Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 28
Á fyrsta fundi okkar Gylfa fyrir rúmlega ára- tug hnaut ég um hvað hann var lífsglaður, jákvæður og hress. Þegar við kynntumst betur átti ég eftir að komast að því að það var ástæða fyrir viðhorfi hans til lífsins. Harmurinn hafði knúið dyra í lífi hans þeg- ar hann var 26 ára gamall. „1996 er móðir mín myrt af bróður sínum og það var eitthvað sem maður býst aldrei við að lenda í. Að einhver sé tekinn frá manni svona snemma. Það er rosalega erfitt að viðurkenna þann möguleika að þetta geti yfir höfuð gerst,“ segir Gylfi þar sem við sitjum á mannlausum bar á farsóttarhótelinu sem hefur verið hans annað heimili síðasta eina og hálfa árið eða síðan veiran fór að geisa í samfélaginu. Þegar hann og faðir hans fengu upplýsingar um að móðir hans væri látin vissu þeir ekki að um morð væri að ræða. Móðir hans hafði gert sér ferð norður í land til að heimsækja bróður sinn til að gera upp erfið mál eftir andlát ömmu Gylfa. „Mamma var asmaveik og við feðgarnir vorum eiginlega vissir um að asminn hefði dregið hana til dauða. Daginn eftir að við fréttum af andlátinu förum við til Akureyrar, en hún hafði verið að heimsækja bróður sinn sem framdi verkn- aðinn. Þegar við lentum þar beið lögreglan eftir okkur þar sem þetta hafði verið andlát í heimahúsi. Við förum upp á lögreglustöð og ég fór í stutta yfirheyrslu hjá lögreglunni en pabbi var þarna í fleiri fleiri klukkutíma. Ég beið eftir honum frammi og vissi ekkert hvað var að gerast. Á lögreglustöð- inni mættum við bróður mömmu, morðingja hennar, og gengum eiginlega í fangið á honum. Hann vottaði okkur sam- úð sína og við sögðum sömuleiðis enda vissum við ekkert hvað hafði raunverulega gerst á þessum tímapunkti. Þegar pabbi losnaði úr yfirheyrslunni hjá lögreglunni fórum við upp á hótel og kveiktum á sjónvarpinu. Þar var fyrsta frétt að morð hefði verið framið á þessum bæ og mynd af bænum. Þannig fréttum við að hún hefði verið myrt,“ segir Gylfi. Þegar ég spyr Gylfa hvernig þeir feðgar hafi brugðist við segir hann að það hafi verið mikið áfall að fá þessar fréttir og líka að fá þær með þessum hætti. „Ég man að við litum á hvor annan og sögðum eiginlega ekki mikið. Allt í einu heyrum við í sírenu og stuttu síðar var löggan mætt á hótelið. Hún bað okkur afsökunar á því að þetta hafi lekið í fréttir. Okkar fyrstu viðbrögð voru að við vildum fá að sjá hana strax. Ég hef séð lík, bæði fyrir þennan tíma og eftir, en þetta var sjón sem ég mun aldrei gleyma. Ekki bara var þetta mamma mín sem lá þarna, en þarna sást að andlátið hafði ekki boriðað með eðlilegum hætti,“ segir hann. Var hún með áverka? „Áverkarnir voru sýnilegir okkur. Þá varð þetta raunveru- legra. Svo tóku við réttarhöld bæði fyrir héraði og Hæsta- rétti í málinu. Hann fékk nú ekki langan dóm fyrir þetta. Ég held að hann hafi setið inni í sex ár,“ segir Gylfi. Sá í fréttum að móðir hans hafði verið myrt Gylfi Þór Þorsteinsson hefur varla farið úr rauðu flíspeysunni allt síðasta ár þar sem hann hefur staðið vaktina í farsóttarhúsinu nánast allan sólarhringinn. Gylfi hefur ýmsa fjöruna sopið í einkalífi og starfi. Þegar hann var 26 ára var móðir hans myrt á bóndabæ norður í landi. Eftir þá lífsreynslu fór hann að hjálpa fólki að komast í gegnum sín áföll sem leiddi hann í starfið sem hann sinnir í dag. Sjálf kynntist ég honum þegar ég réð mig til starfa hjá Árvakri til að búa til lífsstílsvef fyrir mbl.is sem síðar fékk nafnið Smartland. Þá var hann framkvæmdastjóri mbl.is. Marta María | mm@mbl.is Gylfi Þór Þorsteinsson hefur staðið vaktina í farsóttarhús- inu með miklum glæsibrag. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 5 SJÁ SÍÐU 30 28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.