Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 47
2003 og hún ólétt að eldra barninu en barnsföður sínum hafði hún
kynnst í partíi í næsta húsi þegar hún var sautján ára og það sam-
band stóð í fjórtán ár.
„Svo kemur barnið í heiminn og ég skrái mig á hönnunarbraut í
Iðnskólanum í Hafnarfirði og þar kviknaði loksins á mér! Ég fann
mig rosalega vel í náminu og fékk mikinn áhuga á því sem ég var að
gera. Samt var eina markmiðið bara að kaupa stúdentshúfu og taka
mynd af mér með hana á höfðinu til að sanna fyrir öllum að ég væri
að standa mig í lífinu. Það komst bara ekkert annað að,“ segir hún
og hristir kollinn.
Lét sannfærast af ljósmóður um að allt væri í lagi
Embla fæddi heilbrigt barn og átti stutt í að smella af sér mynd
með stúdentshúfuna á kollinum þegar hún varð ólétt í annað sinn
en eftir tuttugu vikur fór að bera á frávikum í fóstrinu.
„Ég á aldrei eftir að gleyma síðustu sónarskoðuninni sem ég fór í
áður en barnið fæddist. Ljósmóðirin sannfærði mig um að það
væru alltaf að mælast einhver smá frávik í fóstrum en að í fæstum
tilfellum væru þau alvarleg. Kannski að börn fæddust með stærri
eyru eða eitthvað en yfirleitt væru þessi frávik ekkert sem skipti
máli. Hún reyndi svo innilega að sannfæra mig um að þetta yrði
ekkert mál svo ég trúði henni en nokkrum dögum síðar fæddi ég
mjög fjölfatlað barn og sjokkið var gríðarlegt.“
Kolbrún, sem er fjórtán ára nemandi í Klettaskóla, glímir við
sjaldgæfa fötlun sem stafar af Saethre Chotzen-heilkenninu. Henni
fylgja margskonar erfiðleikar sem hafa
stundum kallað á flóknar skurðaðgerðir og
fleira.
„Þegar hún var bara níu mánaða var
höfuðkúpan á henni klippt upp til að koma
mætti í veg fyrir samgróninga. Hún fæddist
með klumbufót og mestan part ævinnar hef-
ur hún verið í spengingarferli vegna baks-
ins,“ útskýrir Embla og bætir við að það sé
einungis brot af því sem barnið hefur þurft að ganga í gegnum.
„Andlegur þroski hennar er kannski á við þriggja, fjögurra ára
stelpu en hún hefur dásamlega skapgerð. Ég á fatlað barn en ég á
rosalega hamingjusamt fatlað barn. Henni líður ekki illa þar sem
hún er bókstaflega alltaf í góðu skapi og elskar alla sem hún hittir.
„Mér fannst áföllin
hafa veikt mig og gert
mig að ómenntuðum
svörtum sauði. Ég
var aldrei nógu
góð í eigin huga.“
5SJÁ SÍÐU 48
MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 47
Fallegar gersemar
Vefverslun og sölustaðir á oskabond.is