Morgunblaðið - 05.05.2021, Blaðsíða 14
okkur sem búum á Íslandi til að gefa
okkur smá lit og ferskleika á þessum
árstíma.“
Augun aðalatriðið í dag
Katrína bendir á að nú þegar við
göngum mikið með grímur er mik-
ilvægt að skyggja og gera augun
meira áberandi ásamt því að fylla létt
inn í augabrúnirnar.
„Í raun má segja að augabrúnir hafi
aldrei verið jafn mikilvægar og í dag
þar sem þær ramma inn andlitið.
Í uppáhaldi hjá mér núna
er Brow Blade Ink Stain +
Waterproof Pencil frá Ur-
ban Decay sem nýtist vel
til að gera lýtalausar
augabrúnir án langvar-
andi litunar.“
Hvaða fleiri förð-
unarvörur eru í snyrtibuddunni þinni?
„Ég er með varasalvann „Aloe Lips“ frá
Forever Living. Hann er fullkominn að mínu
mati. Síðan er ég með „Le Lip Liner“ frá Lan-
côme og er Natural Mauve uppáhaldsliturinn
minn í honum. Ég er einnig með augnahárakrullara frá
Shiseido og „Le Volume Révolution“ maskarann frá Chanel.
Í snyrtibuddunni er einnig að finna Parure Gold-fastan farða frá
Guerlain sem baðar húðina í réttu ljósi yfir daginn.“
Vaknar fersk og ert tilbúin í daginn
Hver eru tískutrendin núna þegar kemur að förðun?
„Augun eru aðalatriðið og að gera sem mest úr augabrúnunum.
Augabrúna „lamination“ gefur andlitinu fallega lyftingu og ferskara
útlit. Einnig eru augnháralengingar mjög vinsælar þar sem þú vakn-
ar fersk og tilbúin í daginn án þess að þurfa að farða þig mikið. Augun
eru spegill sálarinnar og því á það vel við að hlúa vel að þeim.“
Hverju eiga konur að huga sérstaklega að með aldrinum þegar
kemur að förðun?
Hvað með varaliti?
„Við erum ekki mikið að nota varaliti núna vegna veirunnar, þess
vegna mæli ég með að nota varasalva og fallegan varablýant á var-
irnar. Uppáhaldið mitt núna er „Cellular Perfomance Total lip
Treatment“ frá Sensai. Þessi nýja og silkimjúka formúla gefur
vörunum raka og næringu. Hún smýgur djúpt undir yfirborð
varanna og beinir athyglinni að útlínum þeirra og veitir þeim
náttúrulega fyllingu. Háþróuð formúlan er silkimjúk við-
komu en helst jafnframt á sínum stað. Við eigum að njóta
þess að vera með þrýstnar og fallegar varir.“
Ertu til í að deila með okkur góðu ráði til að gera augun
fallegri?
„Ég mæli með jarðlitum og ferskjulituðum tónum á augun sem fara
öllum. Þannig drögum við fram fallega augnlitinn okkar. Í þessu
samhengi get ég mælt með Hypnose-palettunni frá Lancôme eða
Couture Clutch-augnskuggapallettunni frá Yves Saint Laurent.“
Hendurnar mesta leyndarmálið
Hvert er besta trixið tengt förðun sem þú kannt?
„Hendurnar mínar eru besta trixið. Það ættu allir að
prófa förðun hjá mér. Síðan mæli ég með að setja farðann
áður en maður notar hyljarann á andlitið. Síðan kann ég
annað ráð sem er að setja hvíta línu með augn-
línupensli yfir augnlokið áður en þú setur ljósan
augnskugga sem mun auka dýpt ljósa litsins á aug-
unum.“
Hverjar eru uppáhaldshárvörurnar þínar?
„Ég nota mikið Balmain-vörurnar. Sem dæmi má
nefna Argan Moisturizing Elixir frá Balmain sem gefur
gljáa og raka í hárið og gerir allar greiðslur auðveldari
þegar kemur að hárinu.“
ur en það sem við setjum á andlitið.
Á morgnana hreinsa ég andlitið
mitt með Chanel Cleanser sem er
mjúkt krem. Það hreinsar húðina
og tekur allt sem hefur komið upp
úr húðinni yfir nóttina. Húðin verð-
ur mjúk og hún djúphreinsast og
verður undirbúin fyrir næsta skref
húðumhirðunnar. Þá rúlla ég húð-
ina með ísmolum sem hjálpar henni
við að vakna og vera fersk yfir dag-
inn. Það er einnig gott að taka kalda
sturtu að morgni.
Næsta skref felur í sér að næra
húðina og þá nota ég Chanel Hydra
Beauty Micro Créme sem liggur
fallega á húðinni og gefur henni
gljáa og þá næringu sem hún þarf.
Ég nota einnig
Guerlain’s Double R Renew &
Repair-serumið sem þéttir húðina
og minnkar hrukkurnar. Ég kann
vel við að nota augnkremið frá
BIOEFFECT EGF sem er frísk-
andi augnserum sem vinnur gegn
öldrun húðarinnar og er sér-
staklega hannað fyrir viðkvæmu húðina í kringum augun. Það dregur
úr fínum línum og hrukkum. Minnkar þrota við augun og stuðlar að
réttu rakajafnvægi og gerir húðina þétta og ljómandi. Auðvelt að bera
serumið á húðina en flaskan er með kælandi stálkúlu sem tryggir
jafna dreifingu.
Einnig mæli ég með augnkremi frá Guerlain sem heitir „The
Abeille Royale Eye Cream sem tekur bólgur og augnpoka og nærir
húðina á einstakan hátt. Þessar tvær vörur eru það sem ég þarf á
augnsvæðið mitt í dag. Ég mæli með að gera snögga æfingu á morgn-
ana í fimmtán til þrjátíu mínútur hvort heldur sem er jóga, hugleiðslu
eða að ganga utandyra á meðan kremin eru að setjast inn og vinna í
húðinni. Við þurfum öll góðan svefn og ég mæli með að vakna aðeins
fyrr til að geta undirbúið sig fyrir daginn. Góð hvíld og undirbúningur
er allt sem við þurfum til að líta glæsilega út og líða vel í eigin skinni.“
Farðinn skiptir miklu máli
Það er mikilvægt að nota góðan farða sem jafnar húðina og passar
vel við húðlitinn að hennar sögn.
„Eins er gott að nota hyljara á þau svæði sem við viljum hylja að-
eins betur eins og til dæmis und-
ir augun. Þá mæli ég með „Wa-
terproof Protective Undereye
Concealer frá Lancôme. Hann
jafnar húðlitinn og hylur dökka
bauga og minnkar fínar línur í
kringum augun. Ég á nokkra
uppáhaldsfarða sem eru: It
Cosmetics sem er þróaður af
leiðandi lýtalæknum og margir í
skemmtanaiðnaðinum nota.
Farðinn er leyndarmál stjarn-
anna sem hylur vel og nær fram
dásamlegu útliti þar sem hann er
með lita leiðréttingu og er mjög
nærandi og gerir húðina full-
komna ásýndar. Hann er einnig
með SPF 50 vörn í sér. Svo er ég
hrifin af „Skin Self-Refreshing-
farðanum frá Shiseido sem inniheldur litla
kristalla og mandarínubörk. Hann gefur ein-
stakt útlit. „ĹEssentiel Natural 16 H Wear-
farðinn frá Guerlain er einnig silkimjúkur og
gefur óaðfinnanlegt útlit og ferskleika.“
Það sem Katrína notar til að fá sólkysst útlit á
þessum árstíma er Terracotta Bronzing Powder
frá Guerlain.
„Eins nota ég púðurkinnalitinn „Joues Cont-
raste“ frá Chanel. Sem gefur unglegt og frísk-
legt útlit. Gott er að bera kinnalit undir kjálk-
ann, á gagnaugað og á ennið. Sér í lagi fyrir
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. MAÍ 2021
Brown Blade Ink Stein
+ Waterproff-auga-
brúnapensillinn frá
Urbandecay er góður í
að draga fram fegurð
augabrúnanna.
Hypnôse-augnskuggapallettan frá
Lancôme er smart fyrir augun í dag.
Le Volume
Révolution
De Chanel-
maskarinn
lengir augn-
hárin svo
um munar.
Það er ekki nóg að vera
með fallega förðun. Hárið
verður að vera glansandi
líka. Argan Moisturizing
Elixir frá Balmain gefur
gljáa sem tekið er eftir.
Katrina segir mestu
máli skipta að hafa
hæfileikana til að farða
í höndunum á sér.
„Eyebrow Lamination“ er aðferð til að
gera sem mest úr augabrúnunum.
La Mousse-
kremið/froðan
frá Chanel gefur
húðinni góða og
djúpa hreinsun
bæði kvölds og
morgna.
Ljósmynd/Alisa Elíasson
Katrína rúllar andlitið
með klaka á morgnana
til að vekja húðina.
Ljósmynd/Colourbox
Katrina
farðaði fyrir
þessa ljós-
myndatöku
þar sem
náttúrulegt
útlit og
ferskleiki er
í fyrirrúmi.
Vegna kórónuveirunnar
og grímunnar er mikið
lagt upp úr augnförðun
um þessar mundir.
Ljósmynd/Instagram
Ljósmynd/Igor Bulgak
Sublimage Le Teint-farðinn
frá Chanel er góður fyrir
þroskaða húð.
Fyrir náttúrulegt
útlit á daginn
er gott að nota
ĹEssentiel
Natural-farðann
frá Guerlain.
Ljósmynd/Igor Bulgak
Aloe Lips
varasalvinn
frá Forever er
með jojoba
sem nærir
varirnar.
Ómissandi
undir grím-
una í dag.