöðu
mála hjá íslenska Eurovision-
hópnum í Rotterdam en seinni und-
anúrslit fara fram í kvöld og eru
Daði og Gagnamagnið meðal kepp-
enda. Skömmu eftir að tilkynningin
barst birtist færsla á facebooksíðu
Daða sama efnis og sagði þar að því
miður þýddi þetta að öllum líkindum
að upptaka frá seinna rennsli hóps-
ins yrði sýnd í stað þess að hann
kæmi fram í beinni útsendingu.
Sagði Daði hópinn hafa gætt sín afar
vel allan tímann, þ.e. fylgt öllum
sóttvarnareglum, og því kæmi smitið
öllum í opna skjöldu. Hópurinn væri
ánægður með sína frammistöðu og
spenntur fyrir því að fá að sýna af-
rakstur æfinganna. Eftir hádegi
birti Samband evrópska sjónvarps-
stöðva svo yfirlýsingu þess efnis að
Daði og Gagnamagnið myndu hvorki
koma fram á sviði í kvöld né á úr-
slitakvöldinu, þ.e. ef Ísland kemst
áfram í kvöld. Í staðinn verður sýnd
upptaka frá rennsli á atriðinu 13.
maí.
Í efstu fimm
Flosi Jón Ófeigsson, formaður Fé-
lags áhugafólks um Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva, FÁSES,
spáir Daða Frey og Gagnamagninu
góðu gengi þrátt fyrir áfallið sem
hópurinn hefur orðið fyrir í Rotter-
dam. Hann spáir því að Ísland kom-
ist áfram í aðalkeppnina og verði í
einu af efstu fimm sætunum þegar
úrslit liggja fyrir. „Hann flýgur í
gegn,“ segir Flosi um Daða, „og ég
blikka ekki augunum þegar ég segi
það. Og hann mun standa sig vel á
laugardaginn.“ Flosi spáir því að
símakosningin verði Daða og Gagna-
magninu mjög í hag en óvissara hvað
dómararnir geri.
En hverju spáir Flosi um efstu
fjögur sætin, fyrst Daði og Gagna-
magnið verða í einu af efstu fimm?
„Ég er náttúrlega Flo Rida-maður
og hef mikla trú á Senhit eftir að
staðfest var að hann kæmi,“ svarar
Flosi og á þar við bandaríska rapp-
arann sem koma mun fram með
söngkonunni Senhit frá San Marínó.
Eftir undankeppnina í fyrradag seg-
ist Flosi líka bjartsýnn á að Úkraína
nái langt og spáir því að Ítalir verði
líka í einu af efstu fimm sætum. Ítal-
ir eru með rokklag sem Flosi segir
grípandi. Fimmta og síðasta landið
sem Flosi telur að komist í efstu sæti
er svo Frakkland.
Allt kemur þetta í ljós á laugar-
dagskvöld og það eina sem þjóðin
getur nú gert er að krossa fingur og
senda Daða Frey og Gagnamagninu
hlýja strauma. Toj, toj.
„Hann flýgur í gegn“
- Ísland keppir í Eurovision með upptöku af æfingu 13. maí
- Formaður FÁSES spáir Íslandi þó góðu gengi í kvöld
Ljósmynd/EBU/ Thomas Hanses
Glæsileg Daði og Gagnamagnið í seinna rennsli 13. maí síðastliðinn. Upptaka af því verður sýnd í kvöld.
AFP
San Marínó Söngkonan Senhit frá San Marínó þykir sigurstrangleg.
AFP
Úkraína Hljómsveitin Go_A komst í úrslitakeppnina með flott lag og atriði.
AFP
Frakkland Barbara Pravi á sviði.
Ljósmynd/EBU/Andres Putting
Ítalía Rokksveitin Måneskin.
Þrjár sýningar verða opnaðar í
Hönnunarsafni Íslands í dag, 20.
maí. Sú fyrsta er sýning á verkum
hönnuðarins Kristínar Þorkels-
dóttur og segir í tilkynningu að fá-
ir íslenskir hönnuðir skilji eftir sig
jafnfjölbreytt ævistarf og Kristín.
Þjóðþekkt merki sem hafi mörg
verið í notkun í yfir fimm áratugi
séu verk Kristínar sem og núgild-
andi peningaseðlar sem hún hann-
aði í félagi við Stephen Fairbairn.
Sýningarstjórar eru Bryndís
Björgvinsdóttir, Birna Geirfinns-
dóttir og Arnar Freyr Guðmunds-
son og er sýningin liður í Hönn-
unarmars.
Náttúrulitun í nútímasamhengi
nefnist önnur sýning sem opnuð
verður í rannsóknarrými safnsins.
Þar verður gestum gefin innsýn í
rannsóknar- og hönnunarferli Sig-
mundar Freysteinssonar fatahönn-
uðar sem hefur unnið með til-
raunakennda sníðagerð, hönnun,
jurtalitun og nýsköpun í textíl.
Sigmundur verður í rannsókn-
arrými safnsins til 12. september
þar sem gestir geta skoðað og
spjallað um íslenska jurtalitun í
fortíð og framtíð.
Í þriðja lagi er það svo hönn-
uðurinn Ýr Jóhannsdóttir sem
vinnur undir nafninu Ýrúrarí og
hefur undanfarna mánuði verið í
vinnustofudvöl í safninu og unnið
að eigin verkum sem snúast um að
gefa ónýtum peysum frá Rauða
krossinum nýtt líf með skapandi
og skemmtilegum viðgerðum.
Peysur sem fólk hefur tekið að sér
og lagað á skapandi hátt sem og
peysur sem Ýr sjálf hefur um-
breytt á tímabilinu verða til sýnis
og skapandi viðgerðasmiðjur
verða í boði á föstudag, laugardag
og sunnudag kl. 12-18. Sýning-
arnar eru liður í Hönnunarmars.
Kristín, Náttúrulitun og Ýrúrarí
Smjör Kristín
hannaði hinar
landskunnu
umbúðir fyrir
Mjólkursamsöluna.