Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
H
vað getur þú sagt mér um þinn
fatastíl?
„Ferðalag mitt um völundarhús
tískunnar er nú að verða nokkuð
langt og strembið, því ég var mjög
ungur þegar ég fór að fylgjast
mjög vel með helstu straumum. En svo stiklað sé
á stóru þá var leðurjakkinn nánast límdur á mig
þegar ég var rokkstjarna í Kátum piltum. Á há-
skólaárunum og fyrri part blaðamennskuferilsins
var ég í öllu svörtu; gallabuxum, biker boots og
kálfasíðum frakka; hékk á Hressó, reykti pípu og
þambaði svart kaffi þangað til mér var orðið flök-
urt og neyddist þá til að fá mér einn viskí. Já og
las Camus. Alltaf stutt í þennan stíl, hann er
grunnurinn en í seinni tíð hef ég verið að færa mig
meira yfir í einhvers konar Kormák og Skjöld;
þægilegt og hallærislegt afa-tvíd. Þeim verslunar-
undrum hjá K&S tókst að ljúga því í hipsterana að
þessi fatastíll væri kúl og það verður nú að teljast
harla vel af sér vikið,“ segir Jakob Bjarnar.
Hver er þín tískufyrirmynd?
„Clint Eastwood.“
Hvaða föt myndir þú taka með þér á eyðieyju?
„Baðsloppinn minn.“
Hefur veiran haft áhrif á fatastílinn?
„Já, óneitanlega. Þótt ég klæði mig alltaf upp
fyrir morgunfundi; skyrtu, bindi og jakka, þá ríf
ég mig úr að ofan og fer beint í sloppinn þegar ég
slekk á teams-inu. Að neðanverðu er ég bara á
nærbuxunum á þessum fundum, til að vera fljótari
í sloppinn. Vinnugallann. Þau eru orðin afar sjald-
gæf tilefnin sem gefast til að stríla sig almenni-
lega upp. Já, það má eiginlega segja að þessi hel-
vítis veira sé að drepa í manni allan tískumetnað.“
Uppáhaldsflíkin?
„Erfitt að velja úr en til að segja eitt-
hvað nefni ég Michael Kors-jakka sem
ég keypti síðast þegar ég fór til New
York til að dressa mig upp. Ég fer reglu-
lega þangað, tek inn götutískuna og fer
svo í fatabúðir og sjoppa hraustlega.“
Hvað dreymir þig um að eignast í fata-
skápinn?
„Skápurinn er nú býsna traustur en
ég væri til í að eignast góð kjólföt og
pípuhatt við. Og kannski, fyrst þú ert að
bjóða, hvítan smóking upp á grínið, ég á
svartan.“
Hefur þú einhvern tímann
hent flík sem þú hefur séð
eftir?
„Hef ég einhvern tím-
ann … Ég sé eftir hverri ein-
ustu flík sem ég læt frá mér.
Jafnvel þeirri sem er orðin
allt of lítil. Ég sé fyrir mér að
ég muni með tíð og tíma
missa þessi 20 kíló sem ég
hef bætt á mig jafnt og þétt
undanfarin 20 árin. Sem svo riðlar öllu skipulagi í
skápnum. Passað er upp á það, þegar þörf þykir
að grisja í fataskápnum mínum, að ég sé fjarver-
andi. Hitt hefur verið reynt og ég hendi mér grát-
andi á eftir hverri flík.
Hvernig er morgunrútínan þín?
„Morgunrútínan mín virka daga er nokkurn
veginn þannig að ég sprett á fætur eins og fjöður
klukkan 06:30, klappa hundinum og dríf mig í
kalda sturtu. Sest svo á legubekkinn sem ég er
með inni á baði, hálfligg þar og legg heitan
þvottaklút yfir andlitið til að mýkja það. Ber svo
á mig sérstaka rakstursolíu og raksápu og
raka mig. Þetta er mjög mikilvæg
stund og leggur línuna fyrir daginn.
Tannburstun, munnskol, og set á mig
rakspíra: Armani Code. Laga espressó, les
blöðin og fer svo í 40 mínútna göngutúr með
hundinn. Hreinsa hugann fyrir morgunfund sem
hefst klukkan níu.“
Hvað ertu lengi að taka þig til á
morgnana?
„Tíu mínútur.“
Hvaða húðvörur notarðu til að vera
frísklegri?
„Undanfarið hef ég aðeins verið að
vinna með ChitoCare beauty-
andlitskremið sem ég veit ekki alveg hvað mér á
að finnast um. En aðallega eru það Sóley-
húðsnyrtivörur sem ég hef notað samvisku-
samlega alveg frá því Sóley stofnaði fyrirtækið.
Og þakka þeim unglegt útlitið.“
Hvað er að finna í baðskápnum þínum?
„Marta, hvað er ekki að finna í baðskápnum
mínum?“
Ferðalag um
völundarhús tískunnar
Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður er litríkur persónuleiki með útpældan fatastíl. Hann var einu sinni í
hljómsveitinni Kátum piltum og var á þeim tíma að vinna með ákveðið útlit. Það hefur svo þróast og í dag sækir
hann innblástur í Clint Eastwood, sem er skiljanlegt því það er varla hægt að vera svalari en sá góði maður.
Marta María | mm@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jakob Bjarnar Grétarsson
leggur mikið upp úr því að
vera sómasamlega til fara.
Reuters
Clint East-
wood er fyrir-
mynd Jakobs
Bjarnars þegar
kemur að stíl.
AP
ChitoCare-
dagkremið er
í uppáhaldi
hjá Jakobi.
Clint Eastwood
hefur leikið
mörg hlutverk í
gegnum tíðina.